Freyr - 01.10.1997, Síða 33
Sjálffóðrun sauð-
fjár á rúlluböggum
Tími er peningar. Að spara tíma
við dagleg verk er hluti af eðli-
legri hagræðingu, svo lengi sem
breytingamar kosta minna en þær
spara. Það hve hátt má meta sparað-
an tíma til fjár er líka háð því til
hvers hinn sparaði tími nýtist. Hver
verður því á endanum að reikna fyrir
sig. En í þeirri trú að vinnuhagræð-
ing við fóðrun sauðfjár væri almennt
nokkurs virði, var lagt út í það til-
rauna- og þróunarstarf sem nú verð-
ur sagt frá.
Þar sem um tveir þriðju hlutar
heyfengs landsmanna eru verkaðir í
rúlluböggum hljóta aðgerðir til hag-
ræðingar við fóðrun að miðast að
verulegu leyti við þá verkunarað-
ferð. Veturinn 1994-95 hafði Bú-
tæknideild Rala í samvinnu við
Bændaskólann á Hvanneyri til próf-
unar gjafagrind fyrir rúllubagga er
smíðuð hafði verið hjá Vírneti h.f. í
Borgamesi eftir hugmynd Magnúsar
bónda í Hraunsmúla í Kolbeins-
staðahreppi. Fyrstu athuganir, er
gerð var grein fyrir á Ráðunautafundi
1996 (2) bentu til þess að hægt væri
að ná svipuðum árangri við „sjálf-
fóðrun" úr gjafagrind eins og með
hefðbundnum aðferðum við fóðrun
á garða. Til þess að þróa aðferðina
áfram, m.a. til að draga meira úr
slæðingi, og bera hana ítarlegar
saman við hefðbundnar fóðrunarað-
ferðir, var ákveðið að leggja út í
viðameiri tilraunir veturinn 1995-
96, sem Rala, Bændaskólinn og Vír-
net h.f. stóðu sameiginlega að. Verk-
efnið var styrkt af Rannsóknaráði
Islands og Framleiðnisjóði.
Efni og aðferðir
í tilraununum var rúlluhey gefið í
þrjár mismunandi jötugerðir:
Garði A: Hefðbundinn garði með
slæðigrindum.
Grind B: Gjafagrind sem hönnuð er
fyrir einn heilan rúllubagga. Grindin
er ferköntuð, tvær hliðar hennar
fastar, en hinar tvær geta gengið inn
og þrengist því grindin smám saman
eftir því sem heyið ést úr henni.
Þessi útfærsla hefur verið seld hjá
Vírneti h.f. um nokkurt skeið.
Grind C: Ný gerð gjafagrindar, eins
uppbyggð og grind B, nema hvað
lausu hliðamar eru tvöfalt lengri, en
föstu hliðamar vom hafðar lokaðar.
Þegar bagginn var gefinn í grind C
var hann skorinn niður í miðju, yfir-
borðið jafnað og slæðigrindur, líkar
þeim sem gjaman eru í görðum,
lagðar ofan á. Þessi útfærsla hefur
verið endurbætt frá því að tilraunim-
ar vom gerðar og nokkur eintök af
henni hafa verið framleidd nú í haust
hjá Vímeti h.f.
I 1. töflu er yfirlit um tilrauna-
skipulagið. í Tilraun I, sem var gerð
í fjárhúsunum á Hvanneyri á tíma-
bilinu 2. desember '95 til 2. maí '96,
vom þrír meðferðarhópar, hver um
sig með 53 ám. Hópur 1-1 var fóðr-
aður á rúlluheyi eftir átlyst á garða,
tvisvar á dag. Hópur 1-2 hafði frjáls-
an aðgang að rúllum í gjafagrind B,
og var rúllan endumýjuð þegar að-
eins vom eftir um 5% leifar. Hópur
1-3 fékk sömu meðferð og hópur 1-2,
nema hvað rúllan var endumýjuð
þegar um 15% leifar voru eftir, en
æmar höfðu þó áfram aðgang að
leifunum í nokkum tíma eftir gjöf.
Aætlað meðal-jöturými við gjafa-
grindurnar (hópar 1-2 og 1-3) var um
11 cm á kind, en um 40 cm á garð-
anum (hópur 1-1).
Tilraun II var gerð í fjárhúsunum
á Hesti á tímabilinu 19. febrúar til
29. apríl ’96, en áður höfðu þar verið
gerðar athuganir sem leiddu til þró-
unar á gjafagrind C. I tilrauninni voru
þn'r meðferðarhópar, II-1 (48 ær), II-
2 (56 ær) og II-3 (64 ær). Hópur II-1
var, rétt eins og hópur I-1, fóðraður á
rúlluheyi eftir átlyst á garða, tvisvar
á dag. Hinir tveir hópamir fengu
rúllumar í gjafagrind af gerð C, með
meðaljöturými 11 (hópur II-2) og 9
(hópur II-3) cm á kind.
Þess var gætt í báðum tilraunun-
um að ekki væri munur á heygæðum
milli meðferðarhópa. Eini fóðurbæt-
irinn sem gefinn var í Tilraun I var
sfld, um 200 g/kind/dag, á tímabil-
unum 5. -19. desember og 9. aprfl til
2. maí, en í Tilraun II var gefíð fiski-
mjöl, að meðaltali um 75 g/kind/dag
síðustu 3 vikur tilraunarinnar.
Niðurstöður, umræður og
ályktanir
I 2. töflu er niðurstöðum um át er
varða Tilraun I skipt niður í þrjú
1. tafla. Skipulag Tilrauna 1 og II
Tilraun I Tilraun 11
Meðferðarhópur i-i 1-2 1-3 11-1 II-2 II-3
Jötugerð* Garði A Grind B Grind B Garði A Grind C Grind C
Meðaljöturými á kind, cm 40 ii ii 40 11 9
Leifar við gjöf (ca.) 10% 5% 15% 10% 15% 15%
a Sjá skýringar í texta.
10.-12. '97 - FREYR - 409