Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 3

Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit Ávarp skátahöfðingja Gamlar myndir..............................2 Friðarloginn frá Betlehem..................2 Ávarp skátahöfðingja.......................3 Skátakórinn................................3 íshæk 2002.................................5 Landsmót eftir 100 daga....................6 Ylfingar...................................7 Útivistarskóli á Gufuskálum................8 Ds. Vetrarlíf.............................10 Skátaannáll 1. hluti......................12 Á slóðum njósnara.........................15 Ritstjóri í 10 ár.........................16 Með skátaklútinn í farteskinu.............18 Ert þú kind eða bóndi?....................20 BRNO skátar 2000..........................22 „Gakktu á vegg“...........................23 Skátakórinn hefur staðið í ströngu síðustu mánuði því meðfram vikulegum æfingum og uppákomum hér og þar hefur hópurinn verið að taka upp geislaplötu sem inniheldur ríflega 20 skátalög og þar á meðal mótssöng landsmótsins í sumar. Upptökurnar hafa farið fram í Víðistaðakirkju og þeim lauk laugardaginn 6. apríl sl. með maraþonlotu sem stóð til kl. 23.00 það kvöld. Á næstu vikum verður unnið úr upptökunum, bætt við slagverki og ýmsu skemmti- legu og vonast er til að diskurinn verði komin í dreifingu um miðjan maí. Þeir sem vilja panta eintak strax geta heimsótt heimasiðu kórsins, www.scout.is/skatakorinn og pantað eintak þar. Annars er það að frétta af kórstarfinu að félagar eru nú ríflega 50 og á aðalfundi kórsins sem haldinn var í mars sl. var Ragnar Harðarson, Ægisbúum, endurkjörinn formaður kórsins. Stjórnandi kórsins er sem fyrr Örn Arnarson en hann hefur unnið hreint kraftaverk með þennan stóra hóp. Félagar kórsins ætla svo auðvitað að fjölmenna á landsmót og láta Ijós sitt skína þar. Sjáumst á landsmóti! Kveðja, kórfélagar PR0SK0P0S Þýðir skáti á grísku. Ég skrifa það hér svo þú takir eftir þessu greinarkorni. Á þessu ári eru liðin nútíu ár frá því skáta- starf hófst með formlegum hætti á íslandi þegar fyrsta skátafélagið var stofnað. í níutíu ár hafa skátafélögin fyrst og fremst verið félög barna og unglinga. Skátarnir sjálfir hafa stjórnað starfseminni, skipulagt hana og annast framkvæmd undir eftirliti og með aðstoð fullorðinna. Skátahreyfingin hefur leitast við að sinna sérstaklega þeim þörfum barna og unglinga sem auðvelda þeim að gerast virkir þjóðfélagsþegnar er geta spjarað sig. Þetta gerðist löngu fyrir daga lífsleikni sem kennslu- greinar í skóla og reyndar á gjörólikan hátt. Skátahreyfingin varð til vegna áhuga barna og unglinga á því að stunda útlilegur og félagsstörf í hópi góðra félaga. Hún opnaði augu almennings um heim allan fyrir ferðalögum á vit óspilltrar náttúru. Hún kenndi nýjum kynslóðum að ferðast og kynnast fólki úr fjarlægum löndum. Skátahreyfingin er friðarhreyfing sem stuðlar að friði með því að auka gagnkvæman skilning og virðingu uppvaxandi kynslóðar á aðstæðum annarra þjóða, menningu þeirra og trúarbrögðum. í skátastarfi sem er leikur, áreynsla og skemmtun sem skátarnir sjálfir annast, felst galdurinn í hugmyndum Baden-Powells. Skátinn lærir að þekkja umhverfi sitt, vinna með öðrum, stjórna og síðast en ekki síst að bera ábyrgð. Þetta læra skátar af reynslunni og af starfinu sjálfu. Nútíminn þarf á fólki að halda sem getur mótað sér sjálfstæðar leiðir til að vinna úr upplýsingaflóði það sem nýtilegt er. Hann þarf á fólki að halda sem hefur öðlast sjálfstraust við að koma hlutum í verk. í skátastarfi eru allir skátarnir virkir félagar. Ég árna öllum skátum heilla á afmælisári. ÓlafurÁsgeirsson skátahöfðingi kínversku tímatali heita árin dýranöfnum; ár drekans, ár kanínunnar, ár rottunnar og þar fram eftir götunum. Mér finnst vel við hæfi að árið 2002 verði héreftir nefnt „Ár skátans", þó ekki væri nema til hátíðarbrigða. Ástæðan ef fyrst og fremst sú að það er svo gaman að tilheyra skátahreyfingunni á þessu ári. Ég get til dæmis varla beðið eftir landsmótinu á Hömrum í júlí, ég er svo spenntur. En það er líka nóg annað að gera á árinu. Fyrir utan afmælishátíðina í nóvember má nefna Hraunbúamót, námskeið, útilegur, Ylfingamót, keilumót, sveitar- útilegur, félagsútilegur, sundferðir í sumar, kvöldvökur í haust, næturleiki, ratleiki, hellaferðir, hjólaferðir og svona mætti lengi telja. Dróttskátar eru nánast ofdekraðir á árinu: íshæk þeirra Norðanmanna tókst vel að vanda og ekki var Ds. gangan síðri. Dróttskátamót í Skaftafelli í júni, annað í Þórsmörk i október og sjaldan hefur forsetamerkishópurinn verið myndarlegri en á þessu ári, ári skátans. Ég vil, ég get, ég ætla. Meira þarf ekki til ef maður vill njóta þess að vera skáti - hugmyndaflugið er það eina sem setur okkur takmörk. Til hamingju með afmælið. Einar Elí Magnússon. SKÁTABLAÐIÐ 3

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.