Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.2004, Side 2

Freyr - 01.06.2004, Side 2
Molar Bújörðum í Danmörku HEFUR FÆKKAÐ UM HELMING Á 20 ÁRUM Um það bil önnur hver bújörð í Danmörku hefur verið tekin úr rekstri eða lögð undir aðra jörð sl. 20 ár. Þróunin í dönskum land- búnaði hefur öll verið í áttina að færri en stærri rekstrareiningum á þessum tíma og spáð er að sú þróun sé langt I frá til lykta leidd. Tækniframfarirnar hafa gert þetta mögulegt og hagkvæmni við stækkun búanna er óum- deild. Árið 2002 voru um 50 þúsund býli I rekstri í Danmörku en árið 1982 voru þau rúmlega 112 þús- und. Á sama tíma hefur land í rækt dregist saman um 7,7 %. Mest er fækkun býlanna á Borgundarhólmi, eða 60%, og á Fjóni um 55%. Það eru einkum býli af meðalstærð sem hverfa, en þau eru of stór til að vera tómstundabýli en of lítil til að vera með eigin rekstur. Þá gerist það annað hvort að búrekstri er hætt á þeim eða þau eru lögð undir aðra jörð en heimildir til að sameina jarðir hafa verið rýmk- aðar. Fækkun býla er minnst á Sjá- landi eða aðeins um þriðjung. Það sem veldur því er að mikil eftirspurn er meðal fólks sem Altalaö á kaffistofunni Spámaður í sínu föðurlandi Eftirfarandi vísu orti Eysteinn G. Gíslason í Skáleyjum að gefnu tilefni: Góð erflíkin gefin mér úr grófu ullarbandi. Spámaður ég orðinn er í eigin föðurlandi. stundar vinnu sína í borgum og bæjum, svo sem í Kaupmanna- höfn, að stunda búskap I hluta- starfi með launaðri vinnu. í sam- ræmi við það eru bújarðir á Sjá- landi að meðaltali minnstar í landinu. Áætlað er að eftir 15 ár verði einungis 30 þúsund bújarðir eftir í Danmörku og jafnframt enn stærri að meðaltali en nú. Nú er meðal svínabú með um 1000 grísa framleiðslu, en því er spáð að eft- ir 15 ár verði þeir 4000. Jafnframt er því spáð að ræktunarland á jörð verði þá um 160 hektarar en eru nú 87 hektarar. Aðal áhyggju- efni Dana í þessu sambandi er ráðstöfun á svínaskítnum á stór- um svínabúum en strangar reglur gilda um að svínabú hafi nægt land undir skítinn. (Landbruksavisen nr. 41/2003) Áætlunum um erfða- BREYTT HVEITI FRESTAÐ Bandaríska erfðatæknifyrirtæk- ið Monsanto hefur hætt, a.m.k. um sinn, þróunarvinnu sinni við að setja á markað erfðabreytta hveitiyrkið Roundup Ready Wheat. Yrkið hefur mætt andbyr á öllum mikilvægum hveitimörk- uðum og fyrirtækið telur verkefn- ið ekki munu skila þeim hagnaði sem að er stefnt. Opinberlega ber Monsanto því fyrir sig að hveitiræktun skili minni hagnaði en aðrar tegundir, en ákvörðunin um að hætta þró- unarvinnunni var tekin eftir við- ræður við stóra viðskiptavini fyrir- tækisins. Hveitiræktendur víða um veröld óttast að erfðabreytt hveiti verki eins og rauð dula á hveitikaupendur um allan heim. Monsanto fór fram á algjöran stuðning viðskiptavina sinna á árlegum fundi hveitiræktenda í Atlanta nýlega sem og af hálfu Samtaka hveitiræktenda í Bandaríkjunum. Þennan stuðn- ing fékk fyrirtækið ekki. „Roundup Ready Wheat“ er ætlað að verða fyrsta erfða- breytta hveitiyrkið á almennum markaði, en það er þolið gegn ill- gresiseyðingarefninu Roundup. Stjórnendur fyrirtækja í banda- rískum hveitiiðnaði hafa hvað eft- ir annað varað við þvi að mikil- vægir erlendur hveitikaupendur hætti að kaupa bandariskt hveiti ef erfðabreytt hveiti verði sett á markað. Þessi gagnrýni er einkum hörð innan ESB en lönd þess keyptu bandarískt hveiti fyrir 220 milljón dollara árið 2002. Þá eru Japanir einnig mjög andsnúnir erfða- breyttu hveiti. Bandarísk fyrirtæki, sem kaupa og mala hveiti, hafa einnig lýst sig tortryggin gagnvart þessu yrki og samkvæmt könnunum er bandarískur almenningur tor- tryggnari gagnvart erfðabreyttu hveiti en t.d. sojabaunum eða maís. Þá telur Hveitiráð Kanada, sem er stærsta hveitiviðskiptafyr- irtæki heims, að 80% hveitikaup- enda hafni erfðabreyttu hveiti. Þetta fyrirtæki var fyrsta stóra fyrirtækið á hveitimarkaðnum, sem opinberlega hafnaði erfða- breyttu hveiti. Þróunarvinnu við Roundup Ready hefur nú verið stöðvuð, uns viðhorf til þess verða já- kvæðari. i staðinn mun fyrirtækið leggja áherslu á erfðabreyttar tegundir sem meiri sátt er um, svo sem sojabaunir og baðmull. (Landsbygdens Folk nr. 20/2004). 12 - Freyr 5/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.