Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 19

Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 19
Viðtal UPP ysingar um hvað ég ætti að e . D°S ^ fékk e8 nánari T 6nn þau sem ég neftdi í viðtalmu3 ' MarJf®iðin ,b°mT °g Un^m í Betleh m Þa T StarfVerður ™ð iuterskri kirkju sem rekur milt f g 30 VÍnna með intematJOna)CenterofBet)ehemðstoð t btenum er nefnist bfé8 búið á Oh'utjamT^Í^ðA k°m þam 5' mars taiatm. Eg hef ekki komist tíl Betl h gUSt3 VlCtoria SP>'- ,heftlr '°kað ðænum, verið að eyð ÍT 7™ ^ að herinn huSUm hJá fólki. Astandið barlfi byggÍngar 0« Ie»a í h*fó mér ekki þa„gað Þ ^ Venð ** óttyggt að ég i’essístaðhefégveriðaðfi, • , fó i’otpa vestan Ramalla. Ég fyfJ 7™™ °g hjÚkrunar«ði iytilpar þeim ef fó|k úr alþjöð^ L ™ **“ þeSS að ^ Þau reyna að komast í gegnum va TTglnU Cr með þeim er % kom í þorp þann ]2 mars 'se ° i'TÍSrae,ska hersins. ko-™st til í þrjár yikur ð ma s seu> læknarnir höfðu ekki f-ðingar fynr fó]klð vegna þ fT hfðÍ þ*ð ****» ,eTrngrað Við Wfóíkumlfeli fift er að mik,u Af þe<m fáu dögum sem éa h r ^ hersins' að PaJestínumenn eiga óskaplT^T^ " reynsIa mfó sú niðurlægðir á hverjum degi Vnr T .erfitt’ eru kugaðir og a"ra Paleslínuntanna sem ég hefrlf'vj ^ tai „Þegar ég var á öðru ári í guðfræðinni bauð Sigfús mér í félagsútilegu. Ég hafði mikinn áhuga á að kynnast þessu skátalífi og fór með í útileguna. Hún var svo æðislega skemmtileg að ég ílengdist og hef verið skáti síðan.“ glögga mynd af því hvað Palestínumenn vilja og búa sér til sínar eigin hugmyndir um það. Þá geta þeir lent í því að vera að vinna á móti hinum aðil- anum þó þau ætli sér að vera að vinna að sama markmiði. Það þarf því að samhæfa þá starfs- krafta og alla þá vinnu sem fer í þetta, til að árangurinn verði ekki bara: Úbbs! Nú, voruð þið að pæla í þessu?" Nú geta menn spurt sig hvernig þetta tengist skátastarfi, en eins og Aðalsteinn bendir á eiga mannréttindamál fullt erindi við skáta, enda er skátahreyfingin stærsta friðarhreyfing heims. „Ég myndi segja að miðað við þau verkefni sem ég hef verið að lesa um og eru í gangi, þá er þetta í raun bara skátastarf, þó að það sé kannski ekki alveg rétt að orða það þannig. Það er verið að tengja saman ólíka heima og reyna að mynda bræðralag og frið. Þetta er þessi yfirhugsjón sem gengur í skátastarfi. Við erum kannski fyrst og fremst að leika okkur en í gegn- um leikinn myndast bræðralag og vinátta. Það er engin tilviljun að öll alheimsmót sem eru haldin eru pakkfull - hvert einasta sæti er fyllt. Það er ósk þeirra sem eru i skátastarfi að fá að hitta aðra skáta. Þessi verkefni sem ég hef verið að skoða og þessar stofnanir sem ég er að fara fyrir, miða öll að því að hjálpa Palestínumönnum til að öðlast þann sjálfsagða rétt að ráða sér sjálfir sem þjóð. Ég veit að reynsla mín úr skátastarfi getur nýst í margt. Ég tek klútinn og skyrtuna að sjálfsögðu með. Hvort ég fæ tækifæri til að hitta skáta þarna úti veit ég ekki en ég mun fagna þvi ef það verður hægt. Það voru ísraelskir skátar á landsmóti 1999 þannig að það eru til skátar þarna. Ef ég frétti af þeim mun ég heimsækja þá og nota tækifærið og útskýra hvað ég er að gera. Ef mér tekst að virkja þá með mér væri það alveg frábært," segir Aðalsteinn og bætir við að íslenskir skátar geta líka tekið þátt í því að stuðla að heimsfriði. „Með því að taka Ghandi sér til fyrirmyn- dar og mótmæla friðsamlega. Það er minnsta málið að skrifa bréf til viðkomandi stjórnvalda og segja að okkur líki ekki það sem er að gerast og að okkur finnist það rangt. Ef hver einasti skáti á íslandi gerir það eru strax komin 4000 bréf og ef allir skátar í heiminum skrifa til dæmis Ariel Sharon bréf, þá fær hann 45.000.000 bréf um að okkur líki nú ekki lengur þetta ástand og að þetta gangi ekki lengur. Það verða auðvitað allir að finna sinn farveg í þessu en við getum ekki farið út í það að vera með grjótkast og eyðileggja þyggingar í þágu friðar, því þá erum við að gera okkar málstað ógagn.“ Ekki í Rambó-leik En skyldi Aðalsteinn vera smeykur við að fara á Vesturbakkann? Óttast hann um líf sitt? „Nei, í rauninni ekki. Ég veit að ég er að fara inn á ótryggt svæði og að þarna er ofbeldi daglegt brauð. Ég hef líka búið mig undir það óvænta, að því leyti sem það er hægt. Ég veit að eitthvað óvænt kemur uppá og þó að ég viti ekki hvernig ég mun bregðast við skothríð eða sprengjum þá hef ég verið að búa mig undir það. Ég reyni að vera andlega undir það búinn að þurfa að bregðast við. Það er eini undirbúningur sem ég get fengið. En lífshætta? Jú, að ákveðnu leyti. Ég ber samt mikið traust til þeirra stofnanna sem ég er að fara fyrir. Þetta er allt fólk með mikla reynslu og ég treysti því bara að þetta fólk segi mér og kenni mér hvernig ég eigi að passa sjálfan mig og að það muni passa mig. Ég er ekki að fara út vegna þess að ég hef einhverja dauðaósk eða sé að fara í Rambó-leik. Ég er ekki spennufíkill," segir hann sannfærandi, brosir svo út í annað og bætir við: „Allavega ekki A A I Kveðja, Aðalsteinn ÞorvaIdsson ennþá, kannski verður það breytt þegar ég kem til baka." Eftir námskeiðið í Danmörku fer Aðalsteinn til ísrael í byrjun mars. Þaðan kemur hann ekki heim fyrr en í lok júlí. Hvað tekur þá við? „Ég hreinlega veit það ekki. Stefnan er að fá prestvígslu og byrja að starfa sem slíkur en mig langar líka mikið að komast f frekara nám og læra meiri guðfræði. Ég stefni á að sérhæfa mig í sálgæslu. Það er eiginlega hirðishlutverk prestsins, að aðstoða þá sem eiga um sárt að binda, hvort sem það er vegna ástvinamissis, heilsufarsvanda, fjölskylduaðstæðna eða ein- hvers annars." Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum? „Já, það vantar einhvern í Ægisbúa til að leysa mig af!“ segir Aðalsteinn og skellir uppúr. Skótastarf í 90 ár .Hlulir sem allir skótar eiga að vila“ „Þegar þú ert að læra að róa, skaltu ekki alltaf horfa á hvernig þú berð árina, með því móti verður þú aldrei duglegur ræðari. Horfðu heldur niður í bátinn." „Allar kirkjur á íslandi snúa þannig að kórinn snýr í austur. Þar sem tré eru halla þau heldur að sjó.“ „Hin fyrsta skylda skátans er að hlýða. Það er ein af aðalskyldum skátans að gagnast og hjálpa öðrum. Skáti er trúr við konung sinn, foreldra sína og yfirmenn.” Úr „Skátinn - Málgagn íslenzkra skáta“ janúar 1914 SKÁTABLAÐIÐ 19

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.