Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 33

Símablaðið - 01.12.1983, Síða 33
Hersteinn Magnússon Yfirumsjónarmaður Ritsímanum, Reykjavík. Hersteinn, þú fórst í námsferð til Norður- landanna í sumar. Hvað getur þú sagt okkur um þá ferð? Eftir að ég lauk námi sl. vor og í beinu framhaldi af því, sótti ég um að fá að fara til Norðurlandanna, til að kynna mér helstu nýj- ungar í mínu fagi og þá sérstaklega símatelex- inn, sem væntanlega kemur fljótlega hér. Málaleitan minni var vel tekið af forráða- mönnum Stofnunarinnar og Þorvarður Jóns- son, yfirverkfræðingur skipulagði för mína. Ég var einn mánuð í ferðinni og eyddi sumar- leyfi mínu í hana. Lengst dvaldi ég í Kaup- mannahöfn og Stokkhólmi, en skemur í Oslo og Florö. Hersteinn Magnússon. Ólafur Eyjólfsson, yfirdeildarstjóri var með mér í Kaupmannahöfn og var nám okkar þar samræmt. Á öllum stöðum hafði þegar verið gerð vinnu- og námsáætlun með það fyrir augum, að ég fengi að kynnast sem flestu og læra sem mest. Þar sem ég vissi, að símatelex er væntanleg- ur hingað á Ritsímann bráðlega, þótti mér nauðsynlegt að skrifa hjá mér alla vinnutil- högun og skýringar á framgangsmáta slíkrar þjónustu, þar sem hún er orðin all þróuð á Norðurlöndunum. Úr þessum punktum vann ég svo skýrslu upp á 25 vélritaðar blaðsíður, sem ég vona að muni gera okkur auðveldara fyrir, þegar símatelexinn verður settur á stofn hér. Fyrir utan símatelexinn kynnti ég mér ýmis önnur málefni, sem tengjast störfum okkar hér á Ritsímanum. Ef við berum okkur saman við Norður- löndin, þá er ljóst að Danir, Svíar og Norð- menn standa okkur framar hvað tækjabúnað snertir. Þágeta þeir og boðið upp áfleiri ,,sér- þjónustur“ ýmiskonar. Sérstaklega fannst mér háþróuð tækni Sví- anna. Maður gat gengið um á stórri ritsíma- stöð, þar sem gífurlega mikið skeytaflæði fór um, en enginn pappír sjáanlegur. Allt unnið í tölvum. Hvaða „sérþjónustur“ ertu að tala um? Þá er fyrst að nefna símatelexinn, en Danir hófu rekstur hans árið 1965, en Svíar og Norðmenn kringum árið 1980. Við hér á Rit- símanum munum taka upp sama vinnumáta og tíðkast á hinum Norðurlöndunum, þ. e. að skeytin verða tekin beint úr sima inn á fjar- rita, sem síðan eru send til móttakenda með sama tæki. Verður spennandi að taka upp þessa nýju þjónustu og fá að taka þátt í að koma henni á laggirnar. Þá eru alls staðar á Norðurlöndunum al- menningstelex (publictelex), sem einnig er fyrirhugað að komi hér á Ritsímann í Reykja- vik. í afgreiðslustöðvum stórra símstöðvaeru höfð tæki í sérstökum klefum, sem almenn- ingi stendur til boða. Viðskiptavinurinn send- ir þá sjálfur sitt skeyti, en getur þó fengið að- stoð ef hann óskar þess. Þetta er t. d. mjög vinsælt af blaðamönnum og fréttariturum erlendra fréttastofa og ýmsum þeim er vanir eru að handleika slik tæki. Þá sá ég í Noregi sjónvarpssíma, en hægt er að fá leigt herbergi á símstöðinni í Oslo, sem búið er sjónvarpstækjum, sem tengd eru við síma og hringja þaðan til ýmissa staða, sem þá eru tengdir samskonar tækjum. Er þetta mjög vinsælt af verslunarmönnum og fleir- um, sem halda þá gjarna fundi með þessum hætti, þvi 3 — 4 aðilar geta setið við borðið á hvorum stað. Sparar þetta bæði ferðalög og peninga. Þá get ég nefnt sem dæmi um tækniþróun- ina, að vakningaþjónusta sú, sem við þekkj- um í gegnum 02 og er handunnin sem kunnugt er, er unnin þannig í Oslo, að viðskiptavinur- inn hringir og pantar þjónustuna með hefð- SÍMABLAÐIÐ 107

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.