Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.10.1997, Qupperneq 15

Freyr - 01.10.1997, Qupperneq 15
Rauðjarpur, tinnusvart tagl og fax. Fremur góð hóf- skegg. (Ljósm. Þorkell Bjarnason) Prúð, einfext. (Ljósm. Þorkell Bjamason) Prúdleiki hrossa Islenska búféð, hverju nafni sem nefnist, er hært. Hinar margvísleg- ustu gerðir gefur þar að líta og lang- ur vegur er frá ullinni, hárum sauð- fjárins, til stuttra hára á feldi hross- anna. Samt er þetta í eðli sínu það sama, ræktað í sitt hvora áttina eftir nytjum. Hárin eru langir homþræðir mynd- aðir frá yfirhúðinni og hárrótin er í lægð sem nefnist hárslíður. í botni þess er leðurhúðamabbi er nefnist hámabbi. Því gildari sem hárin eru því lengra ná hárslíðrin inn í húðina. Þakvefsfrumur á yfirborði hárnabb- ans skipta sér og sjá þannig um lengdarvöxt hársins, sem getur orðið mjög mikill. I flestum hámm má greina tvö lög, börk og merg. Mergurinn er innst í hárinu, strengmyndaður og mismunandi að gildleika. Því gildari sem mergurinn er í hlutfalli við börkinn. því veikbyggðara er hárið. Börkurinn er gerður úr aflöngum homfrumum og myndar venjulega megnið af hárinu. Utan um börkinn er þunn himna úr plötumynduðum homfrumum sem kallast hárskel. Mjög oft era hárin lituð og stafar það þá frá litarkomum í berkinum. Litur- inn getur verið með ýmsum hætti. Stundum vantar litarkomin og þá eru hárin hvít. Með aldrinum dregur úr myndun litarefnanna. Lýsast þá hárin og verða stundum alveg hvít. Þorkell Bjarnason ráðunautur (Kallað „að hærast" eða „farinn að grána“). Hárin skiptast í tog eða þakhár og þel. A hrossum era eingöngu þakhár. Stefna háranna er mismunandi. A hálsi, brjósti, kvið og lend stefna þau aftur og niður en á limunum beint niður. Breytingar á stefnu háranna sjást greinilega, t.d. í nárum og á bringu hrossanna. Sums staðar stefna hárin í allar áttir út frá ákveðnum depli, t.d. í enni. Úr\’als taglburður. (Ljósm. Valdimar Kristinsson) Li'till prúðleiki. (Ljósm. Friðþjófur Þorkelsson) 10.-12. '97 - FREYR -391

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.