Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 7

Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 7
Ylfingar , wiv., - ^ +4'- - sn ... l*‘ Þann 8.-9. júní nk. verður sjötta Ylfingamótið haldið og verður það á Úlfljótsvatni. Mótið í ár verður með svipuðu sniði og mótin sem hafa verið haldin áður en þó með einhverjum breytingum Þema mótsins er Dýrheimar þar sem hugmyndin að ylfingastarfi byggist á sögunni um Mowgli í Dýrheimum. Ylfingamót stendur yfir frá hádegi á laugardegi til seinni parts á sunnudegi og er sofið í eina nótt. Dagskráin byrjar strax eftir setningu á laugardegi, á laugardagskvöldinu er kvöldmatur í boði mótsins og kvöldvaka þar á eftir með tilheyrandi skemmtiatriðum og húllum hæi. Á sunnu- dagsmorgni er að sjálfsögðu tjaldbúðaskoðun og fáni og verða veitt verðlaun fyrir bestu tjaldbúðina við slit á mótinu. Eftir fána heldur dagskráin áfram fram að slitum. Dagskrárliðir eru t.d. sund, kassabílarallí, reiptog yfir ána, þrautabraut, fyrs- ta hjálp og margt fleira. Gæsla verður á staðnum allan tímann frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi og erum við því í öruggum höndum þeirra. Ylfingamót hafa tekist með afbrigðum vel og hafa krakkarnir komið ánægð heim reynslunni ríkari og búin að eignast fjölda nýrra vina út um allt land. Nánari upplýsingar er hægt að fá á www.scout.is eða á skrifstofu BÍS í síma 550 9800. Á mótinu eru starfræktar sérstakar tjaldbúðir þar sem fjölskyldur skátanna og vandamenn geta sett niður tjaldið sitt, tjaldvagna eða fellihýsi og tekið þátt í landsmótsævintýrinu. Fjölbreytt dagskrá er í boði í fjölskyldubúðum fyrir alla aldurshópa og því ættu allir að finna sér eitthvað við sitt - — hæfi. Ekki þarf að tilkynna þátttöku í fjölskyldubúðir. Hægt er að dvelja í fjölskyldubúðum eins lengi og gestir óska þess. Þátttakendur í fjölskyldu- búðum annast sjálfir um matinn fyrir sig en mögulegt verður að kaupa hráefni í verslun mótsins s.s. brauð, álegg, mjólk, ( gos, morgunmat, pylsur, samlokur og grillkjöt. Þátttökugjald í fjölskyl- , dubúðum er kr. 1.500,- fyrir hvern einstakling 10 ára og eldri (fæddir 1992 og eldri) óháð því hversu lengi dvalið er. Þá er greitt kr. 500 pr.tjald pr. nótt. Við hvetjum hér með alla til að mæta á landsmótið í sumar, þú sérð ekki eftir því! Sumarbúðir skóta -„éo vil vera þar...“ • „Ævintýri" er það orð sem best lýsir dagskránni á Úlfljóts- vatni. Áhersla er lögð á útiveru, göngufer- ðir, og náttúru- skoðun, íþróttir, leiki, sund og bátsferðir. Auk þess er boðið upp á margvíslega föndurvinnu, dular- fulla og spennandi fjársjóðsleitir, frum- byggjastörf, vatna- safarí, gróðursetning, leiklist, kvöldvökur, varðeldar, klifur í klifurturni, sig, íþróttamót og margt fleira. Áratuga reynsla er af starfi sumarbúðanna á Úlfljótsvatni og dagskráin því margprófuð og vel samansett en er þó alltaf í takt við nútímann. Þrjór tegundir nómskeiða! Nú er boðið upp á þrjár tegundir námskeiða fyrir börn og unglinga. Börn frá 8 til 12 ára eiga möguleika á að koma á almenn fimm daga námskeið sem verða átta talsins í sumar. Unglingum 13 til 16 ára gefst kostur á að upplifa spennandi hluti á einu vikulöngu námskeiði. Auk þess er eitt fjögurra daga krakkanámskeið fyrir 6 til 8 ára börn, en í fyrra var það reynt í fyrsta skipti og þótti takast mjög vel. Á heimasíðu Sumarbúða skáta á Úlfljóts- vatni (www.scout.is/sumarbudir) er hægt að nálgast allar frekari upplýsingar um námskeiðin í sumar, skrá sig og skoða myndir úr sumarbúðunum sem eru uppfærðar daglega! Einnig er tekið við skráningum í Skátamiðstöðinni, s. 550 9800. ® * .. SKÁTABLAÐIÐ 7

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.