Freyr - 01.07.2002, Page 20
1. tafla. Breytingar á þurrefni og vatnsmagni byggsins
frá slætti til þreskingar
Slegiö í múga Þurrefni % Vatn kg/kg þe. Þreskt úr múga Þurrefni % Vatn kg/kg þe. Dagar
18. sept. 57,7 0,73 1. okt. 85,0 0,18 13
23. sept. 68,0 0,47 27. sept. 70,4 0,42 4
21. okt. 46,2 1,16 3. nóv. 62,9 0,59 13
21. okt. 46,7 1,14 3. nóv. 80,2 0,25 13
eins 28% af því sem það var við
sláttinn. Því verr eru ekki til sýni
af sambærilegu byggi sem stóð
óskorið á rót. Það þomar líka en
lítið eitt hægar en byggkorn í
múga ef marka má mælingar á
Hvanneyri haustið 2001. Nam
munurinn þar tæpum 20%.
Aðeins tókst að gera eina sam-
akra athugun á foki úr forskomu
byggi samanborið við bygg á rót.
Byggið hafði þá legið hálfan
mánuð í múgum. Þar var vart
finnanlegt hmn (fok) úr axi en í
byggi á rót nam tapið 8,5%. Við
meðaluppskeruna 4,0 t/ha (þe.)
svarar þetta til ríflega 300 kg
byggs á hektara; að verðmæti
slagar tapið hátt í 6.000 kr. á
hektara.
Þúsund korna þyngd
Frá slætti til þreskingar breytt-
ist þroski byggsins, metinn sem
þúsundkoma þyngd, þannig
(mælingar gerðar á sömu sýnum
og í 1. töflu):
Bygg við slátt í múga
26,9 ± 4,7 g/þús.k.
Bygg við þreskingu úr múga
29,4 ± 7,6 g/þús.k.
Svo virðist sem ekki megi fella
komið of snemma. Athugun á
grænþroska byggi benti til minni
áhrifa; bæði hægari þurrkunar og
lítillar eftirþroskunar byggsins í
múgunum.
I tilraun, sem gerð var á
Hvanneyri með forslátt byggsins
í byrjun gulþroskastigs og eftir-
þroskun þess í múga, sýndist
mega minnka það vatnsmagn,
sem þurrka þurfti úr bygginu, um
20-25% á þremur sólarhringum.
Jafnframt þroskaðist byggið og
jók þúsundkomaþyngd sína um
4-29% samanborið við 5-21% í
byggi sem stóð óskorið í axi. I
tilrauninni var ekki unnið með
áðumefndum vélum heldur var
líkt eftir vinnubrögðum þeirra
með einfaldari sláttutækjum. Til-
raunin var gerð með tvö sex-raða
yrki og eitt tveggja-raða.
Sennilega getur verið hætta á
að byggið mengist óhreinindum
úr akri við meðferð og legu í
múgum, og að innri skemmdir
geti orðið, t.d. spíran! Við eina
athugun i Skagafirði, þar sem
byggið hafði legið í múgum í
tvær vikur, virtist byggkomið
hafa fengið á sig gráleitan blæ,
án þess þó að á því sæist mygla
eða í því gætti myglulyktar. 1
svipaðri athugun á Hvanneyri,
þar sem byggið hafði legið í
múga í 18 daga, varð vart vatns-
fylukenndrar lyktar úr komtanki
þreskjarans og þessa sama grá-
leita litar á bygginu. Það virtist
bera meira á myglu í forslegna
bygginu er kom að geymslu þess
sem própíonverkaðs súrkoms,
skv. reynslu Þórarins bónda í
Keldudal.
Önnur reynsla
Það virðist eindregið álit bænd-
anna, sem að þessari tilraun
stóðu, að þama sé fengin álitleg
aðferð við björgun byggsins,
a.m.k. miðað við skagfirskar að-
stæður. Ljóst er að aðferðin krefst
meiri vélbúnaðar, sennilega 1,2-
1,7 sinnum meiri en hin hefð-
bundna aðferð. Þann fjárfesting-
arauka þarf að ávaxta i gegnum
verðmætari árangur þessarar að-
ferðar - forsláttar og múgþrosk-
unar. Þótt fjarri fari því að að-
ferðin sé fúllreynd er helst að
sækja þessi verðmæti í tvennt:
* Minna tap með foki og öðram
uppskeruspjöllum í haustveðr-
um.
* Þurrara bygg og minni eld-
sneytiskostnaði við þurrkun
auk meiri afkasta þurrkarans, í
kílóum þurrefnis á klst.
Fyrri þáttinn er ekki ekki auð-
velt að leggja mat á þar sem hann
verður að skoða í ljósi haustveðr-
áttu um lengra árabil. Síðari þátt-
urinn er á hinn bóginn auðreikn-
anlegur, eins áður kom fram.
Bygguppskeran fellur til á fremur
skömmum tíma. Mikilvægt er að
geta komið henni jafnharðan í
örugga geymslu.
Með hinni afkastamiklu múg-
sláttuvél reyndist mega fella 30-40
hektara á góðum vinnudegi og
koma þeim þannig í veg fyrir fok-
skaða ef veðurspá var óhagstæð.
Síðan höfóu bændur allt að tvær
vikur til þess að ná kominu af
ökranum án þess að það færi að
rýma svo að neinu næmi. Það fór
þó eftir veðri. Reynslan frá Vind-
heimum benti til þess að hin nýja
aðferð stuðlaði að betri nýtingu
komþurrkarans, sem þar er not-
aður, og lengdi notkunartíma hans.
Þá má geta þess að töluvert af
byggi var sett í stórsekki, beint eft-
ir múgþreskingu, og geymt þannig
ffam á vetur, svo til áfallalaust.
Með þessari aðferð varð hin
prýðilegasta nýting hálmsins.
Múgþreskivélin leggur hann í
kassalaga og loftkennda múga
Framhald á bls. 17.
| 20 - Freyr 6/2002