Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1983, Side 28

Símablaðið - 01.12.1983, Side 28
stýrimaður, ógiftur, á eina dóttur, og Inga Haf- dís snyrtitæknir, gift Kristjáni Staub og eiga þau eina dóttur. Ólafur lést 22. september s.l. Þórður Markússon Þórður Markússon var fæddur 23. septem- ber 1940 í Stykkishólmi. Hann var sonur hjón- anna Laufeyjar Bjarnadóttur og Markúsar Þórðarsonar, skipstjóra. Þórður hóf störf á Lóransstöðinni á Gufu- skálum 1966 sem aðstoðarviðgerðarmaður og vann þar til 1976. Hann stundaði jafnframt nám þar og lauk línumannsprófí 1970 og símsmiðaprófí 1972. Árið 1976 hóf hann störf á Loran-Monitor- stöðinni á Keflavíkurflugvelli. Hann var í ársfríi frá störfum er hann lést 19. júlí s.l. Árið 1961 kvæntist Þórður eftirlifandi konu sinni, Svölu Þyri Steingrímsdóttur, er alin var upp á Dagverðará á Snæfellsnesi. Eignuðust þau þrú börn, Lilju, Laufeyju og Markús. o O o o o Valdimar Pálsson var fæddur 29. ágúst 1953 á Akureyri. Foreldrar hans voru Ragnheiður Valdimarsdóttir og Páll Vigfússon. Valdimar lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann hóf störf hjá Pósti og síma 20. semptember 1970 á símstöðinni á Akur- eyri. Hann lauk línumannaprófí 1975 og sím- smiðaprófi 1977. Haustið 1980 varð hann að hætta störfum vegna veikinda. Valdimar Pálsson Hann giftist Helgu Jónatansdóttur 30. júlí 1977 og eignuðust þau eina dóttur. Valdimar lést 2. apríl 1981. Bréf til Söludeildar: Reykjavík, 7. 11. ‘83 Starfsmenn Söludeildar Pósts og síma. Þegar við nú ýtum úr vör litlu fyrirtæki, langar okkur að þakka þá góðu þjónustu og þægilega viðmót, sem þið hafið sýnt okkur. Það hefur allt verið til fyrirmyndar, og ég ef- ast um að mörg einkafyrirtæki geti státað af slíku. Kœrar þakkir. Lifið heil. Árni Gunnarsson Útvarpsauglýsingar s/f 102 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.