Freyr - 15.02.1992, Page 36
164 FREYR
4.'92
Aldahvörf á Skeiðum
Ljósmyndir Jóns Eirfkssonar f Vorsabœ
Útgefandi Oddvitanefnd Laugarárslœknishéraðs og
Afréttamálafélag Flóa og Skeiða. Selfossi 1991.
ALDAHVORF A SKEIÐUM
Ljósmyndir Jóns Eiríkssonar í Vorsabæ
Frey hefur borist bókin Aldahvörf
á Skeiðum sem kom út fyrir síðustu
jól. Þessi bók er sérstæð að því leyti
að í henni eru birtar um 80 ljós-
myndir sem valdar hafa verið úr
myndasafni Jóns Eiríkssonar
bónda og oddvita í Vorsabæ á
Skeiðum. Og það er þá ekkert
smáræðis safn! Um 10 þúsund Ijós-
myndir eru í því sem Jón hefur
tekið á síðustu fimmtíu árum.
Páll Lýðsson, bóndi og sagn-
fræðingur í Litlu-Sandvík ritar for-
mála að bókinni.
Jón í Vorsabæ er kunnur bóndi
og félagsmálamaður. Hann stofn-
aði nýbýlið Vorsabæ 2 og hefur
búið þar síðan. Ljósmyndun hefur
verið honum hugleikin og hann
hefur glöggt auga fyrir myndbygg-
ingu og því að grípa tækifærin.
Myndirnar í bókinni eru helst frá
daglegum störfum á Skeiðum og
nágrenni, vinnumyndir. Þær sýna
fólk að heyskap og garðyrkju,
mjólkurflutninga og vegagerð,
réttarhleðslu, húsbyggingar og
lagningu hitaveitu en einnig eru
þar myndir sem teknar eru við
hátíðleg tækifæri í sveitinni.
„Hann nær í skottið á gamla
tímanum", skrifar Páll Lýðsson,
„myndar fjallaferðir fyrir tíma
vegagerðar og fjallmannakofa,
nær myndum af mjólkurflutning-
um á sleðum. Hann myndar vél-
tækni sem nú er orðin úrelt og yrði
bráðum gleymd ef hann hefði ekki
gripið augnablikið ..."
Myndirnar í bókinni hafa heim-
ildagildi sem vex með tímanum og
þetta er eiguleg bók. T T n
Danskur plógur grefur
mengaða mold í
Térnóbíl
Hlutur Dana í hjálparstarfi EB við
að hreinsa til eftir Kjarnorkuslysið
í Térnóbíl árið 1986 er plógur af
sérstakri gerð.
Plógur þessi er þannig gerður að
hann flær af efsta lag jarðvegsins,
10 sentímetra, og grefur það hálfan
metra í jörðu niður.
Á þann hátt er efsta lag jarð-
vegsins, sem er geislamengað,
grafið svo að plöntur nái ekki til
þess. Annars menguðust þær
sjálfar með því að sjúga upp í sig
geislavirk næringarefni.
Eftir þessa jarðvinnslu er vonast
til þess að unnt sé að bjarga a.m.k.
svolitlum hluta uppskerunnar úr
hinni frjósömu, úkranisku mold.
Danskir tæknifræðingar og
smiðir í rannsóknastöðinni í Ris0
(Hrísey) og Bovlund plógsmiðj-
unni hafa teiknað og smíðað nýja
plóginn. Plógurinn hefur verið á
teikniborðinu í Ris0 lengi (Ris0
var stofnuð sem kjarnorkurann-
sóknastöð), en farið var að smíða
hann þegar EB lagði fé til þess.