Símablaðið - 01.12.1983, Síða 45
Undir liðnum önnur mál kvaddi Leó Ing-
ólfsson sér hljóðs og gerði að umræðuefni
skipulag félagsins og vísaði hann m. a. til
greinar sinnar í Símablaðinu, 1. tbl. 1983.
Hann taldi óeðlilegt að óbreytt skipulag væri
búið að standa í 30 ár. Hann taldi hlut sím-
virkja fyrir borð borinn. Hann taldi að breyta
þyrfti skipulaginu og sagði að þar mætti
margt betur fara, og sagði að vinna þyrfti vel
að athugun á breyttu skipulagi og varast fljót-
færnislegar ákvarðanatökur.
Að lokinni ræðu Leós tók formaður til
máls og vitnaði í Félagsráðsfund frá 26. maí
s. 1., en þar voru skipulagsmálin sérstaklega
rædd og rakti hann málið allt frá í janúar er
hugmyndir Leós voru lagðar fram. Ágúst
sagði að allt mætti skoða og hugsanlega færa
til betri vegar og gagnrýni væri nauðsynleg.
En ekki hefðu komið fram beinar tillögur um
skipulagsbreytingar.
Margir fundarmenn ræddu þessi mál.
Þorvaldur Jónsson frá Akureyrardeild
F.Í.S. sagði að þegar hugmyndir að breyttu
skipulagi F.Í.S. voru ræddar á fundi í Akur-
eyrardeild, höfðu tæknimenn mætt illa.
Þorgerður Einarsdóttir, frá ísafjarðardeild
F.Í.S. sagði að þegar rætt var um skipulags-
breytingar á F.I.S. á fundi í ísafjarðardeild
hafi ekki verið áhugi fyrir hendi að ræða sér-
stakar breytingar, né komið fram hugmyndir
um breytingar, en á fundinn mætti aðeins
einn tæknimaður.
Síðasti ræðumaður var Jóhann L. Sigurðs-
son, varaformaður F.Í.S. og sagði m.a.: Að
hver yrði að gera upp við sig hvað hann teldi
vera skynsamlegar tillögu um breytingar á
skipulagi félagsins.
Ritari l'.Í.S. er Ragnhildur (iiiúniundsdóttir.
Fremri röð f.v.: Runólfur Jónsson, Guðný Jónsdóttir, og Kristján Kristjánsson, Aftari röð
f.v.: Hafrún Maunúsdóttir, Inger Ester Nikulásdóttir, Magnús Björnsson, Guðrún Helga-
dóttir, Hildur Hjálmarsdóttir og Sigrún Ólafsdóttir. Mynd: ÁsKeir Valur Snorrason.
Meðfylgjandi mynd er frá Skeytaútsend-
ingu Pósts og Síma í Reykjavík. Þar starfa
tólf manns, auk lausafólks, það er að segja,
á hvorri vakt er varðstjóri, ritari, fjórir bíl-
stjórar og tveir til þrír aðilar, sem bera út
skeyti í miðbæinn. Ef svo ber við, að öll vakt-
in sé inni í einu, eða á vaktaskiptum, er sann-
arlega þröngt á þingi. En vísurnar hans
Magnúsar varðstjóra lýsa aðstöðunni þarna
vel.
Vinnuplássið virðist mér
vera líkt og skrína.
Elskuð sólin ekki hér
á oss nær að skína.
Þolinmæði að þola neyð
þykir undrum sæta.
Er nú kannske engin leið
okkar pláss að bæta?
SIMABLAÐIÐ
119