Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1928, Side 30

Sameiningin - 01.06.1928, Side 30
ento sköramu eftir kirkjuþing í fyrra. Séra Siguröur Ólafsson hefir einnig fariö til Piney og stutt þar aö undirbúningi undir fermingu. Forseti kirkjufélagsins hefir heimsótt íslendinga viö Sinclair og flutt hjá þeim guSsþjónustu. Einnig flutti hann íslenzka guösþjón- ustu i Chicago á síöastl. vetri. Meö því augnamiði aö sjá heimatrúboðsstarfinu sem bezt borgið á komandi ári, hefir framkvæmdarnefndin farið þess á leit viö séra Jóhann Bjarnason að starfa á því sviöi næsta ár, og kemur það fyrir þingið í tillögu frá framkvæmdarnefndinni. Hann kvaðst ekki geta gefiö ákveöiö svar fyr en á kirkjuþingi. Æitti þingiö að gera sitt ýtrasta til að fá þessu framgengt, ef þess er kostur. Þarfirnar eru miklar. Beiöni um þjónustu liggur fyrir frá söfnuöunum í Þing- vallanýlendu. Einnig tilmæli frá fólki við Sinclair. Svo þau önnur svæði, sem uefnd hafa verið, þó ekki væri fært neitt út starfssviðið. Þá legg eg fyrir þingið bréf þessu máli viðvíkjandi frá forseta hinna Sameinuöu kvenféliaga kirkjufélags vors. Kemur þar fram ný bending um að senda út kventrúboða að sumrinu til að stofna sunnu- dagaskóla og glæða áhuga fyrir kristilegri fræðslu. Vonandi getur þessi góöa tillaga aö einhverju leyti komist í framkvæmd. Að öðru leyti má vísa í bréfið sjálft. — Áhugi kvenféaganna í þessu og öðrum málum vorum, er gleðiefni hið mesta og ómetanleg upphvatning. Hei'ðingjatrúboSið er sífelt að vekja meiri athygli meðal fólks vors. Um það hefir verið ritað meira á liðnu ári i málgagn kirkju- félagsins en áður, og mun talsvert af því gert af prestum, söfnuðum, trúboðsfélögum og kvenfélögum, að glæða þekkingu og áhuga fyrir þessu máli. Skýrsla féh. sýnir árangurinn hvað fjársöfnun snertir. Um undanhald getur ekki verið aö ræða í sambandi við þetta mál, heldur fratnsókn. Á nokkrum stöðutn eru.trúboðsfélög. Annarstað- ar er málið tekið á dagskrá kvenfélaga, ungmennafélaga eða safnað- anna sjálfra. Aðal atriðið er ekki aöferðin, heldur árangurinn. Að sá skilningur komist að þetta mál er óaðskiljanlegt frá anda og eðli kristindómsins og sé borið fyrir hjarta af öllum kristnum lýð. Skýrsl- ur koma til þingsins frá trúboðunum, séra Octavíusi og frú hans. Má af þeim vænta upphyggingar og íkveikju. .Óþarfi er hér að fara mörgum orðum um gamalmennaheimi'lið Betel. Plagur þess stendur með miklum blóma, og það heldur áfram að sinna sínu fagra og þarfa hlutverki þannig, að það ávinnur sér og verðskuldar hylli almennings. Um jólaleytið í vetur, sem leið, færði hr. C. H. Thordarson heimilinu $10,000. gjöf. Áður hefir hann gef- ið heimilinu $5,000. Er það heimilinu ekki litið happ að eiga slikan vin. Vekur dæmi hans aðdáun og þakklæti allra þeirra, sem heim- ilinu unna. Að öðru leyti er vísað í skýrslu Betel nefndarinnar. Sérstök skýrsla er frá skólaráði Jóns Bjarnasonar skóla. Einnig frá skólastjóra, séra Rúnólfi Marteinssyni. Persónuleg afstaða mín við þetta mál er svo vel kunn að óþarfi er að endurtaka hana hér.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.