Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2004, Page 34

Freyr - 01.06.2004, Page 34
Barst út sú fréttin fleyga, fyndist þar heimur víður, enginn sem vildi eiga utan skrœlingjalýður. Kátur á kvöldum lagði Kólumbus þá við eyra. Vildi oft, svo hann sagði, söguna aftur heyra. Molar KáNADÍSKUR BÓNDl TAPAR MÁLI GEGN ERFÐATÆKNIFYRIRTÆK- INU Monsanto Percy Schmeiser, kanadískur bóndi frá Bruno í Saskatchewan, hefur eftir margra ára baráttu tapaö máli í Hæstarétti sem erfðatæknifyrirtækiö Monsanto höfðaði gegn honum fyrir ræktun á erfðabreyttu rapsi sem Mon- santo hefur einkaleyfi á. Hæstiréttur Kanada féllst á það að Percy Schmeiser hefði sáð erfðabreyttum rapsi, svo- nefndu Roundup Ready Canola yrki án þess að greiða fyrir það leyfisgjald. Upphaf málsins má rekja til ársins 1997 þegar starfsmenn Monsanto fundu erfðabreytta rapsinn á býli Schmeisers. Hann fullyrti aftur á móti að erfða- breyttur raps yxi þar án vilja hans eða athafna og að hann hefði frjóvgast utan frá eða borist á annan hátt í akurinn fyrir slysni. Schmeiser hefur nú verið dæmdur til að afhenda allt raps- útsæði sitt sem inniheldur erfðabreyttan raps. Hæstiréttur komst jafnframt að þeirri niður- stöðu að Percy Schmeiser hefði ekki hagnast á hinu einkaleyfis- skylda yrki og skyldi því ekki greiða fyrirtækinu bætur. Hins Uppfrœddur efni slíku út lét hann stefni beina. Uppgötva Ameríku aftur vildi hann reyna. Sigldi hann snotrum snekkjum, snortinn af þessum lestri. Urslitin öll við þekkjum, enn birtust lönd í vestri. Kunn eru og kennd í skóla Kristófers afrek snjöllu. Því fœst mi kókakóla Og Kentökky fræd með öllu. Aftur fannst Ameríka, enn mátti vínber smakka, en leiðangur sá var líka Leifi heppna að þakka. vegar skyldi hvor aðili málsins um sig greiða málskostnað sinn. Percy Schmeiser hefur opnað vefsíðu þar sem hann fjallar um mál sitt. Þar kveðst hann ekki kæra sig um að rækta erfða- breyttar jurtir á jörð sinni. Hins vegar segist hann alla tíð hafa barist fyrir því að bændur megi rækta sitt eigið útsæði; Það hef ég sjálfur gert í 50 ár og ég mun áfram berjast fyrir því. Mál hans hefur vakið mikla at- hygli í Kanada og stærsta dag- blað landsins, Toronto Star, hefur í ritstjórnargrein hvatt til opinberr- ar umræðu um erfðabreyttar jurt- ir, að evrópskri fyrirmynd. Blaðið segir að Hæstiréttur Kanada hafi sent stjórnmálamönnunum við- kvæmt mál til að leysa, þ.e. hvaða afstöðu Kanada eigi að taka til ræktunar erfðabreyttra jurta. Vefsíða Percy Schmeiser er á slóðinni www.percyschmeis- er.com (Landbrugsavisen nr. 22/2004). Matvælum fleygt í Noregi vegna verk- FALLS í maí á þessu ári fóru flutn- ingabílstjórar í Noregi í verkfall. Við það stöðvuðust flutningar á búvörum í verslanir þannig að það varð að fleygja miklu af þeim. Þar má nefna að 750 þús- und lítrum af mjólk var hellt nið- ur, auk þess sem framleidd voru 300 tonn af þurrmjólk úr mjólk sem komst ekki á markað. Þá var fleygt 300 tonnum af eggjum, 500 tonnum af kartöfl- um, 250 tonnum af gulrófum og 100 tonnum af hvítkáli, og er þá ýmislegt ótalið af grænmeti sem fór til spillis. Að lokum má nefna að sölu- samtök kjötiðnaðarins, Kjött- bransjens Landsforbund, telja að tap þeirra vegna verkfallsins nemi um 70 - 100 millj. n.kr. (Bondebladet nr. 23/2004). McDonalds býður upp Á MJÓLK Austurrískt mjólkursamlag, Berglandmilch, hefur gert samning við skyndibitakeðjuna McDonalds um að keðjan kaupi 10 milljón lítra af mjólk til veit- ingahúsa sinna í Austurríki, ítal- íu, Grikklandi, Ungverjalandi og Slóvakíu. Fjögur mjólkurbú fyrir- tækisins í Austurríki og eitt í Þýskalandi afhenda mjólkina. Þessi samningur er til vitnis um aukinn áhuga McDonalds á hollustu veitinga fyrirtækisins, ekki síst m.t.t. umræðu um of- fitu. (Landbrugsavisen nr. 23/2004). | 34 - Freyr 5/2004

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.