Nýi tíminn - 15.03.1962, Blaðsíða 7

Nýi tíminn - 15.03.1962, Blaðsíða 7
„Við heimtum Jakob", segja siómennirnir — " Hér rœðir hann um leyndardóma síldarinnar dldveiðunum árið 1961 Stærsta síld sem veiðst hefur f heiminum svo vitað sé. Hún er 46.5 cm löng og veiddist út af Melrakkasléttu 1955 á Hrafni Sveinbjarnarsyni. sildin er tíu ára gömul, en meðalstærð sílda A þeim aldri er 35 cm. Áður var ekki vitað um stærri síld en 42 cm langa. I fyrra veiddist 44 sm. síld við Kolbeinsey. íaður Jakobs. (Ljósm. Þjóðv. A.K.) sanni segja að þessi aðferð hefur hvergi borið betri árang- ur en hjá okkur. Sem dæmi um þetta má nefna, að í samvinnu við norskan starfsbróður höfum við reiknað út stærð norska síldarstofnsins árlega síðan 1953, og eru þessir útreikningar eingöngu byggðir á merkingar- tilraunum Islendinga á Norður- landsmiðum. — Þið talið um síldarstofna, eru margir síldarstofnar hér? — Hér við land eru þrír meg- instofnar: íslenzka sumarsíldin, hryggnir aðallega í júlí, ís- lenzka vetrarsíldin, er hrygnir í marz-apríl. Svo er hluti af norsku vorgotssíldinni hjá okk- ur á sumrin, en hún greinist aftur í norðlægan og suðlægan stofn. — Þú talaðir áðan um rann- sóknir á torfumyndun. — Já, hegðun síldarinnar, torfumyndunin, hefur mikla þýðingu fyrir veiðarnar. Torfu- myndum rannsökum. Við fyrst og fremst með leitartækjum. Þar er mest komið undir um- hverfi síldarinnar, sjónum sjálf- um,' — en þar erum við komn- ir inn á svið starfsbræðra minna, en þær ' rannsóknir þeirra eru mjög mikilsverðar sem undirstöðurannsóknir varð- andi síldina. Slíkar rannsóknir hafa reynzt ómetanleg hjálpar- gögn við síldarleitina. ÖIl skyn- samleg síldarleit verður að byggjast á skipulcgum umhverf- isrannsóknum. — Hvernig hafa þessar að- ferðir ykkar reynzt við að afla nauðsynlegrar vitneskju um síldina? — Ennþá vitum við ekki með vissu um stærð íslenzku síld- arstofnanna, en öll okkar gögn benda til þess að þeir hafi ver- ið í talsverðum vexti á undan- förnum árum .og ættu að geta staðið undir verulegum veiðum. Það er meðal annars af þessum orsökum að lögð hefur verið á það megináherzla að koma af stað vetrarsíldveiðum sunnan- lands, einkum eftir að veiði- tæknin breyttist svo, að slíkar veiðar eru framkvæmanlegar. — Hvenær hófust vetrarsíld- veiðar? — Eiginlegar vetrarsíldveiðar, þ.e. veiðar eftir áramót, hófust ekki fyrr en 1961. Þær voru að vísu reyndar 1960, en um miðj- an janúar hvarf síldin. 1 fyrra tókst að fylgja göngunni eftir til febrúarloka, og eftir stutt hlé í marz hófst svo vorsíldar- vertíðin, þannig að nokkrir bátar stunduðu eingöngu síld- veiðar með herpinót á árinu 1961, hreyfðu engin veiðarfæri önnur en herpinót. Á árinu 1961 eru því mörkuð tímamót í ís- Ienzkum síldveiðum. Þetta á- samt góðri sumarvertíð gerði það að síldveiðar íslendinga urðu meiri á árinu 1961 en nokkru sinni í sögu landsins. Það er draumur okkar að hluti flotans geti stundað slik- ar veiðar árið um kring. — Og hvaða þýðingu hefði það að sá draumur rættist? — Það er fyrst og fremst ör- yggi fyrir útveginn ef þorsk- veiði bregzt. I öðru lagi spar- ar það mikinn tíma sem annars fer í það að skipta um veiðar- færi haust og vor og búast til hýrra veiðat og í þriðja lagi sparar það mjög mikið fé, því að það er mikil fjárfesting i veiðarfærunum einum eins og nú er, bátarnir byrja með línu, taka síðan net og á sumrin þurfa þeir síldarnætur. Bátur sem stundar alltaf sömu veið- arnar þarf ekki að kaupa allar þessar tegundir veiðarfæra held- ur getur notað sömu veiðar- færategund allt árið. — Er ekki hægt að segja að ykkur hafi sótzt sæmilega í þessum rannsóknum? — Á síðustu árum hefur þekking okkar á göngum síld- arinnar aukizt gífurlega. í stað kenninga eru nú smátt og smátt að koma staðreyndir. Enda þótt við verðum enn töluvert að sætta okkur við getgátur einar, þá eru staðreyndir smátt og smátt að leysa kennisetningar af hólmi. En fullkomna þekk- ingu á hínum margslungnu eig- inleikum síldarstofnanna fáum við ekki nema með aukni^m og mjög ítarlegum rannsóknum, — en til þeirra þurfum við rann- sóknarskip. — Hvað er til marks um ár- angurinn af þessum rannsókn- um ykkar? — Með hjálp undirstöðurann- sókna hefur t.d. hin síðustu ár veriS unnt í síðari hluta júní að gera nokkra grein fyrir veiði- horfum og um miðjan júlí hef- ur svo allnákvæm greinargerð um veiðihorfur verið birt. Á ýmsu hefur oltið um júní- „spána“, en hin seinni ‘hefur ævinlega reynzt rétt. Á þennan hátt hefur sparazt mikill tími og mikið fé við það að veiði- skipin hafa getað haldið sig að Vangamynd af nokkrum síldum bezta veiðisvæðinu og látið hin eiga sig. — Ertu bjartsýnn um síld- veiðar okkar í framtíðinni? — Já, ég er bjartsýnn um framtíð síldveiðanna, þrátt fyrir að norski stofninn hefur minnk- að mikið á undanförnum árum, þá hefur aukin þekking á síld- argöngunum og aukin veiðitækni valdið því að veiðarnar verða jafnari og öruggari ár frá ári. En þrátt fyrir þetta vantar mjög margt á þekkingu okkar ennþá og ennfremur má benda á að við ráðum ekki við nátt- úrulögmálin, sem gætu haft á- hrif á gang síldveiðanna, eins og t.d. þegar síldin gengur að eins í smátorfum og er óveiðan- leg. Eðli síldarinnar er að vera í torfum, en stundum finnsthún aðeins í smáum torfum, svo smáum að það er ógerningur að veiða hana í herpinót. Líka Þrír ungir sovézkir vísinda- menn við stærðfræðistofnunina í Novosibirsk í Síberíu hafa með aðstoð rafeindaheila leyst gátur ritmáls Maya-indiánanna. Frá þessu er sagt í tímariti UNESCO, Courrier. Margir hafa spreytt sig á að ráða þessar gátur á undanförnum öldum. Menn hafa haft nokkra vitneskj.u um talmál Mayanna, en engum hefur tekizt fyrr en nú að lesa myndletur þeirra sem skráð er bæði á stein- töflur í musterum þeirra í Mið- Ameriku og einnig hefur varð- veitzt á nokkrum leturströngum. Með aðstpð rafeindaheila tókst sovézku vísindamönnunum að lesa úr letrinu £ tveimur ströng- unum. Þeir byggðu á þeirri tii- gátu enn eins sovézks fræðimanns að leturmyrídimar gætu bæði táknað einstök hljóð, samstöfur og jafnvel heilar setningar. Myndletrið var “þýtt” á tákn- kemur fyrir að torfurnar eru svo styggar að þær nást ekki. Það olli aflabrestinum 1960. — Hverjar voru orsakir þeirr- ar styggðar? — Sumarið 1960 var fæða síldarinnar fiskilirfur í stað þess að vera rauðáta. Fiskilirf- urnar eru miklu hraðsyndari svo torfurnar splundruðust við það að síldin elti uppi fæðuna. Því minna sem fæðutegund síld- arinnar hreyfir sig, því rólegri verða torfurnar. Slík atriði setja stærst spurningarmerki við veiðihorfurnar. — Veldur vélaskrölt veiði- skipanna engri styggð? — Það er enginn efi, að mikil skipaumferð getur undir vissum kringumstæðum valdið styggð, hinsvegar höfum við aldrei orð- ið varir við að mælitækin hafi valdið styggð. Talið berst að starfinu í landi og Jakob segir: — Það má ekki gleyma því að ég nýt starfs- krafta prýðilegra samstarfs- mannai þeirra Viktoríu Krist- jánsdóttur, Egils Jónssonar og Sverris Guðmundssonar. Maður gæti ekkert gert ef maður hefði ekki gott fólk. .•— Og hvað um framtíðar- verkefnin? — Við vitum ennþá sáralítið um hrygningu íslenzka síldar- stofnsins. Það hefur alltof lítið verið unnið að nákvæmum rannsóknum á hrygningarsvæð- um og uppvexti síldarinnar, — þar er mikið framtíðarverkefni. Svo eru enn stórar eyður í þekkingu okkar á göngu ís- lenzka síldarstofnsins og stærð hans. Að þessu verður að vinna á næstu árum. Ennfremur þarf að rannsaka hegðun norður- landssíldarinnar, sem er blanda af íslenzka síldarstofninum og þeim norska. Það munu ára- skipti að því hvor stofninn er ráðandi. Okkur vantar meiri vitneskju um göngu norður- landssíldarinnar, en hún hefur reynzt afdrifarík fyrir sumar- síldveiðarnar. Þótt ekki sé fleira nefnt sérðu að það er enginn skortur á framtíðarverkefnum. Svo óskum við að lánið leiki við Jakob í eltingaleik hans við síldina, og sjómönnunum og þjóðinni mikils síldarafla. mál okkar tíma, gatakort rai eindaheilans og hann leysti eim erfiðustu gátu málvísindanna i 40 klukkustundum. Umræddl’ textar reyndust vera spádóms tímatöl Maya-prestanna og va* þar að finna lýsingar á athöfnuir guðanna alla daga ársins. Vísindamennirnir þrír, Évreiri off, Kossaroff og Ústinoff, er nú að vinna að þriggja binda rit verki um rannsóknir sinar. í fyrsta bindinu verða textarnir i handritunum tveimur, á mál Mayanna og í þýðingum á rúss nesku og spænsku, í öðru tæm andi skrá um táknin og í þý þriðja gatakortin og niðurstöðu hinna stærðfræðilegu útreikning'’ Það má búást við fleiri tíðinc u.m í málvísindum frá stærí fræðistofnuninni i Novosibirsl því að Courrier skýrir frá því a< hafnar séu þar rannsóknir á hir um svokölluðu Rongo-Rongc textum frá Páskaeynni. Gátur ritmáls Mayanna ráðnar austur i Siberíu Fimmtudagur 15. marz 1962 NÝI TÍMINN — P

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.