Nýi tíminn


Nýi tíminn - 28.07.1955, Blaðsíða 10

Nýi tíminn - 28.07.1955, Blaðsíða 10
2 3 Huldufólkssaga Áttu þœr uð fara eða fara ekki? Það var einu sinni seint um kvöld, þegar amma var löngu sest á rúmið sitt og byrjuð að prjóna, að Bjössi kemur þjótandi inn og segist hafa séð huldufólk. Við systurnar skellum auð- vitað upp úr, eins og vanalega, þegar Bjössi kemur með þessa vit- ^ leysu að hafa séð huldufólk, en þetta var ekki í fyrsta sinn. Bjössi varð auðvitað öskuvondur og sagði: : Viljið þið bara koma með mér og gá, hvort þið sjáið ekki huldufólk. | — Já, auðvitað viljum við það, en þú verður, að vera fyrstur, sagði; Júlla. ■— Já, samþykkti Bjössi. — Jæja, þá skulum við bara ieggja af stað, sagði Stella. Þau læddust fram göngin. Auðvitað þurfti amma að heyra til okk- ar og kallaði: — Hvað eruð þið að flækjast, þegar húsbóndinn er ekki heima? — Æ, það gerir ekk- ert til, sagði Stella. Hún var yngst og amma hélt mest upp á hana, fannst Bjössa og Júllu. — Jæja þá, jæja þá, tautaði amma gamla á- byggilega 100 sinnum. Jæja. Þá voru þau loksins komin út. Mik- ið var orðið skuggalegt. — Það þýðir ekki að fást um það, sagði Bjössi borginmannlega. Þau heyrðu hófadyn i fjarska. — Við skulum ganga á hijóðið, sagði Bjössi montinn. Þær voru hálf- smeykar, — ef þetta væri nú huldufólk ? Stella leit á Júllu og það var eins og hún vildi spyrja: — Eigum við að fara eða ekki? — Jæja, við komum þá, sagði Júlla. Hún vildi ekki láta Bjössa sjá að hún þyrði ekki. Þau gengu lengi, lengi á hljóðið og alltaf heyrðu þau greinilegpri hófadyn. Og nú fannst þeim systrunum pabbi sinn segja: hvað eru krakkarnir að flækjast? Þau komu nær og nær og loks sáu þau, að þetta var pabbi og líka mamma systranna, — þau, sem sögðust ekki koma fyrr en á morgun. Og svo voru þau búin að ganga þessa löngu leið. Systrunum fannst þetta ekki neitt nema gaman, en Bjössi var nærri farinn að há- öskra af bræði. Stefanía Júlíusdóttir, 10 ára, Kópaskeri. £Inu sinnt var Skrítla Móðirin: Af hverju er hann Alli litli að gráta? Bjössi: Hann langar bara í kökuna mína, sem ég er að éta. Móðirin: Er hann bú- inn með sína köku? Bjössi: Nei, hann byrjaði einmitt að skæla meðan ég var að éta kökuna hans. Ártölin 1805 og 1905 Árið 1805 var Bessa- staðaskóli stofnaður. Þá höfðu skólarnir á hin- um fomu biskupssetr- ■ um, Hólum og Skálholti, lagst niður fyrir nokkr- um ámm, en framhalds- 1 skóli var um 17 ára skeið í Reykjavík. Það var Hólavallaskóli. — Bessastaðaskóli var hin merkasta stofnun, hafði mörgum ágætum kenn- uram á að skipa og út- skrifaði marga ágætis- 1 menn, sem óðar urðu þjóð sinni til sóma og nytsemdar. Má þar m. a. nefna Fjölnismenn, þá J ónas Hallgrímsson, Tómas Sæmundsson og ! Konráð Gíslason. Bessa- staðaskólinn var fluttur til Reykjavíkur 1846 og þá nefndur Latínuskól- inn, nú Menntaskólinn. Árið 1905 komst Is- land í daglegt samband 1 Framh. á 3. síðu. Einu sinni voru vikivakar almennasta skemmtun hér á landi. Vikivakarnir eða hinar fornu danssamkomui tíðkuðust mjög frá því um 1100 og héldust með ýmsum breytingum fram á 18. öld. ★ Einu sinni var mest af vaðmáli sem þurfti til fata á íslandi, ofið á heimilunum. Þegar búið var að vefa tóku þófararnir við og þæfðu voðina. Það var erfitt verk. Þegar búið var að þæfa voðina, var vant að gefa þeim sem þæfði einhvern góðan bita. Hét sá biti þófarabiti. Og svo er hér þófarabæn til Bárðar Snæfellsáss: Bárður minn á jökli, leggstu nú á þófið mitt, ég slial gefa þér lóna ÁRTÖLIN 1805 og 1905 Framh .af 2. síðu. við umheiminn og Mar- coni loftskeytastöð var sett upp við Rauðará við Reykjavík. Fyrsta símskeytið sem til lands ins kqm var frá Poldhu í Cornwall í Englandi þ. 26. júní 1905, kl. 10 og 38 mínútur síðdegis og hófst á þessari fregn: — Brezkt gufu- skip Ancona rakst á danskt skólaskip nálægt Kaupmannahöfn og sökkti því. Tuttugu og tveir drengir drukkn- uðu. innan í skóna, vettling á ldóna, þegar ég kann að prjóna, naglabrot í bátinn þinn, liálfskeifu undir hestinn þinn, mórautt lamb og gimb- urskel og meira, ef þú þæfir vel. Fiímerkjaþáttur 1 síðasta blaði var stuttur þáttur um frí- merkjasöfnun. Gert var ráð fyrir að ræða þetta áhugaefni margra nokkru nánar. Frímerki munu hafa verið gerð fyrst í Englandi og not- uð þar á bréf í fyrsta sinn 6. maí 1840. Á næstu áram þar á eftir tóku önnur ríki upp frí- merki t. d. Norðurlönd- in, Danmörk árið 1851, Noregur 1854, Svíþjóð 1855 og ísland 1873. Eftir að menn tóku að sækjast eftir að safna notuðum frímerkjum, hækkuðu þau brátt í verði og elztu frímerkin sem gefin vora út, kom- ust brátt í geysiverð. Þannig voru t. d. frí- merki frá smáríkinu Mauritíus, 7V2 eyris og 15 aura, seld skömmu eftir aldamótin á 54 þúsund krónur, — hvað myndu þau kosta nú! Næst verður sagt frá fyrstu íslenzku frí- merkjunum. Davíð kon- ungur og Davíð bóndi Prestur nokkur sendi vinnumann sinn á laug- ardagskvöldi eftir hesti, er hann ætlaði að kaupa af manni er Davíð hét og bjó hinum megin við ána. Um nóttina óx áin svo, að vinnumaðurinn komst ekki heim fyrr en fólk var gengið í kirkj- una. Hann fer líka strax í kirkjuna, en í því hann gengur inn gólfið, vill svo til, að prestur er í stólnum að vitna í Davíð konung og segir: Hvað segir svo Davíð um þetta? Vinnumaðurinn hélt, að spurningin væri til sín og svaraði hátt: —- Hann segist skuli senda hestinn, þegar þér send- ið peningana. KLIPPID HÉRI Þríhjólið Eftir Sigurborgu Hilm- arsdóttur, 9 ára, Eski- firði. Einu sinni var dreng- ur, sem hét Pétur. Leik- félagi hans hét Jón. Þeir voru beztu vinir. En einn morguninn, þegar Pétur kom út, sá hann Jón á spánýju þríhjóli. „Komdu að leika þér“, kallaði Pétur. „Nei, sagði Jón, „ég vil ekki leika mér við Ég er kominn beim Samkvæmt óskum birtist eftirfarandi ljóð eftir Loft Guðmundsson, sem kunnugt er af söng Hauks Morthens í útvarpinu. Hér stóð bær með burstir f jórar, hér stóð bær á lágum hól. Hér stór bær, sem bernskuminning vefur bjarma af morgunsól. Hér stóð bær með blóm á þekju, hér stóð bær með veðrað þíL Hér stóð bær — og veggjabrotin ennþá ber við lækjargil. Hér stóð bær, sem hríðin barðl, hér stóð bær, sem veitti skjól. Hér stóð bær, sem pabbi byggði undir brekku á lágum hól. Hér stóð bær, sem blíðust móðir vígði bæn og kærleiksyl. Hér stóð bær, — og veggjabrotin ennþá ber við lækjargil. Ég er kominn heim í heiðardalinn. Ég er kominn heim með slitna skó. Kominn lieim til að heilsa mömmu. Kominn heim í leit að ró. Kominn heim til að hlusta á lækinn, sem hjalar við mosató. Ég er kominn heim í heiðardalinn. Ég er kominn heim með slitna skó. þig, þú átt ekkert þrí- hjól.“ Pétur hugsaði mákið um það, hvemig hann ætti að komast yfir þríhjól til þess að Jón vildi aftur leika við hann, því að honum þótti mjög vænt um Jón. En hann sá ekk- ert ráð. Einn daginn fór Pétur niður á bryggju. Jón var þar líka á þrí- hjólinu. Allt í einu sá Pétur að framhjólið hjá Jóni var að renna fram af bryggjunni og augna- bliki seinna, var hann kominn í sjóinn. Pétur rauk á stað og kom rétt þegar Jón var að sökkva. Hann lagðist á kryggjuua og lét fæt- urna hanga fram af. „Taktu í mig,“ kall- aði hann um leið og Jóii kom upp. Jón tók í fótinn á honum og svo hjálpaði Pétur honum upp á bryggjuna. Pétur leit í kringum sig og kom auga á gogg, sem lá á bryggjunni. „Haltu í mig,“ sagði hann. Svo lagðist hann á bryggj- una og gat náð í hjól- ið með goggnum og dregið það upp á bryggjuna. Daginn eftir kom Jón og faðir hans til Pét- urs með stóran kassa sem í reyndist vera hjól eins og Jón átti. Það voru launin fyrir björg- unina. Eftir það léku þeir Jón og Pétur sér saman á hverjum degi. Ég minnist þess Verðlaunakeppnin um ferðasöguna, sbr. næst síðasta blað, stendur til fyrsta ágúst. Fyrsta sagan kom 12. þ. m. frá 12 ára telpu í Reykja- vík, sú næsta frá Akur- eyri. Athugið að póst- leggja bréfin með grein- um í samkeppnina fyrir 1. ágúst. Ártölin 1816 og 1916 Hvaða minnisverðir j atburðir í sögu þjóðar- innar gerðust árin 1816 og 1916? Hugleiðing til næsta miðvikudags. Fyrsta hreiðrið Framh. af 1. síðu. Vertu nú sæl, Óska- stund. Þinn Dýravinur.“ Það á ekki að vera nein hætta að setja hnausa, steina eða önnur auðkenni í námunda við hreiður. En það verður að varast að skadda hreiðrið. Það má ekki láta mold eða rusl falla í hreiðrið, og ekki hreyfa eggin. En það ar algengt, að fuglar sinni hreiðrum sínum, þó að merki séu sett í námunda við þau, ef varúðar er gætt. í þessu tilfelli, sem dýra- vinur talar um, hefur sennilega eitthvert óhapp komið fyrir. Hvort var hyggi- legra? Fatasalinn: — Ég vildi að ég hefði selt mannin- um fötin talsvert dýr- ari fyrst hann ætlar að svikja mig um borgun- ina. Þó er aftur þar á móti, að tapið hefði orð- ið stærra. Nei, — það hefði líklega verið rétt- ara að setja heldur lægra verð á fötin, svo að skaðinn væri ekki svona mikill. Górilluungar í dýragarði Fátt þykir börnum í útlöndum betri skemmt- un en að skoða dýrin í dýragörðunum. Sum þeirra eru ekki árenni- leg, eins og t.d. górillu- apamir. En enginn þarf að vera hræddur við þessa litlu górilluunga. sem nýkomnir eru frá frumskógum Afriku í dýragarðinn í Kaup- mannahöfn.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.