Freyr - 15.02.1992, Side 34
162 FREYR
4.’92
Biskupsstóll og Bœndaskóli
Nokkru fyrir sl. jól kom út bókin
Biskupsstóll og Bændaskóli. Höf-
undur er Pétur Bjarnason, fyrrver-
andi kennari við Bændaskólann á
Hólum en Bókaútgáfan á Hofi,
sem Gísli Pálsson á Hofi í Vatnsdal
rekur, er útgefandi. Bókin kynnir
Hólastað í fortíð og nútíð í texta en
er þó einkum myndabók í hand-
hægu broti.
Bókin er 84 síður og gefur furðu
fjölþætta mynd af Hólastað, bæði
sem lifandi skólasetri með langa
sögu og stað sem hafinn er yfir
amstur hversdagsleikans og birtist
utan allrar tímaskynjunar.
Pað sem gerir þessa bók sér-
stæða eru myndir Jóns Friðbjörns-
sonar af Hólastað á öllum
árstímum og við hin ólíkustu birtu-
skilyrði. Jón var smíðakennari við
Bændaskólann í yfir 30 ár og
áhugaljósmyndari. Af myndum
hans að dæma mætti þó frekar
halda að hann væri atvinnumaður í
greininni og hefur Hólastaður not-
ið þess. Þessar frábæru myndir
hefðu þó seint orðið aðgengilegar
almenningi nema fyrir framtak
þeirra Péturs Bjarnasonar og Gísla
Pálssonar að gefa út bók um Hóla
og leita þá jafnframt fanga hjá fjöl-
mörgum öðrum myndásmiðum,
auk þess sem fleiri lögðu til texta
en Pétur.
Úr þessu hefur orðið til falleg og
eiguleg bók, öllum til ánægju en þó
einkum velunnurum Hóla. Hún
sameinar hið tímanlega og eilífa,
birtir bæði myndir af verðlauna-
hestum Hrossakynbótabúsins á
staðnum og af Hólabyrðu og gamla
bænum á Hólum undir tvennum
regnbogum, eða myndir frá skóla-
starfinu annars vegar og samspil
ljóss og snjókomu kringum Hóla-
dómkirkju og stöpulinn við hana
að næturlagi hins vegar.
M.E.
Handbók bœnda 1992
Handbók bænda, 42. árgangur, er
komin út. Talsverðar breytingar
hafa orðið á bókinni frá undan-
gengnum árgöngum, bæði að inni-
haldi og efnisskipan. Ritstjórar
sendu með 41. árgangi bókarinnar
spurningaskrá þar sem notendur
hennar voru spurðir um álit sitt á
bókinni og hvað þeim fyndist þar
helst vanta. Reynt var að koma til
móts við óskir lesenda að því er
segir í formála.
Nú er dagatal sem áður var
fremst í Handbókinni fellt niður,
en þess í stað kemur ein opna fyrir
hvern mánuð aftast í bókinni til að
skrá upplýsingar til minnis. Er þar
tekið mið af svörum lesenda. Leið-
beiningar um einstakar greinar
landbúnaðar koma fremst. Par er
m.a. að finna nýtt efni um hey-
HANDBÓK
BÆNDA
1992
verkun í rúlluböggum og handhæg-
ar upplýsingar um tegundir og verð
búvéla á markaði. Stofnanaskráin
hefur verið aukin og flutt aftar í
bókina.
Ahugaverð nýjung í bókinni er
“Kynning á þjónustu". Par kynna
sig tólf aðilar, sem tengjast
strjálbýli og landbúnaði. Pví verð-
ur væntanlega haldið áfram eftir-
leiðis.
Handbók bænda er nú komin á
fimmta áratuginn og á sér tryggan
lesendahóp, enda þar að finna svör
við mörgu sem bændur þurfa að
leita svara við dagsdaglega í bú-
skapnum.
Ritstjórar Handbókar bænda
eru Matthías Eggertsson og Óttar
Geirsson. , T „