Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1997, Síða 36

Freyr - 01.10.1997, Síða 36
Grind C. Nýjasta útgáfan afgjafa- grindumfrá Vírneti hf. sem var endur- bœtt í samvinnu við bœndur. tilvikum er í raun verið að nota tímann sem hver kind hefur að- gang að þokkalega fersku fóðri sem stjórntæki á átið. Af ýmsum erlendum rannsókna- niðurstöðum (3) má álykta að 6 klukkustunda áttími á sólarhring dugi og vel það í langflestum tilvik- um, sem þýðir að fjórðungur fjárins þarf að komast að í einu. Ef hver kind þarf 40 cm jötupláss við át ætti samkvæmt þessu 10 cm jötupláss á kind að duga til að hver kind geti étið þegar henni hentar, ef við göng- um út frá því að það skipti ekki máli hvenær sólarhringsins sé étið, og að nægt, þokkalega ferskt, fóður liggi alltaf fyrir. Af niðurstöðum þeirra tilrauna sem hér hafa verið kynntar má álykta að þessi tilgáta geti staðist á þeim tímabilum sem fóðurþatfir eru í meðallagi eða minni. Tíu til tólf sentimetrar má því, undir öllum venjulegum kringumstæðum, teljast raunhæf ráðlegging um lágmarks- jöturými fyrir hverja fullorðna á við sjálffóðrun stærstan hluta vetrarins. Þegar hins vegar kemur fram yfir miðja meðgöngu og sverleiki ánna eykst, fóðurþarfir vaxa, og áthraði minnkar vegna plássþarfa fósturs, virðist ráðlegt að hækka lágmarkið upp í fimmtán sentimetra. Sjálffóðrun sauðfjár á rúllubögg- um virðist óneitanlega íhugunar- verður valkostur fyrir þá fjárbændur sem sjá sér ávinning í að draga úr hinni daglegu vinnu við fóðrun. Þró- un Vímetsmanna á gjafagrindunum í góðri samvinnu við bústjóra og fjár- menn á Hesti og Hvanneyri, og áhugasama bændur, hefur leitt til mjög viðunandi lausna á tæknileg- um vandamálum, þar á meðal slæð- ingnum. Enn er þó verið að þróa þessa tækni, og reynsla bænda ásamt vonandi ítarlegra tilraunastarfi verð- ur að skera úr um framhaldið. Ekki er hægt að ljúka þessu spjalli án þess að ræða hvemig sjálf- fóðrun af þessu tagi getur fallið að skipulagi fjárhúsa og vinnu í þeim annarri enn þeirri er tengist fóðrun. Ljóst er að hið hefðbundna „garða og króa“-skipulag yrði að víkja a.m.k. að einhverju leyti, og er það mat höfundar að ekki yrði sérstök eftirsjá að því sé litið til möguleika á vinnuhagræðingu við ýmiskonar fjárrag sem mundu skapast ef „sveigjanlegri" innréttingar væm notaðar. Ekki má þó gleyma þeirri staðreynd að á sauðburði þarf aukið jötupláss og sérstakar stíur fyrir lambær. Með því að halda eftir hluta af upprunalegum görðum þar sem það á við, og/eða koma upp sérstakri sauðburðaraðstöðu í hlöðum má leysa þessi mál á viðunandi hátt í hverju tilviki, sé þess gætt að hugsa dæmið í heild og nota ímyndunar- aflið. Sagt verður frá framkvæmd af þessu tagi í Frey á næstunni og því verður látið staðar numið hér að sinni. Helstu heimildir: (1) Grétar Einarsson, 1976. Vinnurann- sóknir í fjárhúsum. I. Vetrarhirðing. Fjölrit Rala nr. 4. Bútæknideild, Hvanneyri. (2) Jóhannes Sveinbjömsson 1996. Samanburður á fóðrunaraðferðum fyrir sauðfé. í: Ráðunautafundur 1996. Rala og BÍ, 1996, s. 157-167. (3) Jóhannes Sveinbjömsson, 1997. The effect of ad lib. silage feeding systems on ewe performance and floor wastage. Ritgerð til M.Sc. prófs við Landbúnaðarháskólann í Uppsölum, 12 s (handrit). (4) Ólafur Guðmundsson, 1971. Dif- ferent types of mangers and com- parison of selffeeding and daily feeding. Symposium on „the management of sheep at lambing time in cold wet climates" (handrit). (5) Stefán Sch. Thorsteinsson & Sigur- geir Þorgeirsson, 1989. Winterfeed- ing, housing and management. I: Reproduction, Growth and Nutrition in Sheep. Dr. Halldór Pálsson memorial publication (ritstj. Ólafur R. Dýrmundsson & Sigurgeir Þor- geirsson). Rala og BI: s. 113-145. 412-FREYFt- 70.-12. '97

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.