Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 7
Upprifjun á almennri landafræði væri líka
vel þegin. Ekki endilega að vita lengdina á
Amazon eða hvert lifibrauð þeirra er í
Manchester, þó það sé auðvitað gott og bless-
að. Heldur t.d. að kynna heiti nýfrjálsra ríkja
í Afriku og víðar, sem flest hafa skipt um
nöfn á síðustu áratugum. Með tilkomu fjar-
skipta og sjálfvirkni erum við komin í sam-
band við meirihluta jarðarbúa og þá er gott
að koma ekki alveg af fjöllum.
Jafnframt má benda á, hvort ekki sé tíma-
bært þegar bílasimum fjölgar, að fræðast um
öræfi og óbyggðir landsins. Af nógu er að
taka. Við höfum kynnst ýmsum deildum hjá
Stofnuninni og fræðst um aðrar. Ég er ekki
í vafa um að þetta víkkar sjóndeildarhringinn
og er af hinu góða. Ekki síst stuðla þessi nám-
skeið að bættum samskiptum og kynningu
starfsfélaga — það er að segja, á meðan þeir
eru til staðar og tæknin er ekki búin að yfir-
taka störfin.
Stofnunin mætti tileinka sér að undirbúa
og fræða starfsfólkið betur um nýjungar og
breytingar, sem fyrirhugaðar eru á hennar
vegum, áður en fjölmiðlum eru kynntar þær.
Það sakar ekki að vekja athygli á þessu, á ári
samskipta (world communication year).
Vonandi stendur þetta til bóta þegar ráðinn
verður blaðafulltrúi eða starfsmaður, sem
hefur með almannatengsl að gera.
Við vorum farnar að kunna vel við okkur
í Skuggahverfinu og það ágæta fólk, sem þar
vinnur. Auðvitað heyrðist stundum í okkur
í frímínútunum. Það væri nú annað hvort.
Talsímaverðir eru nú einu sinni með hressasta
fólki.
En munum, að tilgangurinn með nám-
skeiðunum er líka liður í kjarabaráttunni.
Baráttu, sem við skorum á félagið að fylgja
fast eftir. þangað til skuldfærum við ríkið
debet megin í bókhaldinu okkar.
Talsímaverðir utan af landi
F.v.: Guðrún IVIaría Harðardóttir, Borgarnesi, Anna Gunnlaugsdóttir, Akranesi, Gréta
Jónsdóttir, Selfossi, Klsa Eyþórsdóttir, Hveragerði, Þórða B. Óskarsdóttir, Selfossi, Sig-
urlín IVIagnúsdóttir, Akranesi, Kristín Haraldsdóttir, Borgarnesi og Sigrún Stefánsdótt-
ir, Borgarnesi.
Soffía Sveinsdóttir, varðstjóri l.anglíiniiini í Reykjavík, seyir frá:
Ég er mjög ánægð með skólann og þótti
virkilega skemmtilegt að setjast á skólabekk
á ný. Að vísu voru þetta mikil viðbrigði, því
að sjálfsögðu þurftum við að byrja á því að
læra að læra. Og í Ijós kom, að vissulega var
margt gleymt frá fyrri skólagöngu, en furða
var hversu fljótt rykfallinn skólalærdómur-
inn rifjaðist upp aftur.
Það var verulega gaman að mörgum fög-
unum, en önnur voru svo sem ekkert sérstök.
SÍMABl.AOIt) 81