Símablaðið - 01.12.1983, Page 36
Myndir frá 1930
— af fyrstu meiri háttar jarðsímalögn á íslandi
Guðlaugur Narfason.
Ögmundur Frímannsson, tæknifulltrúi í
Hússtöðvadeild Símstöðvarinnar í Reykja-
vík, hefur mikinn áhuga á frásögnum af
störfum símamanna frá liðinni tíð og má
nefna að hann hefur safnað Símablaðinu allt
frá því er hann hóf störf hjá Stofnuninni árið
1944.
Ögmundur leit inn til blaðsins og kom fær-
andi hendi. Hann var með myndir af síma-
mönnum við störf á árunum í kring um 1930.
Ögmundur sagði þetta vera myndir úr dán-
arbúi móðurbróður síns, Guðlaugs Narfa-
sonar, sem starfaði hjá Landssímanum á ár-
unum 1930 — 1941.
Þetta eru m. a. myndir af fyrstu meiri hátt-
ar jarðsímalögn á fslandi, þegar jarðsíma-
strengur var lagður frá Landssímahúsinu í
Reykjavík að Utvarpsstöðinni á Vatnsenda
árið 1930.
Símablaðið þakkar Ögmundi fyrir þetta
framlag til blaðsins og eru nokkrar þessara
mynda birtar hér.
Við Rauðarárstíg og í Oskjuhlíöinni.
Við Litlu Hlíð í Öskjuhlíðinni.
110 SÍMABLAÐIÐ