Símablaðið - 01.12.1983, Side 44
Ur fundargerðarbók Félagsráðs
Félagsráðsfundur haldinn 22. sept. 1983.
Formaður félagsins, Ágúst Geirsson,
ræddi bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar,
sem fela í sér afnám samningsréttar stéttarfél-
aga.
Ágúst lagði fram eftirfarandi tillögu frá
framkvæmdanefnd F.Í.S.:
„Félagsráð F.Í.S. mótmælir harðlega
bráðarbirgðalögum ríkisstjórnarinnar um af-
nám samningsréttar og bann við greiðslu vísi-
tölubóta á laun.
Skorar Félagsráð eindregið á ríkisstjórn og
Alþingi að afnema lögin og veita aftur þau
sjálfsögðu mannréttindi sem felast í samn-
ingsrétti launþega.
Félagsráð hvetur alla símamenn til að taka
þátt í undirskriftasöfnuninni, sem nú stendur
yfir og einnig að fjölmenna á þá fundi BSRB
og F.I.S., sem framundan eru um þessi mál.“
Fundarmenn ræddu þessi mál og síðan var
tillaga framkvæmdastjórnar samþykkt sam-
hljóða.
Undir önnur mál ræddi formaður um
námsbraut fyrir talsímaverði og rakti hann
aðdraganda að stofnun hennar. Margir fund-
armenn tóku til máls varðandi þessa náms-
braut og hvernig að henni hafi verið staðið.
Kom fram í máli fundarmanna að ástæða
væri til að Félagsráð léti frá sér fara ályktun
varðandi málið og voru lagðar fram tvær til-
lögur er samræmdar voru síðan í eftirfarandi
ályktun, sem samþykkt var einróma:
„Félagsráð leggur megin áherslu á að
starfsmenn Pósts og síma njóti fyllsta jafn-
réttis um nám og námsaðstöðu, en sé ekki
mismunað eftir búsetu eða öðrum slíkum að-
stæðum.
Því skorar Félagsráð á Póst- og símamála-
stjóra og skólanefnd Póst- og símaskólans að
gefa öllum talsímavörðum hvar sem þeir
starfa á landinu kost á, að taka talsímavarð-
arnámið að fullu í skólanum ef þeir kjósa það
frekar en að taka hluta þess í bréfaskóla-
formi.“
Tómas Ragnarsson gerði fyrirspurn varð-
andi inntökuskilyrði símsmiða í símvirjanám.
Formaður svaraði þessari fyrirspurn.
Leó Ingólfsson kynnti efnislega bréf til
menntamálaráðherra, en þar mótmæla
stjórnir Símvirkjafélags Isl. og 5. deildar
F.Í.S. nýrri stefnu ráðuneytisins í réttinda-
málum rafeindavirkja.
Að lokum kynnti formaður tillögu Hjalta
Ævarssonar, sem samþykkt var á aðalfundi
F.Í.S. 5. maí s.l. um að felastjórn félagsins að
leita eftir afslætti í verslunar- og þjónustu-
fyrirtækjum til handa félagsmönnum í F.Í.S.
Taldi formaður rétt að Félagsráð kjósi sér-
staka nefnd til að athuga um þetta mál.
Félagsráðsfundur haldinn 25. október 1983.
Á dagskrá var m. a. kosning fulltrúa á
bandalagsráðstefnu BSRB, sem haldin var
2.—3. nóv. s. 1.
Formaður félagsins, Ágúst Geirsson kynnti
bréf frá BSRB varðandi ráðstefnuna, en þar
kemur fram að F.Í.S. hefur rétt á 4 fulltrúum
og telst formaður eða varamaður hans full-
trúi fyrir fyrstu 400 félagsmenn og þarf því að
kjósa 3 fulltrúa fyrir félagið til setu á ráð-
stefnunni.
Kosningu hlutu:
Aðalmenn:
Sigurbjörg Haraldsdóttir
Bjarni Ólafsson
Þorsteinn Óskarsson
Varamen voru kjörnir:
Anna Einarsdóttir
Þorvaldur Jónsson
Tómas Ragnarsson
Marta B. Guðmundsdóttir
með 17 atkv.
með 17 atkv.
með 14 atkv.
með 15 atkv.
með 15 atkv.
með 14 atkv.
með 11 atkv.
118 SÍMABI AÐH)