Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2004, Page 36

Freyr - 01.06.2004, Page 36
Mynd 1. Rannsóknahópurinn. Á myndinni eru frá vinstri: Þorkell Jóhannesson, Tryggvi Eiríksson, Kristin Björg Guðmundsdóttir og Jakob Kristinsson. Sigurður Sigurðarson var við rannsóknir erlendis, þegar myndin var tekin. (Ljósmynd: Sigríður ísafold Hákansson). um við, að óvíst væri, hvort breytilegt magn mangans skipti máli fyrir uppkomu riðu. Þessar rannsóknir benda hins vegar ein- dregið til, að magn mangans geti skipt verulegu máli í þessu sam- bandi. Þetta verður nánar rætt í lokakafla ritgerðarinnar. 2. Rannsóknir á selen í heyi OG BLÓÐI OG VIRKNI GPO í BLÓÐI SAUÐFJÁR Heysýnum (88 talsins) af upp- skeru áranna 2002 og/eða 2003 var safnað á 18 bæjum. Eru 14 þeirra í Vatnsdal - Víðidal (nr. 5 og 11 á mynd 2), en 4 annars stað- ar (nr. 3, 4 og 6 á mynd 2). Á 14 þessara bæja voru jafnframt tekin blóðsýni. Ellefu þeirra eru í Vatnsdal - Víðidal, en þrír eru annars staðar. I Vatnsdal voru blóðsýni tekin úr ám bæði að hausti 2002 (ólembdar, nýlega komnar af íjalli) og að vori 2003 (eftir innistöðu og komnar að burði). Var það gert til þess að kanna, hver áhrif meðganga og innistaða hefði á innihald selens og virkni glútatíonperoxídasa (GPO) í sýnunum. Fjöldi blóð- sýna var samtals 125. I þessum hluta rannsóknarinnar voru einungis bæir í þremur flokkum, þar eð bæir í flokki 1 voru ekki hafðir með (ósýktir bæ- ir á ósýktum svæðum). Ákvarð- anir á selen og virkni GPO tóku því til býla í flokki 2 (riðulausir bæir á riðusvæðum), flokki 3 (fjárskiptabæir, sbr. skilgreiningu að framan) og í flokki 4 (riðuveiki í gangi). Auk þess, að selen var ákvarðað í heysýnum og selen og virkni GPO í blóðsýnum, var spumingalisti sendur til 20 dýra- lækna um land allt (X á mynd 2) og svömðu þeir allir. Niðurstöðutölur selenákvarðana í heyi sýna, að þéttni selens var mjög lítil eða á bilinu 15-25 míkrógrömm/kg (eitt míkró- gramm er einn milljónasti hluti úr grammi). Samkvæmt erlendum tölum er talin vera hætta á skorts- einkennum í búfénaði, ef magn selens í heyi eða öðm fóðri er að marki minna en 100 míkróg/kg. Enginn marktækur munur var á magni selens í heyi frá bæjum í flokki 2, 3 eða 4 (mynd 6). Fyrir- spum til 20 dýralækna um allt land leiddi í ljós, að einkenni um selenskort em alls staðar þekkt í sauðfé (lömbum), allvíða í kvíg- um (kálfum) og sums staðar í fol- öldum. Selenskortur þessi er svo útbreiddur, bæði á riðusvæðum og riðulausum svæðum, að ólíklegt má teljast að hann tengist upp- komu riðu staðbundið. Ákvarð- anir á selen í blóði áa í öllum 136 - Freyr 5/2004

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.