Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2004, Blaðsíða 13

Freyr - 01.06.2004, Blaðsíða 13
gróðri. Væntanlega þarf sérstak- lega að hafa auga með svæðum þar sem svínaskít er dreift og sauðfé beitt á svæðið eða fóðrið gefið sauðfé. Sínk Zn Meðalmagn sínks í jarðskorp- unni er 70 mg/kg en að meðaltal- i 100 mg/kg í basalti (6) og mun vera á því róli i íslensku bergi (5), breytileikinn er þó mikill eða 70 - 200 mg/kg. Sínk, sem losnar úr bergtegundum við veðrun, binst við lífræn efni jarðvegsins og er bindingin mjög föst við hátt sýr- ustig eins og raunar á við um alla þunga málma. Sínk er snefilefni og í jurtum er skortur helst í ávöxtum en einnig í kartöflum. Skortur er þó sennilega ekki til á Islandi. Skaðleg áhrif á jurtir koma fram þegar sínkmagn í þeim fer í 200 - 400 mg/kg en í ís- lensku grasi fúndust að meðaltal- i 22 - 39 mg/kg, mismunandi eft- ir stöðum en mest mældist 112 mg/kg (2). Þar sem allmikið sínk getur ver- ið i íslensku bergi má búast við að magn í jarðvegi sé oft nálægt þýsku forvamargildunum, eins og hinar fáu greiningar á íslenskum jarðvegi benda til (3) og fram kemur í 3. töflu. Það er þvi rétt að fara gætilega með viðbót. Sínk er notað í ryðvamarefni og er einn mest notaði þungi málmurinn. Sínk berst þó ekki auðveldlega á ræktunarland, helst með skólpi og seyru. Vandamál vegna of mikils sínks í jarðvegi er að mestu bund- ið við námusvæði, iðnaðarsvæði og innan þéttbýlis er sínk í jarð- vegi oft meira en í strjálbýli. NikkelNi Magn nikkels í bergi er mjög breytilegt. I basalti, sérstaklega í ólivín basalti, getur nikkelmagn verið mjög hátt, 100 til yfir 2000 mg/kg (5 og 6) og gæti leitt til Ni 4. tafla. Kadmíum (Cd) (mg/kg) og sýrustig (pH) í jarðvegi eftir áburðarmeðferð og dýpt. Sýni úr tilraun með mis- munandi köfnunarefisáburð nr. 19-54 á Skriðuklaustri. Ár- legur fosfórskammtur frá 1954 til 1996 30,6 kg/ha. (4). Dýpt sm Enginn áburður 120 N Kjami 120 N ammóníum súlfat 121 ka spalt 3 N Ik- pétur Cd pH Cd pH Cd pH Cd pH 0-5 0,2 6,3 0,8 5,8 0,5 3,8 1,0 6,9 5-10 0,1 6,7 0,4 6,9 0,8 4,4 0,4 7,2 10-20 * 6,9 0,3 7,3 0,5 6,2 0,1 7,2 * Ekki greinanlegt gilda í jarðvegi sem em yfir þýsku forvarnargildunum. Magn í ís- lenskum jarðvegi er ekki þekkt en í grasi fannst að meðaltal- i 0,7 - 3,0 mg/kg og hæsta gildi var 7,1 mg/kg (2). Eituráhrifa fer fyrst að gæta ef magn þess í plönt- um fer yfir 11-30 mg Ni/kg (6). Nikkel berst með loftmengun, skólpi og seyru og því sennilega mjög lítið í íslenskt ræktunar- landi. Aukningu á nikkel í jarð- vegi er því frekar að vænta í þétt- býli en í dreifbýli. Aðrir þungir málmar Kvikasilfur og króm em málm- ar sem lítið eða ekkert er vitað um í íslenskum jarðvegi. Kvika- silfur binst mjög fast við lífræn efni jarðvegsins og þar sem ís- lensk ræktunarjörð er yfirleitt með mikið af lifrænum efnum er líklegt að það, sem í jarðveginn berst, bindist en fari ekki áfram í næringarkeðjur. Kvikasilfur er mjög eitrað, sérstaklega nokkrar lífrænar bindingar, og er því mjög varasamt. Einungis mjög lítið magn getur mengað stórt svæði. Er hægt að yfirfæra EVRÓPSKAR VIÐMIÐANIR? Oft er sagt að íslenskur jarðveg- ur sé mjög ólíkur jarðvegi ná- grannaþjóðanna og þá er eðlilegt að spurt sé hvort hægt sé að notast við viðmiðanir frá Evrópu. Þessu er ekki auðsvarað en benda má á að: * Islenskur jarðvegur inniheldur að jafnaði mikið af lífrænum efnum sem binda mörg skaðleg efni mjög fast. * Islenskur jarðvegur inniheldur mikið af jámsamböndum sem binda þunga málma þannig að þeir eru ekki teknir upp af gróðri. * Sýmstig íslensks jarðvegs er að jafnaði frekar hátt. Á móti kemur að: * Blöndun efstu sentimetra jarð- vegs er hæg á Islandi nema í ökmm og görðum. Tún eru sjaldan unnin og stórar jarð- vegslífverur, stórir ánamaðkar, eru sjaldgæfir. Því er líklegt að skaðleg efni, sem berast á yfir- borð, bindist þar og geti borist með ryki eða jarðvegsmengun í fóður, ekki síður en með upp- töku jurta. * Islenskur jarðvegur er mjög léttur í sér og því þarf minni viðbót til að auka styrk hlut- fallslega. I Evrópulöndum er miðað við að í plægðu lagi akra Freyr 5/2004 - 13 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.