Freyr - 01.10.1997, Side 5
Eg er svartsýnn á stöðu
sauðfjárræktarinnar
Viðtal við Guðjón Jónsson, bónda á Gestsstöðum í
Kirkjubólshreppi á 5tröndum
Guðjón Jónsson á Gestsstöðum
býr með sauðfé, eins og flestir
bændur á Ströndum. Hann kann góð
skil á stöðu sauðfjárræktarinnar og á
sl. sumri fóru fréttamaður Freys og
Jón Viðar Jónmundsson á hans fund
til að ræða þau mál og fleiri en fyrst
var hann beðinn um að kynna sig.
Ég er fæddur árið 1931. Foreldrar
mínir eru Jón Bjarni Jónsson og
Branddís Aðalsteinsdóttir sem bjuggu
hér. Það má segja að ég sé Stranda-
maður í húð og hár. Ég bý hér með
systur minni, Ragnheiði, auk þess
sem foreldrar okkar eru hér í heimili,
bæði komin yfir nírætt.
Hvenær tókst þú við búi hér?
Ég fór að búa sér á 7. áratugnum á
móti föður mínum. Ragnheiður,
systir mín, tók síðan við hluta hans
og nú búum við hér hvort með sinn
bústofn en sameiginlegt heimili og
hér er eingöngu rekið fjárbú eins og
víðast hvar á Ströndum.
Var þetta tvíbýlisjörð?
Já, hér áður fyrr var þetta tvíbýlis-
jörð. Það var ekki fyrr en faðir minn
hafði búið hér í nokkur ár að hann
eignast alla jörðina. Síðast bjuggu á
hinum hlutanum móðursystir mín og
maður hennar. Jörðin hefur um lang-
an aldur verið í einkaeign.
Hvað búið þið við margt fé?
Við erum bæði samanlagt með 280
fjár á fóðrum og af því lifum við en
hér eru engin hlunnindi. Fjárhúsin
eru nokkuð gömul, steinsteypt með
grindur og kallara, sem faðir minn
byggði. íbúðarhúsið er aftur nýlegt.
70.-72. '97 - FREYR - 381