Nýi tíminn - 21.05.1959, Síða 12
Þingið sat 217 daga, ræddi
171 mál, samþykkti 49 lög
78. löggjafarþingi var slitiS i gœr
NÝI TÍMINN
Fimmtudagur 21. maí 1959 — 16. tölublað. — 18. árgangur.
Ásgeir Ásgeirsson, forseti fsl., sleit Alþingi sl. fimmtud.
Hafði það þá staðið frá 10. október sl., alls 217 daga, og
afgreitt m.a. 49 lög og samþykkt frumvarp til stjórnskip-
unarlaga og 24 ályktanir.
Þinglausnir voru þriðja og síð-
asta málið á dagskrá Alþingjs í
gær. Er tvö fyrri málin höfðu
verið afgreidd flutti J6n
Pálmason, forsetij sameinaðs
þíngs, yfirlit um störf Alþingis.
171 þingmál — 548 þingskjöl.
Haldnir voru alls 303 þingfund-
ir, 128 í neðri deild, 123 í efri
deild og 52 í sameinuðu þing.
Fyrir þingið voru lögð alls 115
frumvörp, þar af 47 stjórnar-
frumvörp, 19 í neðri deild, 26 í
efri deild og 2 í sameinuðu
þingi. Þingmannafrumvörpin
in voru 68 talsins, 45 þorin fram
í neðri deild og 23 í efri deild. í
flokki þingmannafrumvarpa eru
tajin 22, sem nefndir fluttu,
þar af 17 að beiðni einstakra
ráðherra.
Alls voru 49 frumvarpanna
samþykkt sem lög, 25 stjómar-
frumvörp og 24 þingmanna-
frumvörp. Eitt frumvarp til
stjórnskipunarlaga var sam-
þykkt. Tvö þingmannafrum-
vörp voru felld, 4 afgreidd með
iþkstuddri dagskrá, 3, þar af 1
stjómarfrumvarpi, vísað til rík-
isstjórnarinnar,- en 56 urðu ekki
útrædd, þar af 21 stjómarfrum-
varp.
í sameinuðu þingi voru born-
ar fram 49 þingsályktunartillög-
ur, 24 þeirra voru samþykktar
sem ályktanir Alþingis, einni
vísað til ríkisstjórnarinnar en
24 urðu ekki útræddar. Ellefu
fyrirspurnir voru bomar fram í
sameinuðu þingi og allar rædd-
ar.
Mál til meðferðar í þinginu
voru 171 og tala préntaðra
þingskjala 548.
Leggja til orustu.
Er þingforseti hafði flutt yf-
irlit um störf þingsins flutti
hann ræðu, þar sem hann m.a.
þakkaði þingmönnum góða og
vinsamlega samvinnu, svo og
starfsfólki Alþingis. Síðan
mælti Jón Pálmason:
„Við alþingismenn stöndum
nú á vegamótum. Við erum eins
og það lið', sem til þess er
dæmt. að leggjá út í orustu.
Hverjir þaðan koma heilir og
hverjir hverfa er álíka óvíst
eins og það, hvernig veðrið
verður á morgun eða hinn dag-
inn. Nú þegar er þó vitað, að
nokkrir af eldri og reyndari
alþingismönnum ætla að draga
sig í hlé og halla sér að frið-
samlegri og kyrrlátari störfum.
Eg vil alveg sérstaklega þakka
þessum mönnum langa og góða
samvinnu og heilladrjúga starf-
semi og ég óska þeim allrar
hamingju á komandi tíð. Urn
okkur hina, sem í óvissuna
leggjum, er sú bót í máli, að
orustan er annars eðlis en
vopnaviðskipti fyrri alda. Hún
varðar ekki líf og dauða í bók-
staflegum, líkamlegum skilningi
heldur hitt, hverjir eigi aftur-
kvæmt í fylkingu alþingis-
manna og ht^rjir ekki, og hvort
sem við hittumst fleiri eða
loknum kosningum, þá vil ég
nú óska öllum háttvirtum al-
þingismönnum og þeirra fjöl-
skyldum góðrar heilsu og per-
sónulegrar. hamingju Hinar
somu oskir flyt ég ollu starfS--:
fólki Alþingis.“
Eystéihn Jónsson þakkaði
þingforseta skörulega og rétt-
láta fuhdarstjóri og óskaði
honum og fjölskyldu hans allra
heilla. Tóku þingmenn undir
þau orð með því að rísa úr
sætum.
Framhald á 11. síðu.
★
★
Frá f j áröflunamefnd
Alþýðubandalagsins
Kosningaundirbúningur er nú hafinn af fulliun krafti.
Margt kallar að og mörgu verður að sinna ef starfið
á að vera í lagi. Flest verkefnin eru þess eðlis, að þvi
aðeins verða þau leyst að FÉ SÉ FYRIR HENDI.
Það má ekki verða að fjárskortur dragi úr starfi oklcar
og minnki þar með sigurmöguleika okkar í kosningunum.
Okkur hefur ætíð tekizt að sigrast á þeim vanda, þegar mik-
ið hefur le.gið við, og svo mun einnig verða nú. En til
þess að svo verði þurfum við stuðning allrp. velunnara
Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið lieitir á alla fylgjendur sína að bregð-
ast nú fljótt við og styrkja kosningasjóðinn. Öll framlög
eru okkur jafn dýrmæt. Aðalatriðið er íað allir leggi eitt-
hvað af mörkum, hver eftir sinni getu; þá verður vandinn
leystur. Sérstaklega eru þau framlög dýrmæt sem koma
fljótt.
Söfnunargögn eru tilbúin og verða afgreidd á skrifstofu
Alþýðubandalagsins. — Alþýðubandafegsfólk, takið sönn-
unargögn — styrkið kosningasjóðinn.
Gott starf gefur sigur.
FJÁRÖFLUNARNEFNDIN.
Alþingi ákveður að reistur
skuli viti á Geirfugladrangi
Áki Jakobsson neitaði að flytja ásamt öðrum fjár-
veitinganefndarmönnum álvktunartillögu um það!
fiií V: ■
Þrjór mótmælaorðsendingar
aihentar Bretum
Utanríkisráðherra, Guðmundur f. Guðmundsson, kall-
aði forstöðumanna brezka sendiráðsins, hr. Summer-
hayes, á fund sinn og afhenti honum þrjár mótmæla-
orðsendingar þar sem íslenzka ríkisstjórnin mótmælir
harðlega tilteknum atriðum í hernaðarofbeldi Breta hér
við land undanfarið.
Á fundi sameinaðs þing var nýlega samþykkt samhljóða
svofelld tillaga til þingsályktunar, sem þingmenn allra flokka
nema Alþýðuflokksins báni fram:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni áð gera í samráði við
vitamálastjóra ráðstafanir til þess, að reistur verði svo fljótt
sem við verðtir komið viti í Geirfugladrangi.“
í erindi dagsettu 13. þ.m. er
rætt um þann atburð er brezkt
herskip hindraði töku veiði-
þjófsins Ashanti, sem lesendum
Nýja tímans ©r vel kunnur, og
segir svo m.a.:
„Hér er um enn eitt dæmi að
ræða, að hrezk herskip hindri
íslenzk varðskip að skyldu-
störfum og komi í veg fyrir
að þau taki veiðiþjófa langt
innan íslenzkra fiskveiðimarka.
íslenzka ríkisstjórnin mót-
thælir harðlega þessu augljósa
toroti á alþjóðalögum og full-
veldi landsins og geymir sér all-
an rétt í þessu sambandi.
fslenzka ríkisstjórnin hefur
veitt því athygli, að í þessu
tilviki hefur sú regla verið
torotin, sem hingað til hefur
verið fylgt, að brezk herskip
komi ekki il veg fyrir töku
brezkra togara, sem staðnir eru
að veiðum innan fjögurra mílna
frá grunnlínum."
í annarri mótmælaorðsend-
ingu er rætt um framferði hér-
iskipsins Contest við varðskip-
ið Maríu Júlíu, og segir m.a.
ið Maríu Júliu, og. segir m.a.
svo:
„Atferli hiris brezka herskips
varð eigi einungis til þess að
hamla ferðum íslenzks varð-
skips, sem v.ar að framkvæma
lögboðin skyldustörf innan ís-
lenzkra fiskveiðimarka, heldur
stofnaði það einnig öryggi varð-
skipsins og lífi áhafnar Þess í
hættu.
í þessu sambandi er einnig
rétt að geta um atvik, sem varð
1. maí 1959 undan Álsey. ís-
lenzka varðskipið Þór var að
nálgast brezka togarann Kelly,
GY-6, sem skemmt hafði net
fyrir íslenzkum fiskibátum.
Kom Contest á vettvang og
sigldi þvert í veg fyrir Þór frá
stefnu til bakborðs við íslenzka
varðskipið. Tókst naumlega að
forða árekstri. Þetta atferli.
endurtók Contest tvívegis.
Ríkisstjórn íslands mótmælir
harðlega slíku atferli brezkra
herskipa innan íslenzkrar lög-
sögu. Þegar erlendum herskip-
um er fyrriskipað að koma i
veg fyrir lögregluaðgerðir inn-
an fiskveiðimarka annars ríkis,
er það lágmarkskrafa að lagt sé
fyrir þau að virða .alþjóðlegar
siglingareglur.
Með skírskotun til orðsend-
ingar sinnar, dags. í dag, varð-
andi skyldustörf íslenzkra varð-
skipa innan fiskveiðimarka
landsins, endurtekur ríkis-
stjórn íslands þá kröfu sína,
að brezk herskip verði tafar-
laust kvödd brott-“
í þriðju orðsendingunni er
svarað mótmselaorðsendingu
brezku stjórnarinnar út af því
að Þór reyndi að taka land-
helgisbrjótinn Arctic Viking, og
lýkur orðsendingu íslenzku rík-
isstjórnarinnar þannig:
„Ríkistjórn íslands mótmælir
enn harðlesa íhlutun brezkra
herskipa innan íslenzkrar lög-
sögu, telur hana skýlaust brot
á alþjóðalögum og fullveldi
landsins og 'krefst þess að her-
skipin verði kvödd á brott án
frekari tafar.
Skal vakin athygli á því, að
brezka ríkisstjórnin er eina rík-
isstjórnin, sem hefur látið sér
sæma að beita herskipum sínum
til þess að koma j veg fyrir að
íslenzk lögregluyfirvöld fái kom-
ið fram lögum innan íslenzkra
fiskveiðimarka.
Hin óvopnaða íslenzka þjóð
hefði ekki vænzt þess, að ríkis-
stjórn lands, sem talið hefur
verið vina- og bandalagsland,
gripi til slíkra ráðstafana."
Geirfuglaídrangur er sem
kunnugt er lítið sker alllangt
auðvestur af Reykjanesi, um 9
sjómílur úti af Eldeyjardrangi.
Umhverfis Geirfugladrang eru
aflasæl og fjölsótt fiskimið, auk
þess sem drangurinn er á sigl-
ingaleið flutningaskipa.
Samkvæmt reglugerðinni um
12 sjómílna fiskveiðilandhelgi
Íslands er Geirfugladrangur
innan takmarkanna og skal
dregin markalína í kringum
hann 12 sjómílur frá honum.
(Geirfugladrangur er nákvæm-
lega á 63°35‘8 norðlægrar
breiddar og 23°17‘3 vestlægrar
lengdar).
Mikil hætta hefur þótt á
því að Geirfugladrangur
liyrfi með öllu í sjó, bæði
vegna þess að úthafsöldur
ríða stöðugt á honum og
brjóta smám saman niður
en þó einnig og ekki síður
vegna aðgerða erlendra
manna. Á styrjaldarárunum
notaði brezka hernámsliðið
Geirfugladrang nefnilega
sem skotmark við sprengju-
kastæfingar flugmanna
sinna. Og bandaríska her-
námsliðið tók síðan við af
Bretum og hefur um langt
árabil alltaf öðru hverju
haldið uppi sprengjukasti á
dranginn.
Karl Guðjónsson og Pétur
Ottesen beittu sér fyrir að allir
fjárveitinganefndarmenn Al-
þingis flyttu þingsályktunar-
tillögu þá sem birt er að ofan.
Féllust 8 af 9 nefndarmönnum
á það, en einn ncitaði, fulltrúi
Alþýðuflokksins I nefndinni,
Áki Jakobsson!! Vildi hann
engan þátt eiga í flutn-
ingi slíkrar tillögu og urðu
flutningsmenn hennar því þessJ
ir 8 fjárveitinganefndarmenn:
Pétur Ottesen, Karl Guðjóns-
son, Halldór Ásgrímsson,
Magnús Jónsson, Sveinbjörn
Högnason, Jón Kjartansson,
Karl Kristjánsson og Halldór
E. Sigurðsson.
Tillagan var á dagskrá
kvöldfundar sameinaðs þings í
fyrradag, en kom þá ekki til
umræðu vegna þess að fundur-
inn varð ekki lögmætur eins og
rakið var hér í blaðinu í gær.
Á fundi sameinaðs þings í gær
var tillagan svo tekin á dag-
skrá samkvæmt sérstakri beiðni
9 þingmanna. Mælti fyrsti
flutningsmaður, Pétur Ottesen,
fyrir þingsályktunartillögunni
í stuttri ræðu, lagði áherzlu á
að nauðsynlegt væri til öryggis
að reisa vita á Geirfugladrangi
og koma þar fyrir radiomerkj-
um. Væri hér um öryggisráð-
stöfun að ræða sem brýna
nauðsyn bæri til að hrundið
yrði í framkvæmd sem allra
fyrst.
Fleiri tóku ekki til máls og
var tillagan samþykkt með
samhljóða atkvæðum sém á-
lyktun Alþingis.