Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1997, Blaðsíða 10

Freyr - 01.10.1997, Blaðsíða 10
Gildrur til talninga á gönguseiðum á leið í sjó og laxgengd upp ána þjóna mikilvœgu hlutverki við mat á ástandi laxastofita. (Ljósm. Rafn Hafnfjörð) Stangveiði á sjóbirtingi og bleikju nýtur vaxandi vinsœlda he'r á landi enda eru möguleikar til veiða víða mjög góðir og ástand stofnanna yfirleitt gott. (Ljósm. Rafn Hafnfjörð) var gott vorið 1996 og vorkoma hagstæð til landsins. Sem kunnugt er var eftirtekjan ekki í takt við vænt- ingar, einkum í smálaxi. Væntingar í stórlaxi voru litlar og þannig í takt við smálaxagengd sumarið 1996. Laxveiðin 1997 Einkenni laxveiðinnar 1997 varmik- ill breytileiki milli landssvæða og einstakra áa. Mest kom á óvart rýr smálaxagengd á Vesturlandi, þrátt fyrir að laxinn væri að jafnaði vænn. Ljóst er að endurheimta úr sjó, bæði hjá náttúrulegum stofnum og í haf- beit var einkar rýr, sem bendir til mikilla affalla á gönguseiðaárgangi 1996 eftir að í sjó var komið. Nánar verður vikið að hugsanlegum áhrifa- þáttum hér á eftir. Rýrari veiði, einkum í þeim ám sem renna beint í sjó fram, má að einhverju leyti rekja til minnkandi gengdar hafbeitarlaxa með suður- og vesturströnd landsins. Vitað er að hafbeitarlax hefur gengið í nokkrum mæli í sumar ár við Faxaflóa og nið- urstöður merkinga á árunum 1987- ‘94 hafa sýnt að 4,5% meðalhlutfall af veiði í ám á Suðvesturland var af hafbeitaruppruna, þótt hlutfallið væri verulega breytilegt milli vatns- falla, hæst í nágrenni hafbeitarstöðva en mun lægra annars staðar. Veruleg minnkun í gengd hafbeitarlaxa hlýt- ur því að koma fram í laxveiðinni. Til mótvægis má hins vegar telja þann merka áfanga að keypt voru upp lögleg laxanet í Hvalfirði og á Mýrum. Þetta hefur vafalaust skilað verulegum viðbótar laxafjölda í ár á Suðvesturlandi, einkum þó í ám við innanverðan Hvalfjörð. Aukning í Rangánum Laxveiðin 1997 hafði hins vegar einnig jákvæðar hliðar. Þar ber hæst þann merka áfanga að laxveiði í Rangánum, sem byggir að mestu leyti á laxarækt með gönguseiðum, nálgaðist 3000 laxa. Þessi árangur sýnir þá möguleika sem felast í haf- beitarsleppingum til stangaveiði, þar sem skilyrði eru ákjósanleg. Líklegt er að hafbeit af þessu tagi geti orðið mjög arðbær, þótt hefðbundin haf- beit til sölu á laxi á markað geti ekki borið sig, þar sem stangveiddur lax er 20 falt verðmeiri en matfiskur. Reynslan af Rangánum er mjög mikilvæg fyrir frekari starfsemi á þessu sviði. Komið hefur fram að hafbeitarlaxinn er jafn sprettharður og villtur lax, enda aðeins í eldisstöð sem ungviði. Hann sækir að sleppi- 386 - FREYR - 70.-72. '97

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.