Freyr - 01.10.1997, Síða 40
Svína- og alifuglakjöt
á heimsmarkaði
Útdráttur úr erindi yfirmanns stefnumótunarmála fyrir svínakjöt
hjá Meat and Livestock Commission, Mick Sloyan flutt á MEAT
'97 ráðstefnunni 16. október s.l í London sem haldin vará
vegum Agra Europe.
Samkvæmt nýjustu hagtölum frá
FAO (Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna) var
heildarneysla á kjöti í heiminum yfir
200 milljón tonn árið 1995. Svína-
kjöt í sinni margvíslegustu mynd, frá
svínakjöti og beikoni til fjölbreytts
úrvals af unnum vörum, er lang mik-
ilvægasta kjötið með 41% markaðs-
hlutdeild. Það er meiri hlutdeild en
nauta- og kálfakjöt sem höfðu 26%
markaðshlutdeild og alifuglakjöt
með 22% árið 1995.
Svínakjötsmarkaðurinn
Þróun síðustu 10 ára hefur verið sú
að neysla á kjöti í heiminum hefur
verið að aukast. Frá árinu 1985 til
ársins 1995 hefur neyslan aukist um
tæpan þriðjung. Svína- og alifugla-
kjöt eiga stóran þátt í þessari miklu
aukningu, en neysla á svínakjöti hef-
ur aukist um 40% og á alifuglakjöti
um 50%.
Jafnvel þótt gert sé ráð fyrir
skekkjum í opinberum hagtölum er
aukningin í neyslu og framleiðslu á
svínakjöti veruleg. Þó hafa ekki öll
svæði heims þróast eins. Asía hefur
vaxið mest á svínakjötsmarkaðnum
síðustu 10 árin. Tölumar eru svo
sannarlega sláandi. Áætluð fram-
leiðsla stærstu svæðanna er 44 millj-
ón tonn af svínakjöti á ári sem er
næstum þreföld framleiðsla ESB og
rúmlega helmingur heimsframleiðslu.
Neyslan í þessum löndum hefur
fylgt framleiðsluaukningunni og
stundum gott betur. Það hefur orðið
hröð aukning í framleiðslu og neyslu
í Indónesíu, Filppseyjum, Suður-
Kóreu en minni í Taiwan.
í Asíu gnæfir Kína yfir aðrar
þjóðir. Eins og áður verður að hafa í
huga mögulegar skekkjur í opinber-
um hagtölum, en tölumar fyrir Kína
em einmitt líklegar til að vera óná-
kvæmar. Engu að síður er hlutur
Kína sem framleiðandi og neytandi
yfirþyrmandi. Samkvæmt hagtölum
bandaríska landbúnaðarráðuneytis-
ins hefur framleiðsla og neysla á
svínakjöti meira en tvöfaldast síð-
ustu 10 árin og árið 1995 var hún
áætluð 36,4 milljón tonn.
Ástæðan fyrir þessum hraða vexti
er fólksfjölgun og aukin neysla á
hvem íbúa. I Kína hefur fólki fjölg-
að um rúmlega 200 milljónir síðustu
10 árin og er þjóðin núna 1.232
milljónir. Þó er það samt svo að
stærsti áhrifavaldurinn er aukning
neysluá íbúa sem tilkomin er vegna
aukinna tekna einstaklinganna. Síð-
ustu ár hefur Kína gengið í gegnum
miklar efnahagslegar breytingar sem
hafa ýtt undir markaðsvæðingu.
Þetta hefur stuðlað að auknum hag-
vexti sem gerir það að verkum að
verg þjóðarframleiðsla hefur aukist
að meðaltali um rúmlega 11 % á ári á
síðustu fimm árum. Samanborið við
þetta óx verg þjóðarframleiðsla um
1,5% á ári í ESB-löndunum. Flag-
vöxtur annarra landa í Asíu hefur
verið næstum jafn mikill og í Kína.
Samt hægðist á vextinum á síðasta
ári, lönd eins og Indónesía, Malasía,
Suður-Kórea, Taiwan og Tæland hafa
öll notið hagvaxtar á bilinu 6-8% á
ári síðustu fimm ár. I Japan og á Fil-
ippseyjum hefur hins vegar hægt
töluvert á hagvextinum.
Á hinum enda heimsmarkaðarins
fyrir svínakjöt er Austur-Evrópa og
lönd fyrrum Sovétríkjanna. I þessum
löndurn hafa efnahagsbreytingamar
líka verið miklar en niður á við og
leitt til samdráttar á markaðinum.
Snögg umskipti frá miðstýrðu hag-
kerfi til kerfis sem stjómast meira af
markaðslögmálum hafa haft umtals-
verðar og oft sársaukafullar breyt-
ingar í för með sér á landbúnaðar-
framleiðslu þessara landa og þá sér-
staklega kjötframleiðslu. Sem dæmi
má nefna að svínakjötsneysla og
-framleiðsla dróst saman um þriðj-
ung á árunum 1987 til 1995.
Annars staðar í heiminum hafa
breytingar ekki verið jafn miklar.
Þróunin í USA hefur verið sú að
framleiðsla hefur aukist hraðar en
neysla og er það vegna mikilla fjár-
festinga að undanfömu í verk-
smiðjubúskap. I Suður-Ameríku vex
neysla svínakjöts samhliða fólks-
fjölgun en svínakjötið heldur sínu
416-FREYR- 10.-12. '97