Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.2004, Side 21

Freyr - 01.06.2004, Side 21
vindótt, glóbrúnt, glójarpt og gló- bjart.14 Með öllum þessum litum getur komið fyrir skjótt og slettu- skjótt, þannig að heildarfjöldi lita- afbrigða getur orðið 45. Þar við bætist að í mörgum til- vikum geta tveir sjálfstæðir litir komið báðir fram í blendingum milli tveggja lita. Þar eru algeng- astir blendingar innbyrðis á milli jarpra, bleikra og bleikálóttra lita annars vegar og leirljósra og moldóttra hins vegar, og einnig á milli vindótta litarins annars veg- ar og ýmissa lita hins vegar. Gangtegundir Alls eru taldar vera fimm gang- tegundir í íslenskum hrossum. Þær eru fet, brokk, tölt, stökk og skeið. Mörg erlend hestakyn hafa aðeins fet, brokk og stökk, en tölt og skeið er sjaldgæft eða ekki til í mörgum erlendum hrossakynjum. Islenski hesturinn hefur náð mikilli útbreiðslu erlendis á síð- ustu áratugum. Kemur þar margt til. Hann er sterkur, viðráðanlega stór, þjáll í skapi og góðgengur. Fjöldi gangtegunda gerir hann sérstaklega eftirsóknarverðan sem þægilegan og þolinn heimilishest. Jafnframt er hann eftirsóttur keppnishestur á hestamótum hér á landi og víða í Evrópu. Skyldleikarœkt Nýlegar rannsóknir sýna að það fer í vöxt að eftirsóttir stóðhestar og synir þeirra séu svo mikið notaðir að virkum fjölda einstaklinga í stofhin- um fari fækkandi og sé hann nú kominn niður fyrir 100 einstaklinga. Til að taka á þessum vanda þarf að vega saman kosti góðs einstaklings til kynbóta og neikvæð áhrif hans vegna þess hve miklu hann bætir í óheppilega skyldleikarækt. Þessi fækkun á fjölda virkra einstaklinga í stofninum leiðir til að skyldleikarækt á eftir að fara ört vaxandi í næstu framtíð, ef svona mikilli notkun vinsælla stóðhesta er haldið áfram. Fari svo getur erfðabreytileiki í stofn- inum lækkað svo mikið að kyn- bótaframfarir minnki verulega, eða jafnvel að framtíð íslenska hestsins sé stefnt í voða.15 Sauðfé Uppruni Beinar rannsóknir á uppruna ís- lenska sauðijárins eru fáar. Þó er Ijóst að það heyrir til fjárkyns sem hefur verið víða í Norður-Evrópu og er kallað Norður-Evrópska stuttrófúkynið. Önnur ijárkyn í Evrópu eru með langa rófú. Mörg einkenni á íslensku sauð- fé eiga sér hliðstæðu í gamla, norska stuttrófukyninu (spælsau). I báðum kynjum koma fyrir litim- ir golsótt, botnótt, svart og mó- rautt, bæði kynin hafa stutta rófú eða dindil, og í báðum kynjum koma fyrir hymdir hrútar, hymdar ær, kollóttir hrútar og kollóttar ær. Kollótt fé verður stundum örðótt eða hnýflótt með aldrinum. Hymdu stuttrófúfé hefur þó fækk- að í Noregi og kollóttu fjölgað. Uppruni Kleifafjárins Bogi Benediktsson í Hrappsey náði sér í spánskt fé til Breiða- fjarðar um 1760, á svipuðum tíma og Hastfer stofnaði fjárræktarbúið á Elliðavatni. Fjárkynið sem Bogi fékk mun þó ekki hafa verið spánskt heldur að öllum líkindum skoskt Cheviot fé og gæti hafa verið komið frá Elliðavatni.158 Bogi fluttist að Staðarfelli í Dölum og missti allt fé sitt í kláðaniðurskurði upp úr 1772. En Sauðalitir [jkv\ > V M Freyr 5/2004 - 211

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.