Skátablaðið - 01.10.1998, Síða 27
Lun4önum 1997
Ferðin hófst fimmtudaginn
nóvember á því að Örvar, Jón
Ingvar og Jón Örn komu og sóttu
mÍ9 um kl. hálf sex á Lödunni
hans Örvars. Við vorum komnir
k UPP í flugstöð rúmri klukkustund
síðar. Þar var allt skoðað og
^ngum við okkur kvöldsnarl þar.
Síðan var lagt af stað í loftið.
ffragi hafði bókað okkur í góð sæti og
nutum við þess alla leiðina. Þegar kom-
ið var á Gatwick flugvöll tókum við rútu
lnn í borgina og vorum við komnir á
hótelið um kl. eitt. Til allrar hamingju
Var Burger King veitingarstaður, beint á
m°ti hótelinu, opinn þvi allir vorum við
i hi'ðalangarnir svangir. Fengum við okk-
Ur góða máltíð. Eitthvað hafa þó ham-
^orgararnir verið misjafnir því einn okk-
ar ældi honum alla nóttina og varð eftir
a hótelinu daginn eftir. Létum við Burg-
er King veitingastaði eiga sig eftir þessa
ferð og nutum Mc’Donalds í staðinn.
P’í^^hímsfehð 3 Gilwell PáH<
Um morguninn var lagt af stað í píla-
grímsferð á Gilwell Park. Áður en ferðin
hófst fengu allir sér morgunmat og sumir
fen§u sér eitthvað meira en við höfðum
horgað fyrir, yfirþjóninum til ama. Þá
hófst klukkustundar lestarferð. Þegar við
homum á endastöðina hittum við gott
fólk sem fræddist um för okkar og benti
°kkar á góðan samlokustað í nokkurri
fjarlægð, því allir vomm við svangir og
V|ldum ná okkur í nesti. Áðum við því á
ShelJstöð þar sem keyptar vom helstu
nauðsynjar. Þaðan var svo haldið fót-
8angandi til Gilwell Park. Bragi hafði
Venð spurður um skipulagðar rútuferðir
hl Gilwell Park en hann sagði svo ekki
Vera- Þegar við vomm rúmlega hálfnaðú
a leiðarenda, áðum við í vegarkantinum
°g borðuðum nestið okkar. Keyrði þá
aætlunarbíll ffamhjá okkur svo þetta var
ekki rétt. Við nutum þó þess að ganga
fcessa stuttu leið og skoða falleg hús og þó
Serstaklega bílaflóruna fyrir utan þau.
Þegar við vorum komnir til Gilwell
Park var að sjálfsögðu myndataka við
hliðið og minjagripaverslunin fékkst
opnuð fyrir okkur og versluðu allir sér
Gilwell-húfur ásamt mörgum öðrum
minjagripum. Þaðan var haldið í skoð-
unarferð um staðinn og við sáum fyrir
okkur útilegur, skátamót og B-P á gangi
um landareignina að virða fyrir sér unga
skáta skemmta sér við leiki og störf.
Mgtuhog meiLí matur
Að þessu loknu var haldið inn í mið-
borg Lundúna og merkustu byggingarnar
skoðaðar, s.s. Big Ben, Westminister
Abbey og þinghúsið. Þaðan var haldið
upp á hótel þar sem hópurinn varð heill á
ný en einn húfulaus! ítalskur veitinga-
staður var heimsóttur og allir fengu nægju
sína af pasta og pítsum. Borgin var svo
könnuð að næturlagi en fyrst var safnað
myndum af símaklefúm til að prýða her-
bergi tveggja í hópnum.
Næsta morgunn var haldið á Ma-
damme Tussaud safnið. Ég náði að vísu
með herkjum að fá félagana til að heim-
sækja fýrst Planetarium þar sem mót-
stöðumenn þeirrar heimsóknar annað
hvort sofnuðu eða urðu yfir sig hrifnir af
þessari mynd um ferð í gegnum alheim-
inn. Stórkostleg sýning sem enginn má
missa af. Við fórum síðan á Madamme
Tussaud safhið og hittum m.a. B-P og
margar aðrar merkar persónur. Eftir
þessar skemmtilegu heimsóknir fórum
við í skoðunarferð með tveggja hæða
strætisvagni um Lundúnir. Fræddumst
við þar mikið um borgina og fengum að
sjá þessa, mjög svo fallegu flugeldasýn-
ingu á miðri Thames ánni. Var síðan
haldið heim á hótel með viðkomu á
Mc'Donalds. Sá með hamborgaraóþolið
fékk sér einn með engu! Af hótelinu var
svo haldið á kínverskan matsölustað þar
sem við fengum okkur dýrindis hlaðborð
með alls kyns mat ffá hinum austræna
heimi. Þaðan var haldið í myndsöfhunar-
ferð og miðborg Lundúna borin saman
við miðbæinn í Reykjavík.
Misföfn ájHuggmál
Morguninn eftir skiptu leiðir. Ég og
Örvar héldum út í eitt úthverfi Lundúna á
flugvélasafn og hinir héldu í verslunar-
ferð. Ekki veit ég hvað gerðist merkilegt í
verslunarferðinni en eitt er víst að sumir
eru enn að borga kortareikninginn. Við
skoðuðum ffugvélasafn breska flughersins
og eyddum við meginhluta dagsins þar og
nutum vel.
Þegar við komum á hótelið fórum við í
stutta gönguferð um Oxfordstræti og
fúndum útsölu sem við æduðum að heim-
sækja daginn eftir. Mexíkóskur matur var
síðan prófaður og áffam haldið í saman-
burði miðborga tveggja heima.
Síðasta morguninn í þessari ferð not-
uðu allir til að ljúka við innkaupin. Við
Örvar héldum á útsöluna og keyptum
okkur m.a. skyrtur. Einnig rákumst við á
töskuútsölu og keyptum eina tösku hvor.
Enduðum við síðan þessa góðu ferð á
gríðarlega góðum Kebab stað þar sem
borðað var heilt fat af mat og höfðum við
aldrei áður séð eins stóra skammta. Eig-
endur staðarins voru kínverskir skátar
sem sögðu okkur skátanúmerin sín. Nut-
um við matarins vel og ultum út í orðsins
fýllstu merkingu.
Heima ef best
Á hótelinu hittum við hina og gengum
ffá dótinu okkar og héldum út á flugvöll.
Var það löng og leiðinleg ferð í rútunni en
allir vorum við ánægðir eftir ferðina fýrir
utan smá áfall sem ég fékk fyrir utan
Leifsstöð þegar ég uppgötvaði að Visa-
kortið mitt var horfíð. En sem betur fer
hékk það í hylkinu sínu um hálsinn á mér.
Við héldum þá upp i Löduna og haldið
var heim í Hafnarfjörð.
Meö skátakveðju,
Ásgeir Olqfsson, Hraunbúum.
— Ljósm.: Ásgeir Ólajsson
eltfftresstvn m'k.uUjð