Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.2004, Side 23

Freyr - 01.06.2004, Side 23
Cheviot fé í Bretlandi. Erfðagall- inn fékk heitið Rígur í hálsi á Is- landi en var kallaður Daft lamb disease í Bretlandi.18 Einnig bar á sérkennilegri styggð í stofninum þegar féð gekk á málmgrindum í íjárhúsum. Sauðalitir Margir litir eru í íslensku sauð- fé. Þeir skiptast í þrjá flokka, litar- efni, litamynstur og tvíliti. Litarefnin eru þrjú, rauðgult, svart og mórautt. Litamynstur í íslensku fé eru sex. Þau eru hvítt (eða gult), grátt, golsótt (goltótt, mögótt), botnótt, grábotnótt og án mynsturs (svart eða mórautt). Tvílitir koma fram sem dökkur litur á ákveðnum svæðum á kind- inni, en litleysi (hvítur litur, þ.e. skortur á virkum lit) á öðrum svæðum.111 Astæða er til að benda á að á annan tug lita á sauðfé á Hjalt- landseyjum bera enn íslensk (norsk) heiti. Það sýnir að Norð- menn hafa flutt með sér mislitar kindur frá Noregi til Hjaltlands og þá hafa verið til íslensk (norsk) heiti á þessum litum. Mörg litaheitin hafa haldið sér i 1200 ár, vegna þess að litirnir komu til Hjaltlands á norrænum kindum og höfðu þá íslensk (norsk) heiti. Heitin á litunum hafa haldist íslensk (norsk) áfram, vegna þess að þau voru bundin við ákveðinn lit. Heitið lifði á íslensku með litnum, þó að tungumálið breyttist að öðru leyti úr íslensku (norsku) yfir í ensku.20 Hornalag 1. Venjuleg horn A íslensku sauðfé er algengt að bæði ær og hrútar séu með venju- leg horn sem kallað er. Þá eru hrútar með sver hom sem sveigj- ast aftur og út frá höfði. I þver- skurð em homin þríhymingslaga niðri við rót. Ærhomin em grennri og þynnri en hrútshomin en þau era einnig með þverskurð sem nálgast það að vera þríhyrnings- laga við homarótina.2' 2. Ferhymt fé Á íslandi hefúr lengi verið til ferhymt fé. Þá em miðhomin vel þroskuð og vaxa fram og niður á við og til hliðanna. Jaðarhornin vaxa aftan við aðalhomin og bein- ast nær höfði og hálsi. Þau em mun grennri og styttri en miðhomin. Freyr 5/2004 - 23 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.