Nýi tíminn - 15.03.1962, Side 6

Nýi tíminn - 15.03.1962, Side 6
Hernánissiðgæði ^lltaf er íslenzku þjóðfélagi 'að fara fram. Sú tíð er _ að þjófnaður þætti eitt af undrum veraldar á Islandi, að þeir menn virtust sjúklega þjófhræddir sem læstu húsum sínum og hirzlum, að svik væri eitt- hvað sem gerðist í hinum stóru og spilltu útlöndum. Okkur hefur sannarlega farið fram og aldrei eins ört og síðustu áratugina, og nú er svo komið að við erum orðnir jafnokar þeira sem fremstir standa; jafn- vel upphæðir þær sem hér er stolið og rænt myndu sóma ser hjá hvaða stórþjóð sem er. Og það eru eng- ir útigan’gsmenn í þjóðfélaginu sem stunda þessa iðju, heldur þeir æðstu og voldugustu, menn sem hlotið hafa sérstaka háskólamenntun til þess að vernda lög- in, eintómir framkvæmdastjórar og forustumenn í samvinnurekstri og einkarekstri, og aðalleiðtoginn er æðsti ráðamaður þjóðarinnar í efnahagsmálum, sjálf- ur seðlabankastjóhi landsins, maðurinn sem hefur nú jafnvel fengið vald til þess að ákveða gengi ís- • lenzkrar krónu. Með þvílíku afreki höfum við raun- ar skotizt langt fram úr öllum nálægum þjóðum; að- eins í Suður-Ameríku og sumstaðar í Bandaríkjunum myndi unnt að finna hliðstæður ef vel væri leitað. JJvernig stendur á þessari öru framþróun í þjófnaði og svikum, hvað kemur til að kunnir fyrirmenn í þjóðfélaginu sitja á sakabekik, og það er talað um að einn hafi stolið níu milljónum króna, aðrir hafi svik- ið undan gjaldeyri sem nam rúmum sex milljónum króna, að þeir hafi stundað smygl í stórum stíl, bók- haldsfalsanir, svik og pretti. Skýringin er augljós, öll þessi iðja er stunduð í skjóli hemámsins og er bein afleiðing þess. Olíufélagið h.f., þar sem blandað er sam- an fjármagni samvinnuhreyfingarinnar og einkaauð- valdsins, hafði um langt skeið einkarétt á viðskiptum við hernámsliðið á Keflavíkurflugvelli og í Hvalfirði. Það fékk tekjur sínar greiddar í dollurum — og eftir- litið með dollurunum var í höndum Vilhjálms Þórs. Svikin voru framkvæmd með virkri og vel borgaðri aðstoð yfirmannanna á Keflavíkurflugvelli, þeir föls- uðu skýrslur þegar þurfti að smygla varningi til landsins; í aðalstöðvum Standard Oil í Bandaríkjun- um var einnig aðstoðað dyggilega við svikin, pening- arnir voru færðir af einum leynireikningnum á ann- an, þar til þeir voru komnir í kauphallirnar í Wall Street og alla leið til Sviss. Þetta stærsta svika- mál í sögu íslands var skipulagt sameiginlega af hernámsliði og hermöngurum, og í því birtist hernáms- siðgæðið eins og í brennigleri. Fínir menn í hópi her- námssinna segja stundum að þeir vilji ekki láta ameríkaníséra okkur; en það er verið að ameríkaní- séra okkur dag hvern, kasta fyrir borð gömlum og úr- eltum hugmyndum um heiðarleik og siðgæði og sóma- samlega hegðun, þar til hinir æðstu borgarar birtast allt í einu sem útfarnir afreksmenn. Það er hernámið sjálft sem situr á sakabekk í olíumálinu. I^nnþá hrekkur íslenzkur almenningur við þegar hon- um berast slíkár fregnir. En þeir menn sem stjórna þjóðfélaginu kippa sér ekki upp við smámuni. Það hefur verið vitað í meira en tvö ár að Vilhjálmur Þór hefði á nýjan leiik gerzt sekur um hin herfilegustu lögbrot og svik, en engu að síður heldur hann enn sínu tigna embætti og hefur meiri völd en nokkru sinni áður. Trúlega hafa stjórnarvöldin áhyggjur af því einu hvaða orðu eigi að sæma hann daginn sem hann verður dæmdur, því hann er nú þegar búinn að fá þær allar. Málsóknin í olíumálinu er leifar frá liðinni tíð; nútíðin birtist í þvd að hinir seku munu allir halda aðstöðu sinni og völdum í landinu, ef her- námssiðgæðið á enn að fá áð halda áfram að sýkja ís- lenzkt þjóðfélag. — m. Jakob Jakobsson „Eiginlegar vetrarsíldveiðar, þ.e. síldveiðar eftir áramót, hófust ekki fyrr en 1961. Þær voru að vísu reyndar 1960, en um miðjan. janúar hvarf síldin. í fyrra tókst að fylgja göng- unni eftir til febrúarloka og eftir stutt hlé í marz hófst svo vorsíldarvertíðin|, þannig að nokkrir bátar stunduöu ein- göngu síldveiðar með herpinót á árinu 1961, hreyfðu engin vciðarfæri önnur en herpinót. Arið 1961 eru því mörkuð tíma- mót í íslcnzkum síldveiðum. Þetta, ásamt góðri sumarvertíð, gerði það að verkum að síld- veiðar Islendinga urðu meiri cn nokkru sinni í sögu lands- ins. Það er draumur okkar að hluti flotans geti stundað slík- ar veiðar árið um kring“. Orðin hér að ofan mælti Jakob Jakobsson fiskifræðing- ur í þann mund er hann v-ar að leggja af stað í fyrsta síld- arleiðangur ársins á Ægi nú eftir áramótin. Sú kvað hafa verið tíðin að Sovétmenn enduðu vart svo ræðu né samþykkt um fram- kvæmda- og framfaraáætlanir sínar að þeir nefndu ekki nafn Stalíns, — og þótti íhaldskerl- ingum úti á Islandi að vonum slíkt fim mikil. Nú ljúka báta- skipstjórar á Islandi vart svo nokkurri fundarsamþykkt að þeir segi ekki: Við heimtum Jakob yfir síldarleitina! (þegar skal tekið fram að hér er síður en svo verið að gefa í skyn að nokkuð sé líkt með Jakobi og bátaskipstjórunum annars- vegar og sovézkum hinsvegar, fram yfir það sem flestu fólki er sameiginlegt). En hver er hann þessi Jakob sem sjómennirnir heimta? Við hittum Jakob Jakobsson uppi í hinu nýja húsi Fiski- deildarinnar við Skúlagötu, þar er vinnustaður hans þegar hann er ekki einhversstaðar úti á sjó að eltast við síld. Þar uppi hefur hann ágæta útsýn yfir sundin blá, Akrafjall og Skarðs- heiði og alla þá margrómuðu fjólubláu drauma, en kannski verður honum eins oft litið á flösku eina mikla sem hann hefur á borðinu hjá sér; 'í þess- ari flösku er nefnilega stærsta síld heimsins; það er lygilega mikill fiskur, sennilega norð- lenzkrar tröllaættar. Þétta 10 ára síldartröll, 46,5 sm langt veiddi Hrafn Sveinbjamarson út af Melrakkasléttu sumarið 1955 — og fannst einu dag- blaðanna þá svo mjög um ágæti bátsins að það tók fram að hann hefði komið með þennan risafisk innanborðs til hafnar. Jakob er mjög viðfeldinn ung- ur maður, Austfirðingur og Tímamót í í Húnvetningur að ætterni. Faðir hans, Jakob Jakobsson, var 60 ár á sjó, lengstaf skipstjóri. Jakob fiskifræðingur hefur einnig stundað sjó frá ferm- ingu — og fram á þennan dag í fríum sínum. Fræði sín lærði hann í Skotlandi og lauk prófi þaðan 1956. Hjá Fiskideildinni vann hann fyrst að veiðarfæra- tiiraunum og ýmsum síldar- rannsóknum, en tók við stjórrí síldarrannsóknanna fyrir réttu ári. Fyrirrennarar hans í því starfi voru dr. Árni Friðriks- son og dr. Hermann Einarsson. — Og nú skulum við spyrja Jakob nokkurra fávíslegra spurn- inga. — Hver er tilgangurinn með þessu rannsóknarstarfi ykkar? — Tilgangurinn með þessum rannsóknum er að afla eins mikillar vitneskju og unnt er um síldina við ísland, svo þá vitneskju megi nota í þágu síld- veiðanna á margan hátt, bæði til að segja fyrir um veiðihorf- ur og stofnstærð, m.a. með til- liti til hugsanlegrar ofveiði. Og þessi vitneskja hefur að sjálf- sögðu mikil áhrif á veiðarnar. Það eru miklar sveiflur á stofninum; en veiði fer einnig mjög eftir hegðun síldarinnar, torfustærð og því hvort torf- urnar hreyfast hratt eða hægt, ekki sízt vegna þess að herpi- nótaveiðarnar, sem við stund- um, takmarkast svo mjög við torfustærð. Þetta á því fremur við um síldveiðar en aðrar veiðar. — Hvemig farið þið að því að afla þessarar vitneskju? — Hvað viðvíkur stofnstærð notum við einkum þrennskonar aðferðir. í fyrsta iagi að taka sýnishorn úr aflanum og rann- saka þau með tilliti til margs- konar eiginleika: aldurs, kyn- þroska, lengdar, þyngdar og hryggjarliðafj'ölda, Með þessum athugunum er í fyrsta lagi unnt að greina síld- arstofnana út frá þeim sýnis- hornum sem tekin eru. Þegar aldursákvarðanir eru bomar saman frá ári til árs er oft unnt að reikna út stærð hvers aldursflokks. Við eigum við ýmsa örðugleika að etja í þessu efni, því ef þetta á að vera öruggt verða sýnishornin að vera einkennandi fyrir allan stofninn. Erfitt er að segja um það, þvi við veiðum síldina á göngu eða i vetrardvala, en ekki á hrygningartímanum. Á hrygningartímanum er maður viss um að stofninn er til stað- ar, annars ekki. Sýnishoornin geta því gefið ranga mynd af samsetwingu stofnsins hverju sinni. Vegna þess hve erfitt er með þessari aðferð að fá nákvæma mynd af stofnstærðinni eru framkvæmdar umfangsmiklar merkingartilraunir á hverju ári, þ.e. síldin er veidd, fest í hana merki og síðan er henni sleppt aftur í sjóinn. Hlutfallslegur fjöldi endurheimtra merkja er notaður til að reikna út stofn- stærðina. HVAÐ GERA ÞEIR ( FISKIDEILDINNI? Sverrír Guðmundsson, aðstoðarn Þriðja aðferðin við að ákvarða stofnstærð er könnun á út- breiðslu og stærð síldarstofna með bergmálsleitartækjum eins og notuð eru í Ægi. Auk stofnstærðar eru göngur síldarinnar eitt af aðalviðfangs- efnum okkar. Við rannsóknir á göngum- síldarinnar veita merk- ingarnar öruggasta vitneskju, auk þess fylgjumst við með göngunum með notkun síldar- leitartækjanna. Því má segja að síldarmerkingarnar og síldar- leitin þjóni rannsóknunum á tvennan hátt, þ.e. auki þekkingu okkar bæði á stof nstærð og göngum síldarinnar. — Hefur orðið árangur af . þessum merkingum ykkar? — Já, árangur af síldarmerk- ingum hefu.r orðið mjög mikill, miklu meiri en hinir bjartsýn- ustu þorðu að vona. — Hvenær voru síldarmerk- ingar fyrst hafnar? — Síldarmerkingar hófust við Norðurland árið 1948, en 1953 hófust þær við Suðvesturland. Dr. Árni Friðriksson var brauf- ryðjandi amerískrar merkingar- aðferðar í Evrópu og má með #■■)' — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 15. marz 1962

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.