Freyr

Volume

Freyr - 01.07.2002, Page 4

Freyr - 01.07.2002, Page 4
Líf Skaftfelllnga hefur gjör- breyst á elnum mannsaldrl Viðtal við Sólrúnu Ólafsdóttur, bónda á Kirkjubæjarklaustri. Sólrún Ólafsdóttir býr á Kirkjubæjarklaustri, ásamt manni sínum, Lárusi Valdi- marssyni, og reka þau sauö- fjárbú. Auk þess hefur hún tekið þátt í margvíslegum fé- lagsmálastörfum, einkum í heimasveit sinni, en situr nú í stjórn Bændasamtaka Islands. Sólrún var fyrst beðin um að segja á sér deili. Ég er fædd og uppalin á Þverá á Síðu. Foreldrar mínir voru Olafur Vigfússon og Fanney Guðsteinsdóttir sem þar bjuggu. Hann var Skaftfellingur að ætt og uppruna, en hún var fædd í Bol- ungarvík, en ættuð úr Holtum og Þingvallasveit. Við vorum þrjú Sólrún Ólafsdóttir með dótturdóttur sína, Svanhildi Guðbrandsdóttur. alsystkinin og Qögur eldri hálf- systkini sammæðra, sem ég hef alltaf litið á sem alsystkini mín. Þverá er um 15 km fyrir austan Klaustur. Þar var rekið blandað bú, þegar ég var að alast þar upp, fyrst aðeins kýr til heimilis en árið 1959 fór Mjólkurbú Flóa- manna að sækja mjólk austur fyr- ir Mýrdalssand. Við það vænkað- ist hagur bænda í sveitunum milli Sanda, eins og þær eru kall- aðar, en þá fyrst fóru þeir að fá reglubundnar greiðslur árið um kring fyrir framleiðslu sína. Þeg- ar ég lít til baka undrar mig mest hvað mjólkurframleiðsla varð al- menn. Menn þurftu ekki að leggja í mikinn kostnað í upphafi, voru með fjós sem margir gátu stækkað í rólegheitum. Seinna byggðu menn sér fjós, margir af myndarskap. Ég handmjólkaði og var bara flink við það. Skólaganga þín? Ég fór í bamaskóla í Múlakoti, en þar var þá bamaskóli sveitar- innar. Ég var þar í þrjá vetur, var tvær vikur í skólanum og tvær vikur heima, en yngri og eldri deild skiptust á. Ég hjólaði í skól- ann á mánudögum og heim á laugardögum með töskuna á bak- inu og fatapokann á bögglaberan- um, en ég hélt til hjá því góða fólki Bjama Þorlákssyni kennara i Múlakoti og Sigurveigu Kristó- fersdóttur, konu hans. Bjami var ótrúlegur kennari, fór oft langt út fyrir efnið, en það sem hann sagði okkur þá átti ekki síður er- indi til okkar en það sem stóð i bókunum. í minningunni var allt- af gott veður þessa vetur. Eftir bamaskóla fór ég einn vetur í nám hjá séra Gísla Brynj- ólfssyni á Kirkjubæjarklaustri, hann kenndi þann vetur sex ungl- ingum úr sveitinni, þaðan fer ég einn vetur í Hagaskóla í Reykja- vík, í 2. bekk, en lýk svo gagn- fræðanámi í Skógaskóla undir Eyjaijöllum. Ég er hissa á því núna hvað maður lærði mikið á þessum stutta tíma. Eftirminni- legast var að vera á Skógum, læra að standa á eigin fótum, og eignast þar jafnffamt marga vini. Hvað tók svo við hjá þér? Ég fór eina vertíð til Vest- mannaeyja og vann í frystihúsi. Það var mjög gaman og ég hefði ekki viljað verða af þeirrar reynslu, það jók manni víðsýni og agaði mann við vinnu. Upp úr þessu festi ég svo mitt ráð, eiginmaður minn er Láms Valdimarsson á Kirkjubæjar- klaustri. Við giftum okkur árið 1966 og árið eftir flytjum við í nýtt íbúðarhús á Kirkjubæjar- klaustri. Við eigum þrjár dætur. Þær luku allar stúdentsprófí og fóra síðan allar í bændaskóla, tvær á Hvanneyri og ein á Hólum. Guð- rún er elst, hún er búfræðikandí- dat frá Hvanneyri. Hennar maður er Þórarinn Leifsson, en þau búa í Keldudal í Hegranesi, með kýr, sauðfé og hross, og eiga þrjú böm. Næst er Fanney Ólöf, hún er líka búfræðikandídat ffá Hvanneyri og býr hér á Klaustri | 4 - Freyr 6/2002

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.