Símablaðið - 01.12.1983, Qupperneq 38
Frá ársfundi NTS
Á ársfundi NTS sem haldinn var dagana 30. ágúst til 1. september s.l. var m.a. fjallað um hvern-
ig skuli bregðast við tilkomu nýrrar tækni á skrifstofum og í því sambandi rædd og samþykkt sér-
stök stefnuskrá fyrir NTS í þeim efnum.
I framhaldi af samþvkkt hennar var ákveðið að senda út svofellda fréttatilkynningu:
„Nordiske Teleansattes Samarbeidsorg-
an“ (NTS) hefur upp á síðkastið rætt ítarlega
um áhrif þeirrar nýju tækni, sem með vax-
andi hraða er nú verið að innleiða á skrifstof-
um.
Hin nýja tækni hefur vissa kosti í för með
sér, svo sem, að unnt er að skipuleggja starfið
á betri hátt og möguleikar skapast til að flytja
vinnuna til staða þar sem vinnuafl er fyrir
hendi.
í sambandi við þessa tækni sér NTS einnig
ýmiss vandamál. Aukin hætta er því að hún
geti m.a. leitt til:
— lakari vinnuumhverfis
— vaxandi einhæfni í störfum og
— fækkun starfa.
Þetta efni var höfuðmál á ráðstefnu NTS í
marsmánuði 1983. Sú ráðstefna ákvað að
unnið yrði að stefnumörkun fyrir NTS varð-
andi nýja tækni á skrifstofum. Stefnuskráin
er nú frágengin og fjallar m.a. um eftirfar-
andi höfuðkröfur:
— Félögin fái raunverulegan meðákvörð-
unarrétt á öllum stigum þróunar og inn-
leiðingu nýrrar tækni á skrifstofum.
— Ávinningur þeirrar hagræðingar sem
ný tækni á skrifstofum hefur í för með
sér verður að koma starfsmönnum til
góða í formi mikillar menntunar og
betri starfskjara.
— Vinna við þróun tölvuskjáa verður að
hafa forgang þannig að unnt verði að
útiloka alla neikvæða verkun frá þeim.
— Skipulagningunni verður að vera þann-
ig háttað að séð verði í tíma fyrir þau
áhrif á starfsmenn sem innleiðing nýrr-
ar tækni á skrifstofum hefur í för með
sér. Sjá verður til þess að hugsanlegum
umframstarfsmönnum bjóðist ný störf
innan sömu stofnunar og sama land-
svæðis.
Út frá þjóðhagslegum sjónarmiðum telur
NTS að símastofnanirnar eigi að hafa sterka
aðstöðu í sambandi við framboð og sölu á
nýjum tæknibúnaði fyrir skrifstofur.
Með því að símastofnanirnar þrói ákveðna
staðla í þessum efnum er auðveldara fyrir
samfélagið að fylgjast með þróuninni og hafa
möguleika á að draga úr neikvæðum afleið-
ingum.
Fái símastofnanirnar slíka aðstöðu krefst
NTS þess að þær fái að starfa á sama grund-
velli á samkeppnismarkaðinum og einkafyrir-
tækin.
NTS er samband símafélaganna í Dan-
mörku, Finnlandi, íslandi, Noregi og Sví-
þjóð.
A.G.
Frétt:
í síðasta Símablaði er greint frá því að
stofnað hafi verið sérstakt ráð, ,,Póst- og
símamálaráð“, sem skyldi vera ráðherra til
ráðgjafar um öll meiri háttar reksturs- og
fjárfestingarmál Stofnunarinnar.
Þetta ráð hefur nú verið lagt niður af nú-
112 SÍMABLAÐIÐ
verandi samgönguráðherra Matthíasi Bjarna-
syni.
Símablaðið hefur heyrt að ánægja ríki með
þessa ákvörðun ráðherra hjá yfirmönnum
Stofnunarinnar.