Skátablaðið


Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 6

Skátablaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 6
lOOdopa! Þegar þetta er skrifað eru einungis um 100 dagar í landsmót, það er verið að endurskoða landsmótsvefinn og nýr vefur mun lita dagsins Ijós innan skamms. Reynt verður að einfalda vefinn og gera hann aðgengilegri heldur en gamla vefinn. Þessi vefur mun gegna mikilvægu hlutverki þessa 100 daga sem eru fram að landsmóti og einnig vera mjðg áberandi á mótinu. Stefnt er að því að á landsmóti verði daglegur fréttaflutningur á vefnum, hægt að skoða upp- tökur af stórum viðburðum og daglegu lífi á mót- inu og margt fleira. En hvað er framundan? Það sem hefur verið í gangi, en er að fara að Ijúka er flokkakeppnin Búkolla. Um 100 flokkar taka þátt í keppninni og eiga aðeins tvö verkefni eftir. Keppnin endar um miðjan maí. Einhverjir flokkar hafa ekki skilað síðustu verkefnunum svo við hvetjum þá til að gera það hið fyrsta. Álfar og tröll komu saman og völdu dagskrá mótsins! Nú eiga allir flokkar að vera búnir að skila inn valdagskránni og munu fá stundaskrána senda í byrjun sumars. Þeir flokkar sem ekki hafa enn skilað valdagskránni eru beðnir um að gera það strax. Landsmól eftir 100 daga! - nýr lelkur. I tilefni þess að um hundrað dagar eru þar til 24. landsmót skáta verður sett að Hömrum, efnir landsmótsstjórn til Þrautaleiks. Leikurinn hófst þann 13. apríl á landsmótsvefnum (www.scout.is/jamboree2002) og 'stendur næstu sjö vikur. í hverri viku birtist ný þraut og það er um að gera að reyna að svara oft því það eykur einungis vinningslíkurnar. Dregið verður í byrjun júni og fá 10 heppnir vinning. Meðal vinninga er, svefnpoki, göngustafur, skátahandbókin og landsmótsbolur. Erlendir skótar fjölmenna ó londsmót! Frændur okkar Færeyingar ætla sko ekki að klikka á landsmótinu okkar í sumar því nú þegar eru tveir 45 manna hópar á fullu við að undirbúa sig fyrir komuna til l’slands. Það verða því amk. 90 þátttakendur frá Færeyjum og þeir skátar eiga eftir að setja skemmtilegan svip á mótið okkar. Einnig koma fleiri en 10 skátar frá, Ástralíu, Hong Kong, Austurríki, Belgíu, Finnlandi, Noregi, Danmörku, Þýskalandi o.fl stöðum. Námskeið Á nœstunni Námskeiðahald BIS er með rólegra móti í vor vegna margra annarra viðburða sem skáta- foringjar eru duglegir við að sækja. Næsta námskeið verður haldið helgina 24,- 26. maí. Það er námskeið fyrir starfsfólk útilífs- skóla skátafélaga. Fjallað er um öryggisþætti, samskipti við börn og uppbyggingu starfsins í útilífsskólunum. Þetta námskeið er „möst" fyrir alla sumarstarfsmenn. í ágúst verður svo Gilwellnámskeið á Úlfljóts- vatni. Gilwell er æðsta menntun skátaforingja og er námskeiðið ætlað skátum 19 ára og eldri. Seinni part ágúst verður svo flokksforingja- námskeiðið á sínum stað, 4 nætur á Úlfljóts- vatni þar sem skátar læra í verki út á hvað starf flokksins gengur og hvernig er farsælast að leiða það starf. Skráning fer fram á skrifstofu BÍS Lonpor tiiö oð ió nómskeið til þín? Vantar félagið þitt flokksforingjanámskeið? Veistu um 15 dróttskáta sem vilja fá útilífsnámskeið til sín? Langar þig að smala saman krökkum úr nokkrum félögum á gítarnámskeið? Vill félagið bjóða foringjunum sínum á kanó-námskeið nærri heimabyggð? Leiðbeinendahópur BÍS vex og dafnar með hverju árinu. Þess vegna er hægt að senda námskeið hvert á land sem er með nægilegum fyrirvara. Hafðu samband við skrifstofu BÍS og pantaðu námskeið fyrir þig og þitt félag. Síminn er 550 9800. Skótanámskei ð Fræðsluráð heldur yfir 20 námskeið á hverju ári í nánast öllu sem viðkemur skátafræðum. Meðal þeirra námskeiða sem voru haldin í vetur eru: -Leiðbeinendanámskeið í september. -Sveitarforingjanámskeið í október. -Vítamín fyrir flokksforingja í nóvember. -Dróttskátanámskeið í nóvember. -Útilífsnámskeið í febrúar. -Skyndihjálparnámskeið í febrúar. Skátum er bent á að skoða Skátadagatalið gaumgæfilega og skrá sig tímanlega á þau námskeið sem þeir hafa áhuga á að sækja. Mörg félög standa sjálf fyrir námskeiðum og því er gott að hafa samráð við stjórn félagsins um það hvaða námskeið eru sótt. Skráning á námskeið fer fram á skrifstofu BÍS. 6 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.