Freyr - 15.02.1992, Qupperneq 33
4.’92
FREYR 161
Grenvíkingar framleiða
snjóblásara
Vélsmiðjan Vík hf. smíðar snjó-
blásara sem Barði heitir og hefur
gert síðan árið 1988. Níu snjóblás-
arar hafa verið smíðaðir. Þeir hafa
verið seldir víða um land og hafa
að sögn reynst vel. Snjóblásarnir
hafa m.a. verið seldir Blönduvirkj-
un, Grýtubakkahreppi og Vega-
gerðinni.
Auðlindin.
Þátturinn „Auðlindin“ er fluttur
í Ríkisútvarpinu eftir hádegisfrétt-
ir eins og kunnugt er. í honum er
fjallað um aflabrögð og annað sem
tengist sj ávarútvegi, og er góður og
fróðlegur þáttur.
Eitt sinn þegar Hjörtur bóndi á
Tjörn í Svarfaðardal hafði hlýtt á
„Auðlindina“, varð honum þessi
vísa af munni:
Það er skrýtið þegar menn
þrasa um auðlindina,
að þá er rætt um þorskinn - en
þagað um sauðkindina!
Hitakútar — miðstöðvarkatlar
Viftur — rafmagnsofnar
ELFA
GÆÐA T/EKI
]
Valin úrvals
merki með
áratuga reynslu
ELFA-OSO hitakútar 30-50-
120-200-300 lítra, vel ein-
angraðir úr ryðfríu stáli. Ára-
tuga góð reynsla.
ELFA-VORTICE Rafmagnsþilofn-
ar 600-2000 wött.
Rafmagnshitablásarar
2000 wött
Hitastýrðir — styrkstilltir.
ELFA-CTC fjölnýtikatlar
til brennslu á olíu, timbri, rusli,
mó o.fl. Einnig rafmagnshit-
un. Innbyggð stýrikerfi. Auð-
veldir í uppsetningu.
W.
ELFA-VORTICE
Iðnaðarviftur,
gripahúsaviftur,
baðviftur.
Hagstœtt verð og góðir greiðsluskilmálar.
Einar Farestveit&CoHF
Borgarlúni 28, simi: 622900.
Þessar leiðbeiningar eru engan veginn tæm-
andi, en ég vona að þær komi að gagni. Lesa
aðeins þær leiðbeiningar, sem fjalla um þann
þátt sem verið er að vinna í í hvert sinn, en ekki
að lesa allar leiðbeiningar í einu.
Að lokum má benda á að sækja má um
lækkun á skatti vegna menntunarkostnaðar
barns eldra en 16 ára. Aðalreglna er sú að
ívilnun er veitt ef tekjur barns eru undir
360.000 kr. á árinu 1991. Einnig má sækja um
lækkun á skatti vegna veikinda eða eignatjóns,
sjá bls. 17 í leiðbeiningum Rsk., sem fylgja
skattframtali.
Áríðandi er að fá staðfestingu skóla á námi.
Læt þetta nægja.