Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1983, Page 6

Símablaðið - 01.12.1983, Page 6
Nýjar námsbrautir — í Póst- og símaskólanum fyrir talsímaverði og skrifstofufólk Þegar hin nýja námsbraut fyrir talsímaverði var komin vel í gang í Póst- og símaskólanum, fór blaðamaður Símablaðsins á vettvang og ræddi við nemendur og bað þá að segja nokkur orð um námið. Þær Jónína Kristjánsdóttir, Guðrún María Harðardóttir og Soffía Sveinsdóttir höfðu eftirfar- andi að segja. Kristjana H. Guðmundsdóttir Myndir: Ásgeir Valur Snorrason Jónína Kristjánsdóttir, Talsambandi við útlönd, segir frá: Núna í september hófust talsímavarða- námskeiðin, sem samið var um í sérkjara- samningum F.f.S. og ríkisins á síðast liðnu ári. Þó að aðdragandinn væri rúmt ár, var samt eins og það kæmi fólki svolítið á óvart. Umsóknir bárust dræmt til að byrja með. Bæði var, að sumarorlof stóðu enn yfir og umsækjendur þurftu með litlum fyrirvara að bjarga málum á heimavelli, þ.e. með tilliti til maka og þarna. En eftir fjölmennan kynn- ingarfund, þar sem Jón Ármann Jakobsson skólastjóri Póst- og símaskólans varð fyrir svörum, fóru umsóknir að streyma inn og brátt urðu fyrstu námskeiðin fullsetin. Af ástæðum, sem öllum eru kunnar, eru þessi fyrstu námskeið einungis fyrir fólk sem er í starfi. Fyrri hlutinn nær yfir 6 vikur og þegar þetta er skrifað stendur yfir hlé, uns seinni hlutinn 4 vikur hefst þ. 21. nóvember. Alls eru þetta 330 kennslustundir. Ég er ein úr hópi átján þroskaðra unglinga, sem reið á vaðið i þessari nýju námsbraut í Póst- og símaskólanum. Frá landsbyggðinni komu átta þátttakendur, en tíu voru úr Reykjavík. Góður hópur, sem hristist strax vel saman. Námsgreinarnar eru allar áhugaverðar, misjafnlega þó, eins og gerist og gengur. Sumt er upprifjun og annað er nýtt fyrir okk- ur. Ég lærði þarna undirstöðuatriði í þók- færslu og gekk kennarinn knálega fram í að kenna mér að hugsa rökrétt. Jónína Kristjánsdóttir. En allt er þetta í mótun eins og gefur að skilja og getur verið álitamál á hvað beri að leggja mesta áherslu. Ég hefði viljað ætla ís- lenskunni meira rúm í námsskránni. Ástkæra ylhýra málið á í vök að verjast og verður seint gert of hátt undir höfði. Tölvufræðsla er fyrirhuguð í seinni hlutan- um og verður vonandi myndarlega að henni staðið. 80 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.