Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1997, Síða 13

Freyr - 01.10.1997, Síða 13
Lífsferill laxins er bœði ífersku vatni og sjó. Að laxinum steðja margar hœttur, bœði við ferskvatns- og sjávardvöl. 1 fersku vatni getur minkur og ýmsar tegundir fugla valdið búsifjum en þegar í sjó er komið steðjar hœtta afýmsum sjávarfiskum og sjávarspendýrum. Einnig eru aðstœður til fœðunáms mjög breytiiegar í samrœmi við magn helstu fœðudýra og umhverfisþœtti sjávar. (Teikn. S. Oskarsson) áhrif að ræða vegna sveiflna í veður- fari eða langtíma þróun vegna land- eyðingar og/eða mengunar. Erlendis hafa laxastofnar farið mjög halloka vegna aukinnar byggðar, virkjana, mengunar, landeyðingar og súrrar rigningar. Þannig töpuðust laxastofn- ar úr evrópskum ám svo sem Rín og Thames fyrir hundruðum ára. Virkjanir vatnsfalla hafa skaðað laxastofna víða um heim og gengið hefur illa að endurreisa stofna eftir að þeir hafa glatast. Þar sem virkjan- ir hér á landi eru aðallega í jökulám hafa áhrif þeirra á göngustofna verið mun minni en annars hefði orðið. Súrt regn er bein afleiðing iðnað- armengunar og hefur eytt laxa- og silungsstofnum í suðurhluta Noregs og Svíþjóðar, þótt mengunarvald- amir séu mun sunnar í Evrópu. Svip- uð þróun hefur orðið í Nova Skotia í Kanada vegna mengunar frá austur- hluta Bandaríkjanna. Astandið í ferskvatnsmálum er allgott hér á landi, en nauðsynlegt er að vera vel á verði með aukinni iðnvæðingu og byggðaþróun. Ofveiði laxastofna Ofveiði er algeng í þeim löndum, þar sem laxveiðar eru leyfðar í sjó. Algengast er þá að smærri stofnar séu ofveiddir vegna mikillar sóknar í stærri stofna. Þetta vandamál þekk- ist ekki hér á landi, þar sem bæði neta- og stangveiði hefur takmarkast við ferskvatn. Þessi aðferðafræði við veiðiskap er grundvallarforsenda fyrir góðu ástandi laxastofna hér á landi. Fæðuskortur í hafinu Ljóst er að maðurinn er alltaf að fikra sig neðar í fæðukeðjunni við veiðar sínar. Þannig geta veiðar á loðnu og sfld verið í samkeppni við fæðunám laxins og ýmissa þorsk- fiska. Ekki hefur verið sýnt fram á áhrif slflcra veiða gagnvart laxi. Afrán sjávarspendýra á laxi Sem kunnug er hafa veiðar og nýt- ing sela og hvala minnkað á undan- fömum árum og fjölgun þessara teg- unda er því orðið áhyggjuefni. Þann- ig er áætlað að Grænlandssel hafi fjölgað úr tveim milljónum dýra árið 1970 í 5 milljónir árið 1995. Sam- bærileg fjölgun er einnig í öðmm sela- og hvalategundum. Vitað er að bæði selur og hnísur éta lax í sjó á 10.-12. ‘97 - FREYR - 389

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.