Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1997, Síða 43

Freyr - 01.10.1997, Síða 43
Mjaltakerfið Hvað er venjulega að? Isænska blaðinu Husdjur nr. 10., 1997 er grein rituð af Friede- mann Ludtke. Þar segir af reynslu Gunillu Hugsén, sem Iítur eftir og gerir við mjaltavélar í Svíaríki. Ekki er ólíklegt að eitthvað séu vandamálin svipuð hér á landi. Greinin hljóðar svo í lauslegri þýðingu. Gunilla Haugsén hefur mikla reynslu af ástandi mjaltakerfa eftir fimmtán ára starf á þessum vettvangi og hún er ekki í neinum vafa um svarið. Of afkastalítil mjaltakerfi Það er mjög algengt að mjaltakerfi séu með of þröngar sog- og mjólkur- lagnir og of litlar sogdælur. Mjalta- kerfið nær ekki að fjarlægja mjólk- ina á þeim stutta tíma sem mjalta- vakinn starfar. Afleiðingin verður sú að sogsveiflur myndast vegna mjólk- urtappanna í rörunum. Vandamálið fer vaxandi með aukinni nyt. Þá er það ekki óalgengt að tíu til tuttugu ára gamlar mjólkur- og soglagnir séu lengdar, þegar fjós eru stækkuð, án þess að afköst mjaltakerfanna séu aukin. Sogskiptar Regluleg hreinsun sogskipta er það sem Gunilla vill hafa í fyrirrúmi. Það þarf að hreinsa þá einu sinni í mánuði en er gert miklu sjaldnar. Gott verk- færi í það er tannbursti. Þá má einnig blása úr þeim með þrýstilofti. Soglögnin Algengt er að afköst mjaltakerfa rými vegna óhreininda í soglögnum, leka eða slæmrar hönnunar. Það er ekki óalgengt að kerfm hafi aðeins hálf afköst vegna óhreininda í sog- lögnum. Sogslöngur og soglagnir þarf að þvo öðm hvoru. Reglan þarf að vera sú að gera það minnst árlega GuniIIa Hugsén mœlir afköst sog- dœlu, sem átti að ajkasta 1.000 l/mín. en reyndist aðeins dœla 500 l/mín. og alltaf ef maður veit að mjólk hef- ur komist í sogkerfið. Mjólk kemst í sogkerfið, rifni spenagúmmi eða þegar mjólkað er með vélfötu og hún veltur um eða yfirfyllist. Sogjafnarnir Þá þarf að skoða og þrífa reglulega. Gömlu lóðaventlamir geta farið að vinna vitlaust séu þeir óhreinir og það sama gildir um himnusogjafnana. Molar Rlý landbúnaðarstefna ESB Yfirmaður landbúnaðarmála í Evr- ópusambandinu, ESB, Franz Fischler, hefur kynnt ný áhersluat- riði sambandsins í landbúnaði. þau em: • Bætt samkeppnisstaða landbún- aðarins í ESB. • Tryggari afhending og aukin gæði búvara. Sogskiptinn þarf að hreinsa einu sinni í mánuði. Einfalt er að gera það með tannbursta. Júgurheilbrigði Eitt atriði leggur Gunilla Hugsén mikla áherslu á. Þegar hún skoðar mjaltakerfi vill hún að sá sem mjólk- ar sé með henni í verki svo hægt sé að gera honum grein fyrir því sem er að og hvað hann getur gert sjálfur. Hún hefur einnig orðið vör við tregðu bænda við að ræða sín á milli um júgurheilbrigði kúnna. Það lítur út fyrir að bændur veigri sér við að ræða um vandamál varðandi júgur- heilsu kúnna við utanaðkomandi að- ila, segir hún. Þetta vandamál þurfa bændur að yfirstíga. Þýðing: Sigtryggur Björnsson • Lífskjör fólks sem starfar við landbúnað verði tryggð. • Tekið verði aukið tillit til um- hverfissjónarmiða við búvöm- framleiðslu. • Reglugerðir um stjóm fram- leiðslunnar verði einfaldaðar. Áhugasömustu ESB-löndin um endurbætur á landbúnaðarstefnu sambandsins em England, Svíþjóð, Danmörk og Holland en tregust eru Þýskaland, Belgía og Austurríki. (Bondevennen nr. 40/1997) 10.-12. ‘97 - FREYR -419

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.