Freyr - 01.10.1997, Side 30
Af sauðfjárrækt
á Mýja-Sjálandi
Síðastliðið haust átti ég þess kost
að komast til Nýja Sjálands og
meðal annarrs dvelja og starfa við
hlið þarlendra bænda. í þessari grein
er ætlun mín að skýra stuttlega frá
dvöl minni hjá einum bændanna,
Kevin Poul, sem rekur sauðtjárbú á
Suðurey Nýja Sjálands. En fyrst er
ætlun mín að rekja stuttlega þær
breytingar er orðið hafa á ytri að-
stæðum í nýsjálenskum sauðfjárbú-
skap undanfarin ár.
Sögubrot
Nýsjálenskur sauðfjárbúskapur hef-
ur frá fomu fari einkennst af stórum
búum sem notið hafa lítilla styrkja
frá ríki, samanborið við sauðfjárbú-
skap í samkeppnislöndum.
A áttunda áratugnum varð þó
breyting á en þá jukust styrkir til ný-
sjálenskrar sauðfjárræktar verulega
og má í því sambandi nefna að um
25% afurðaverðsins var styrkur,
veittir voru styrkir til fjölgunar sauð-
fjár og lágmarksverð var á ull en allt
þetta stuðlaði að nokkuð tryggri af-
komu sauðfjárbænda.
Árið 1984 blasti þjóðargjaldþrot
við Nýsjálendingum og í kjölfarið
greip þáverandi ríkisstjóm til mjög
harkalegra aðhaldsaðgerða sem með-
al annars bitnuðu mjög illa á sauð-
fjárbændum. Segja má að á einni
nóttu hafi styrkir til landbúnaðar
verið afnumdir.
Áhrif þessara breytinga urðu gíf-
urlegar meðal sauðfjárbænda því að
ekki var nóg með að afurðaverð
hríðfélli, verðbólgan rauk upp í 14-
17% í kjölfarið, vextir á langtíma-
Finnbogi
Magnússon |
---------
Lágafelli, Æ.'éFjm
A-Landeyjum ' j'|
lánum fóru í 17-18% og yfirdráttar-
og dráttarvextir ruku upp í 30%.
Því skal engan undra að mikill
fjöldi bænda varð gjaldþrota eða
gekk í gegnum nauðasamninga
fyrstu árin á eftir.
Afurðaverð hélst áfram lágt eftir
aðgerðimar 1984 fram til ársins
1992 er nýr aðili (Fortex) kom inn á
kjötkaupendamarkaðinn, en þessum
markaði hafði fram að því verið
stjómað af fáum stómm afurða-
stöðvum. Fortex bauð mun betra
verð en fyrirtækin sem fyrir voru og
fékk því umtalsverð viðskipti yfir til
sín. En því miður fyrir bænduma
varð Fortex gjaldþrota eftir aðeins
þrjú ár, vegna birgðasöfnunar.
Meðan Fortex var á markaðnum
höfðu hinar afurðastöðvamar neyðst
til að hækka verð sín til samræmis
við Fortex, sem hafði leitt til skulda-
söfnunar hjá þeim. Því gripu slátur-
húsin til þess ráðs, er Fortex fór í
gjaldþrot, að lækka afurðaverð til
bænda um fjórðung. Jafnframt hafa
margar afurðastöðvanna krafist þess
að innleggjendur leggi hlutafé í fé-
lögin sem nemur allt að 150 kr. á
hverja ásetta á. Engin arður eða at-
kvæðisréttur fylgir þessu hlutafé en
Frá vinstri: Kevin, Regan, Simon, Ginny og Bess.
406 - FREYR - 10.-12. '97