Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 27

Símablaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 27
röntgentæknir, gift Si}»urði Helgasyni bóka- verði, næstur er Stefán Olafur, sem undanfarin ár hefur stundað nám í fiskeldisfræðum í Skot- landi og Noregi, og yngstur er Jóhann, rafvirki og nemandi í Tækniskóla íslands. Unnusta hans er Elísabet Kemp frá Efri-Lækjardal í Húnavatnssýslu. Ólafur andaðist á Sjúkrahúsi Skagfirðinga 16. ágúst s.l. Jón Böðvarsson Jón Böðvarsson, símaverkstjóri, var fæddur í Reykjavík 13. ágúst 1912. Foreldrar hans voru Böðvar Jónsson og kona hans Guðrún Skúladóttir. Jón hóf störf hjá Bæjarsímanum í Reykjavík 1. október árið 1947. Hann var skipaður línumaður 1. janúar 1955. Árið 1964 var hann skipaður símaverk- stjóri í Jarðsímadeild Símstöðvarinnar í Reykjavík og gengdi hann því starfi þar til hann fór á eftirlaun 31. desember 1980. Frá þeim tíma vann Jón á tímakaupi í Jarðsímadeild þar til hann lést, 26. október s. I. Árið 1939 giftist hann Hólmfríði Sigurðar- dóttur, frá Vigdísarstöðum í V.— Húnavatns- sýslu. Þau eignuðust sex börn, sem eru: Böðv- ar, lyfjafræðingur, giftur Elsu Benediktsdótt- ur. Bjarni, tæknifræðingur, giftur Birnu Magnúsdóttur. Sigurður Ingi, stýrimaður, gift- ur Árdísi Benediktsdóttur. Skúli, símaverk- stjóri, giftur Svanhviti Magnúsdóttur, Ingi- björg, gift Guðmundi Rúnari Jónssyni og Haraldur, bifvélavirki. Ólafur Þórarinsson Ólafur Þórarinsson, stöðvarstjóri fæddist 23. október 1923 á Bíldudal. Foreldrar hans voru Þórarinn Ólafsson, tré- smiður og kona hans Guðrún Kristjánsdóttir. Móðir sína missti Ólafur þegar hann var tveggja ára og ólst hann upp hjá afa sínum og ömmu á Bíldudal þar til hann var 12 ára, en þá fór hann til föðurs síns í Keflavík. Ólafur stundaði nám í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Loftskeytaskólapróf tók hann 1946 og var loftskeytamaður á togaranum Keflvíkingi í nokkur ár. Hann hóf störf hjá P. & S. 1. janúar 1950 á Loranstöðinni á Reynisfjalli og var skipaður stöðvarstjóri þar 1. apríl 1951. Árið 1959 var hann skipaður stöðvarstjóri á Loranstöðinni að Gufuskálum og þar starfaði hann þar til er hann hætti vegna veikinda árið 1974. Síðustu árin dvaldi hann á Das í Hafnarfirði. Ólafur giftist Sigurlaugu Magnúsdóttur árið 1952, hún lést árið 1971. Börn þeirra eru: Þórarinn, símvirki, giftur Björgu Karlsdóttir og eiga þau 4 börn, Magn- ús, sem er bæði lærður loftskeytamaður og SÍMABLAÐIÐ 101

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.