Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.02.1992, Qupperneq 35

Freyr - 15.02.1992, Qupperneq 35
4.'92 FREYR 163 Dýr ull Á meðan hrun hefur orðið á ullar- mörkuðum í heiminum er borgað um tuttugu þúsund krónur fyrir vissa tegund af ull. Suðurkóreanskt fyrirtæki greiddi þetta himinháa verð á upp- boði í Ástralíu að því er tímaritið Time hermir. Fyrirtækið nærþessu inn aftur. Fyrir þau hundrað kíló af ullinni góðu sem það keypti, ætlar það að framleiða 35 fataplögg sem á að selja á 950.000 kr. hvert. Ullin sem hér um ræðir, er örfín og tínd af útvöldum merinókind- um, tveggja til þriggja vetra. Kind- ur þessar eru fóðraðar á sérstakan hátt svo að ullarþræðirnir verði jafnir, og ullin er varin fyrir ryki og öðrum aðskotahlutum. Jafnvel á góðu merinófjárbúi er minna en eitt prósent af ull sem vinna má úr í þennan úrvalsflokk. Orðsending til bœnda á fjárskiptasvœðum Þeir bændur sem ætla aö kaupa líflömb í fyrsta eða annað sinn nk. haust eftir samningsbundið fjárleysi, þurfa að leggja inn skriflega pöntun á líflömbum fyrir 25. mars nk. Sauðfjársjúkdómanefnd ákveður hvaðan líflömb verða tekin. Aðeins koma þeir aðilar til greina sem lokið hafa fullnaðar sótthreinsun á fjárhúsum, hlöðum og umhverfi þeirra. Svör við pöntunum munu berast í júní nk. hvar taka má líflömb haustið 1992. Sauðfjárveikivarnir Rauðarárstíg 25 150 Reykjavík HRAUSTUR BÚSTOFN - BETRI AFKOMA FÓÐURLÝSI VIÐ MÆLUM MEÐ FÓÐURLÝSI FYRIR: HESTA, ÆR, KÝR, GYLTUR, SMÁGRÍSI, MINKA OG REFI DREIFIAÐILAR Á FÓÐURLÝSI ERU: FÓÐURDEILD SAMBANDSINS, MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR, FÓÐURBLANDAN HF. OG | KAUPFÉLÖGIN UM ALLT LAND. | o VESTMANNAEYJUM LÝSISFÉLAGIÐ HF. ___LÝSISFÉLAGIÐ HF. ^5C7 FÓÐURLÝSI 5 LÍTRAR KALDHREINSAD VIÐ 5®C VITAMIN I GRAMMI: AMIN 1500I.U. DMIN 1501.U. HITAEININGAR í LÍTRA: 9000 K.CAL. GEYMIST Á SVÖLUM OG DIMMUM STAD FRAML0ÐANDI: LÝSISFÉLAGIÐ H.F.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.