Freyr - 01.10.1997, Page 26
Frá plægingamámskeiði haustið 1994.
Gre'tar Einarsson leiðbeinir.
(Mynd: Þóroddur Sveinsson)
hafa verið mest til umfjöllunar er
ársnytin frá 4.000-5.200 kg eftir
tímabilum (ath þar er eitt tímabil frá
1.7-30.6. árið eftir). Þessi mikli
munur er vegna margra ólíkra þátta
og ástæðna. Sá einstaki þáttur sem
virðist útskýra mest þennan mun er
hlutfall 1. kálfs kvígna á tímabilinu
eins sést vel á 6. mynd.
Lækkandi lífaldur kúnna og þar
með hærri nýliðun er fyrst og fremst
vegna baráttunnar við að halda júg-
urbólgu og frumutölu niðri. í 8. töflu
er yfirlit yfir ástæður förgunar á kún-
um og þar sést að júgurbólga, en
einnig júgurslys, höggva djúp skörð
í stofninn.
Lyfja- og dýralækniskostnaður
sem sýndur er í 9. töflu stafar fyrst
og fremst af kostnaði við að halda
júgurbólgunni niðri og er kostnaður-
inn frá 0,8-1,4 kr. á hvem framleidd-
an mjólkurlítra.
í 10. töflu er síðan frjósemisyfir-
lit og í 11. töflu er yfirlit yfir kyn
kálfa og afdrif.
I tengslum við fóðrunartilraunir í
fjósinu eru tilraunakýr reglulega
vigtaðar. Á 7. mynd eru teknar sam-
an vigtanirnar þar sem kýrnar eru
flokkaðar eftir aldri (mjaltaskeið-
um). Þar sést að meðalþyngd 1. kálfs-
kvígu er ríflega 400 kg en kýr á 3. og
4. mjaltaskeiði eru væntanlega bún-
ar að ná hámarksþyngd og slaga þá
upp í 500 kg. Þyngsta kýrin vó 541
kg og var á 4. mjaltaskeiði en létt-
asta kvígan vó einungis um 350 kg.
Afurðir
Söluafurðir Möðruvallabúsins eru
fyrst og fremst mjólk og nautgripa-
kjöt. Ef litið er hins vegai' á afdrif
næringarefnanna sem bústofninn
innbyrðir er ljóst að stærsti hlutinn
verður eftir á búinu í formi mykju
(12. tafla). Mykjan er verðmætasta
aukaafurð kúabúsins og með skyn-
samlegri nýtingu sparar því stórar
upphæðir í kaupum á aðföngum í
formi áburðar eða fóðurs. Eins og
kemur fram í kaflanum um fóðuröfl-
un hér á undan (3. tafla) sparar
mykjan tugi prósenta í áburðarkaup-
um, ef halda ætti sama áburðarstigi
með tilbúnum áburði. Þó er alveg
ljóst að áburðaráhrif mykjunnar eru
oft vanmetin sem leiðir til óþarflega
mikil taps. Um 80% köfnunarefnis,
72% fosfórs og 95% kalís í fóðrinu
sem bústofninn innbyrðir endar í
mykjunni (12. tafla).
Mjólkurframleiðslan er um 170-
180.000 lítrar á ári og fer um 88%
hennar í mjólkursamlag en afgang-
urinn er notaður á búinu, aðallega í
kálfa en einnig til heimilis (13.
tafla). Á Möðruvöllum er mjólkur-
framleiðslan skráð á tvennan hátt.
Annars vegar með mjólkurmælum,
og hins vegar er skráð öll mjólkur-
notkun á búinu og magn innveginnar
mjólkur í samlag liggur ávalt fyrir
(13. tafla).
Nautakjötsframleiðslan hefur að-
allega tengst tilraunum með naut og
uxa en þar fyrir utan er að jafnaði
slátrað um 10 nautum á ári. Þetta
þýðir með öðrum orðum að um
helmingur fæddra nauta hefur verið
settur á til kjötframleiðslu. í 14.
töflu er sýnd kjötframleiðslan og
flokkun falla. Fyrir núverandi kjöt-
mat dugði að fóðra nautin á heyjum
eingöngu til þess að þau færu í hæsta
gæðaflokk en með nýju kjötmati er
nauðsynlegt að fita nautin á korni
eða kornblöndu fyrir slátrun. Annars
eru yfirgnæfandi líkur á verðfellingu
vegna of lítillrar fituhulu.
Afkoma
Eins og komið hefur fram tók RALA
við búrekstrinum á Möðruvöllum
haustið 1992 og var tækifærið gripið
til þess stokka upp og hagræða. Áf-
koma búsins frá þeim tíma til dags-
ins í dag verður að teljast viðunandi.
Árleg velta búsins er um 10-12
milljónir króna. Um 71% teknanna
eru mjólkursala. 19% kjötsala og um
10% er annað eins og húsaleiga, hey-
sala og bætur fyrir álag sem búið
verður fyrir vegna tilraunastarfsemi.
Að jafnaði hefur búið skilað árlega
um 10% rekstrarafgangi sem er not-
aður í endurnýjun véla og uppbygg-
ingu á búinu.
Þakkarord
Þessi skýrsla lýsir nokkrum niður-
stöðum áralangrar gagnaskráningar
sem starfsmenn Möðruvalla hafa
haldið til haga undanfarin ár og fá
þeir hér með bestu þakkir fyrir. Ég vil
þó þakka sérstaklega Signði Bjama-
dóttur tilraunastjóra, Laufeyju Bjama-
dóttur búfræðikandidat og Hildu
Pálmadóttur bústjóra ásamt bústjóra-
makanum Höskuldi Gunnarssyni,
auk Bjama E. Guðleifssonar, fyrir að-
stoð og yfirlestur á þessar grein.
402 - FREYR - 10.-12. ‘97