Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1997, Page 28

Freyr - 01.10.1997, Page 28
70 60 s 50 Húsdýr Móinold Heiniili Garðar Annað Lifrœn efni er tilfalla í Landnámi Ingólfs. gróðurfar merki aldalangrar búsetu og gróðurnýtingar. Óhætt er að fullyrða að þetta er einn verst fami hluti landsins í byggð hvað gróður varðar. Skógi hefur að mestu verið útrýmt. Vindur hefur náð að eyði- leggja jarðveg sem áður var gróðri klæddur og síðan er þar örfoka land. Móbergshálsar og fjöll eru nær gróð- urlaus og hraun bera rýran gróður. Þrátt fyrir ötult starf einstaklinga, skógræktarfélaga og landgræðslu- stofnana um árabil erum við enn að tapa frjósömu landi á þessu svæði. Gróðurþekjan er sífellt á undanhaldi og aðeins á friðuðum svæðum gætir árangurs baráttunnar. Náttúruperlur eins og Heiðmörk og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum bera vott um þær framfarir sem eiga sér stað við frið- un og uppgræðslu lands. Líkt og nafn samtakanna gefur til kynna er stefna þeirra að hefja upp- græðslu örfoka lands þar sem góður árangur mun blasa við, íbúum lands- ins til ánægju og hvatningar. Þrátt fyrir að Landnám Ingólfs sé aðeins um 3% af flatarmáli íslands búa þar um 180 þúsund manns eða 70% þjóðarinnar. A svæðinu eru því margar vinnufúsar hendur sem án efa munu leggja lið að endurheimta glötuð landgæði sem er fyrsta skref- ið að sjálfbærri framtíð. í takt við hringrás náttúrunnar Víða um heim gætir vaxandi vitund- ar um að nýta lífrænan úrgang sem til fellur. Víða er krafist að lífrænn úrgangur fari aftur í hina náttúrulegu hringrás. Um er að ræða húsdýraúr- gang, lífrænan úrgang frá heimilum, görðum og atvinnurekstri. í flestum nágrannaríkjum okkar er förgun slíkra efna bönnuð. Bændur þekkja glöggt verðmæti húsdýraáburðar sem næringu fyrir jarðveg enda er kúamykja ennþá nýtt í talsverðum mæli sem áburður á tún og við aðra ræktun. Rannsókn- ir hafa leitt í ljós að aðeins um 15- 25% af NPK-gildi nautgripafóðurs skilar sér í mjólkurafurðinni en lang- stærstur hluti næringarefnanna verð- ur eftir í mykjunni. Líkt og tíkast til sveita ætlar Gróður fyrir fólk að nýta þessi miklu verðmæti, húsdýraáburðinn, til upp- græðslu, auk mómoldar sem til fell- ur í Landnáminu. Árlega falla til á „Það hlýtur að vera óskynsamleg umhverfis- stefna að nýta ekki til fullnustu auðlind sem eykur frjósemi jarðvegs og ýtir undir sjálfbæra gróðurþróun í landi sem er mesta eyðimerkursvæði álfunnar." 404 - FREYR - 10.-12. '97

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.