Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.02.1940, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.02.1940, Qupperneq 17
31 Um trúarafstöðu hans eru óefað mjög skiftar skoðanir. Dómar manna um þess háttar efni litast ávalt af þeirra eigin skoðunum. En í því sambandi kemur mér í hug smá- vægilegt atriði norður á Gimli fyrir mörgum árum. Eg mætti manni á stræti þar og maðurinn tók mig óðara tali. Hann var að mörgu leyti góður drengur, en hann var einn af þessum náungum, sem finst manndómur sinn vaxa við það að stæra sig af vantrú sinni. Það var mikill sláttur á honum þegar hann tilkynti mér það, að hann hei'ði alls enga trú. Rétt í því að hann var að stæra sig af þessu, bar að fleiri menn, og einn þeirra var séra Rögnvaldur. Hann lagði þetta til mála: “Eg held sá maður sé ekki til, sem hefir enga trú.” Með þessu finst mér hann hafi lcannast við sígildi trúarþarfarinnar fyrir alla menn. Hann fann þetta í sjálfum sér. Kornungur var hann, þegar hann, at eigin hvöt, kom til séra Jónasar heitins Sigurðssonar og bað hann að búa sig undir fermingu. Af honum hlaut hann lúterska fermingu. Þó hann síðar kæmist undir önnur áhrif mun trúaræðin ávalt hafa lifað í sál hans. Eg var alloft með honum við útfarir. Hann flutti þá ætíð vönduð skrifuð erindi. Það var ótvírætt i huga mín- um hvað sannfæring hans um eilífðarmálin varð ákveðnari og skýrari á síðari árum. Langmerkasti þátturinn í lífsstarfi séra Rögnvalds var það sem hann vann á sviði íslenzkrar þjóðrækni. Hann hafði óvanalega háa hugmynd um ísland og íslenzka þjóð. Mig minnir hann kalla hana eina af eilífðarþjóðunum. Var þáð skáldlegt ímyndunarafl hans sem vafði ísland dýrðar- ljóma, eða var þetta honum sannfæring, sem var grund- völluð á nákvæmri rannsókn að íslenzka þjóðin hefði yfir- lmrði sem verðskidduðu aðdáun og margborguðu samvizku- samlega athugun? Hvað sem honum var í hug í því sam- bandi, er það víst að hann sökti sér niður í íslenzkar bók- mentir, var þaulkunnugur sögu íslands, ferðaðist margoft þangað, var öflugasti leiðtogi Þjóðræknisfélagsins frá byrj- un og studdi af alefli alt það, sem laut að viðhaldi íslenzkr- ar tungu og íslenzkra bókmenta hér vestra. Nærri allir þeir prestar, sem hann fékk til starfs í kirkjufélagi sínu voru fengnir frá Islandi, til þess að hlynna sem mest að íslenzk- um áhrifum. Það sem hann ritaði var því sem nær alt á íslenzku. Tímariti Þjóðræknisfélagsins stýrði hann frá byrjun. Að öllu þessu vann hann af sterkri sannfæringu. Hann helgaði krafta sína óskifta íslenzkri menning, íslenzkri sál. Á því sviði mun hann hafa unnið sitt fegursta æfistarf.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.