Símablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 8
Tungumálakennslan leiddi í ljós,að við vor-
um misvel á vegi staddar og meiri kennsla í
þeim hefði verið æskileg. Ég tel mig hafa haft
ofsalega gott af tungumálakennslunni. Bók-
færslan þótti mér mjög skemmtileg og það
hefðu gjarna mátt vera nokkrir stærðfræði-
tímar, og einnig er tölvufræðsla nauðsynleg.
Ég saknaði landafræðikennslu, því hennar
held ég að sé mikil þörf, ekki síst, þar sem
„Upplýsingar 03“ annast nú orðið þjónustu
fyrir allt landið. Og þá má einnig nefna bíla-
símana, sem dreifast um allt land.
Þá hefðum við óskað eftir fleiri kennslu-
stundum í íslensku og blokkskrift hefði verið
mjög gagnlegt að læra.
Haldnir voru margir fyrirlestrar t.d. um
uppbyggingu Stofnunarinnar og réttindi og
skyldur starfsmanna. Fyrirlestur um gervi-
hnetti var mjög skemmtilegur og fróðlegur og
fengum við að fara upp að Skyggni og skoða
stöðina.
Ekki eru allir jafn sáttir við, að þurfa að
taka próf í skólanum, en ég vil hafa próf, því
Soffía Sveinsdóttir.
þau leiða í ljós hvað maður kann og kann
ekki.
Við lok fyrra námstímabils héldum við
ofsa skemmtilegt bekkjarhóf, þar sem allar
stelpurnar mættu og kom þar fram brýn þörf
á söng- og textakennslu á framhaldsnám-
skeiðinu!
Við hlökkum til að hittast á ný.
F.v.: Elín Sæmundsdóttir, Talsambandi við útlönd, Jónína Kristjánsdóttir, Talsambandi
við útlönd, Kristbjörg Jóhannesdóttir, Afgreiðslu Ritsímans í Rvk. (Box), Hjördís Guð-
laugsdóttir, Fanglínumiðstöðinni í Rvk. og Guðrún Jónsdóttir, Langlínumiðstöðinni í
Rvk.
Guðrún María Harðardóttir, Bor}»arnesi, segir frá:
Ég hefi ekkert nema gott um þetta nám-
skeið að segja. Það er þroskandi bæði félags-
lega og andlega séð, að setjast á skólabekk
á ný, auka við menntun sína og kynnast nýju
fólki.
Þessi fræðsla mun koma okkur til góða.
Fyrst og fremst ættum við að verða færari i
okkar daglegu störfum og vonandi leiðir
námskeiðið til kauphækkunar og að einnig
metið okkur í hag, ef til kæmu tilfærslur í
störfum.
Við vorum þrír talsímaverðir frá Borgar-
nesi á námskeiðinu, þ.e. Sigrún Stefánsdóttir
og Kristín Haraldsdóttir auk mín.
Ég myndi telja það nokkuð sérstakt, að við
komumst þetta margar frá sömu símstöð, en
82 SÍMABLAÐIÐ