Freyr - 01.06.2004, Side 20
Alls eru 15 aðallitir I islenska hestinum; jarpt, brúnt, rautt, moldótt, leirljóst,
hvitingi, bleikálótt, fifilbleikt, móálótt, vindótt, grátt, litförótt, glóbrúnt, glójarpt
og glóbjart. Auk þess koma fyrir skjótt og slettuskjótt með aðallitunum, 45
stakir litir alls.
útrýmdu menningu fyrri íbúa svo
rækilega að öll ömefni á eyjunum
í dag eru norsk. Þess vegna má
telja Hjaltlandshestinn norskan.10
Almennt er álitið að íslenski
hesturinn hafi komið hingað til
lands um landnám og ekki er vit-
að um neinn innflutning á hross-
um hingað síðan.
I Landnámu er getið um einstaka
hesta sem komu til landsins um
landnám. Þar er sagt írá Flugu sem
kom með skipi í Kolbeinsárós og
týndist í Brimnesskógum. Þórir
dúfunef á Flugumýri keypti vonina
í Flugu og fann hana seinna. Fluga
var allra hrossa skjótust.
Undan Flugu kom Eiðfaxi. Hann
var fluttur til Noregs og varð sjö
manns að bana við Mjösa á einum
degi og lét lífíð þar sjálfúr."
I Þorskfirðinga sögu er sagt frá
Gull-Þóri sem átti gauskan
(sænskan) hest sem var hlaupari
og hét Kinnskær. Hann var alinn á
komi vetur og sumar. Þórir reið
þessum hesti yflr Þorskaíjörð,
hvort sem var flóð eða fjara, og
var hesturinn mikil gersemi.
Nafnið Kinnskær bendir til að
hesturinn hafi verið með hvítar
(skærar) kinnar. Þá hefur hann
verið slettuskjóttur, með hvítt höf-
uð upp fyrir augu og mikið hvítt á
kvið.12
Hestalitir
Margir litir eru til í íslenska
hestinum. Islendingar virðast hafa
lagt mikið upp úr því að eiga hesta
með fallega liti. í Laxdælu er sagt
frá hestum Bolla Þorleikssonar
sem voru hvítir, en með rauð eyru
og ennistopp. Fleiri dæmi eru í
fomum sögum af hestum með fal-
lega liti Af þessari litagleði hefur
leitt að fleiri litir em til í íslenska
hestinum en í flestum öðrum
hestakynjum.13 Alls em 15 aðallit-
ir taldir vera til í íslenska hestin-
um: Brúnt, jarpt, rautt, moldótt,
leirljóst, hvítingjar, blcikálótt, fíf-
ilbleikt, móálótt, grátt, litförótt,
| 20 - Freyr 5/2004