Nýi tíminn - 15.03.1962, Page 8

Nýi tíminn - 15.03.1962, Page 8
****** Séra Sigurjón Árnason flutti sunnudagsmessuna og lagði út af .guðspjalli dagsins, dæmi- sögunni um sáðmanninn. Lít- ið rrtan ég úr ræðu hans nú í vikulokin, og er því líkast sem fuglar himins hafi étið þau frcq. er í mitt hjarta áttu að falla, en hitt man ég, að mér fannst ræðan nokkuð góð, meðan ég var að hlusta á hana. En séra Sigurjón flytur ræður sínar með þeim hætti, að því er líkast sem hann sé dálítið móðgaður óg sé alltaf að taka upp þykkj- una fyrir guð. Þó má vera, að þetta sé bara á yfirborð- inu, og að hann meini ekkert með þessu. Kohunginum blótaB Miðdegiserindið var flutt af séra Jakob Jónssyni og fjall- aði um purpuraklæðið, iþyrni- kórónuna og reyrstafinn, og mun hafa verið innlegg höf- undar í helgihald föstunnar. Þó má reyndar segja, að efni þessa erindis hafi verið frem- ur almennur fróðleikur en guðfræði. Rakti höfundur 'þann þátt úr píningarsögu Krists, sem tengdur er fram- annefndum' gripum, til æfa- fomra siða úr gömlum trú- arathöfnum, sem sé þeim að blóta konungi eða staðgengli hans til árs, og nefndi hann meðal annars sem dæmi af þessari tegund, er Svíar blót- uðu Dómalda konungi sínum til árs, þegar önnur blót dugðu ekki, enda batnaði þá þegar árferði. Síðar, eftir að siður þessi aftókst í raun, var svo farið að 'leika þetta, á þann háttj. meðal annars, að færa dauða- dæmda menn, einkum þá er höfðu verið dæmdir fyrir uppreisn gegn ríkinu og færa þá í eftirlíkingu af konungs- skrúða| áður en þeir voru réttaðir. Eftir að hafa hlýtt á þennan foma fróðleik séra Jakobs, dettur manni ósjálfrátt í hug: Er ekki friðþægingarkenning Páls postula einnig eitthvað í ætt við hinn æfaforna sið að blóta konungum til árs? Um kvöldið las Rósberg Snædal upp frumsamda smá- sögu, Hefnd. Fór þar saman bráðsmellin frásögn og ágætur flutningur. Einkaufvarp t þættinum Spurt og spjall- að var um það rætt, hvort rétt væri að gefa einstaklingsfram- takinu kost á að reka útvarp við hliðina á Ríkisútvarpinu. Njáll Símonarson og Sveinn Ásgeirsson vildu að svo yrði gert, en Benedikt Gröndal og Guðmundur Hagalín mölduðu í móinn og vildu óbreytt á- stand í þessum málum. Reyndar hefði mátt ætla, að einstaklingsframtakið ætti svo- innangengt í Ríkisútvarpið, bæði um fordyr þess og bak- • dyr, að slík aðstaða ætti að nægja því í bili. Raunar er það alls ekki undarlegt, þótt krafa um heimild til útvarpsreksturs . komi frapi frá einstaklings- framtakinu nú. Á hinum síð- ustu tímum hefur trúin á framtak einstaklingsins verið útvarpsannáll VIKAN 25. FEBRÚAR TIL 3. MARZ boðuð af meiri krafti en nokkru sinni fyrr, og næstum eins og hún væri hreint sálu- hjálparatriði, og þegar talað er um einstaklingsframtak, er vitanlega alltaf átt við fjár- magnað framtak, því einstak- lingsframtak, án fjármagns er víst ekki talið á marga fiska. Og hví skyldu eigendur fjár- magnsins ekki vilja hafa sitt útvarp bæði sem tæki til að láta fjármagnið ávaxtast, en þó eflaust öllu fremur til að boða landslýðnum hina einu sáluhjálplegu trú, trúna á framtak einstaklingsins? Maður gæti hugsað séij, að dagskrá slíks útvarps myndi verða svona eins og stækkuð mynd af dagskrá á héraðsmóti Sjálfstæðismanna norður á Hólmavík. Það er sannarlega ekkert undur, þótt Svein Ás gejrsson klæi í lófana eftir þv£ að slíkt fyrirtæki komist á laggirnar hið bráðasta. ÁuppboS Benedikt Gröndal hélt því mjög að hlustendum, að dag- skrá útvarpsins gæti orðið miklu betri en nú er, ef stofn- unin hefði efni -á að greiða meira fyrir efni hennar. Eflaust má þetta til sanns vegar færa, að því er sumt útvarpsefni snertir, eins og t. d. hljómlist og leiklist. En að því er snertir hið talaða orð á ég ákaflega bágt með að skilja, að það myndi batna um helming, þótt útvarpið hækkaði greiðslur sínar um helming. Það er vart hægt að láta sér detta annað í hug, en að þeir, sem t.d. flytja þátt um dag og veg, geri eins vel og þeir eru menn til að gera, svona sjálfs sín vegna, hvað sem allri borgun líður. Ef til vill veit Benedikt Gröndal um einhverja æskilega útvarps- menn, sem eru svo dýrseldir á vinnu sína að útvarpið hefur ekki efni á að kaupa hana. En þegar einstaklingsframtakið kemur til sögunnar, breytist þetta vonandi til batnaðar, þá verður farið að bjóða í út- varpsmenn og verðlagið á framleiðslu þeirra fer upp úr öllu valdi. Mánudagsþáttinn um dag- inn og veginn heyrði ég ekki. En leikhúspistil Sveins Ein- arssonar heyrði ég, og fjallaði hann að þessu sinni um hið helzta sem er að gerast í leik- listarlífi höfuðborgarinnar, og er slíkt í raun og veru lofs- verð hugulsemi við hlustend- ur úti á landi, sem af eigin raun vita ekki hvað þeir höf- uðstaðarbúar hafa fyrir stafnj á þeim vettvangi. Á þriðjudagskvöld, flutti Einar Pálsson erindi| er nefnd- ist Hindin, sem þráir vatns- lindir, og undirtitil'l: Hugleið- ing um efnishyggju og bók- rffÉ'rtWtify'MUfl' verða vikið nánar--að • þessu erindi í lok þessa þáttar. Hver ju a svo að trúa? Á sunnudaginn var það út- varp, á .miðvikudaginn var komið sjónvarp. Og það sem meira var: Hið háa Alþingi hafði málið til meðferðar. Sjónvarpið á Keflavíkurflug- velli var sem sé rætt á Al- þingi, og urðu umræður frek- ar leíðinlegar. Alþýðubanda- lagsmenn sóttu að stöð þess- ari. Stjórnarliðar vörðu hana, en þó með hangandi hendi, og viðurkenndu að menn úr ölt- um flokkum væru henni and- vígir, þess vegna ætti ekki að ræða þetta mál á Alþingi, það væri í raun og veru ópólitískt. Framsókn var tvístígandi, eins og stundum áður. Hið versta í þessum orðræðum var þó þeð sem er orðinn mjöghvim- teiður löstur hjá þingmönnum, þeir deila og deila hvað harð- ast um það sem ætti að vera óumdeildar staðreyndir. Dæmi úr þessum umræðum: Einn þingmaður les upp bréf, er hann kveður vera samning um sjónvarpsrekstur milli her- stjómarinnar og þáverandi utanríkisráðherra. Annar þing- maður rís upp og lýsir því yfir, að sá fyrri hafi ekki lesið upp rétt bréf, þetta hafi ekki verið samningur. Þá kemur hinn þriðji þingmaður, segir þingmann númer tvö ljúga og að bingmaður númer eitt hafi lesið upp bréf. Hverju á svo hlustandinn að trúa? Ann- að dæmi: Einn segir, að það sé ekki hægt að gera sjónvarp í Keflavík þannig úr garði, að það sjáist ekki utan vallarins. Annar segir að það sé auðvelt. Hverju á hlustandinn að trúa? Þriðja dæmi: Sumir ræðu- menn héldu því fram, að lang- drægni nefndrar stöðvar myndi aukast geysimikið við það að orka hennar verður fimmfölduð. Aðrir sögðu, að langdrægnin myndi lítið sem ekkert aukast. Hverju á maður að trúa? Heímsmet Einn þeirra mannaj er tóku til máls í þessum umræðum minnir mig að væri nefndur Matthías. Hann nefndi orðin kommúnismi og kommúnisti svo oft, að þegar hann hafði talað í nokkrar mínútur, byrjaði ég á því mér til dægradvalar, að telja hvað hann bæri þessi orð oft í munn sér. Frá því ég byrj- aði talninguna og þar til máli hans lauk, komu þessi orð og fornöfn _af þeim, fjörutíu og sjÖ sinnum fyrir. Ræðan mun varla hafa staðið lengur en fimmtán mínútur, og þar sem nokkuð var liðið á hana, þeg- ar talning hófst, er varlega áætlað að orðin hafi verið nefnd sextíu sinnum, eða sem svarar fimmtándu hverja sek- úndu. Þetta kalla ég vel af sér vikið og er sennilega heimsmet í þessari íþrótt. Dómsmálaþátturinn fimmtu- dagskvöldið var miklu betri en sá síðasti, þVf’-h'öfundúrt vatt sér umsvifalaust að efn- inu og skýrði frá gangi og dóinsúrslitum tveggja mála, er risið höfðu út af leigusamn- - ingum og var sú frásögn öil hin skilmerkilegasta. Sigurður Pétursson, flutti og þetta kvöld erindi um skel- fisk og skelfiskseitrun, en frómt sagt hafði ég ekki meiri áhuga á þessu viðfangsefni en svo að ég sofnaði undir lestr- inum, og missti því af þeim fróðleik, er erindi þetta hefur haft að geyma. Þá var og þetta kvöld flutt spjall um leiklist, lófaklapp og skáldskap, í léttum tón. Þetta var allt fremur þægilegt á að hlýða, þó frásögn og flutning- ur væri nokkuð í hraðara lagi. En flytjendur voru þau Hildur Kalman og Gísli Alfreðsson. Eftir Passíusálmi las Hug- rún upp söguna af litlu telp- unni sem var svo ógætin að trúa vinkonu sinni fyrir því, að hún væri skotin í honum Bjössa, en vinkonan kjaftaði svo leyndarmálinu í hina krakkana, telpunni til sárrar armæðu og hrellingar, og hefði þetta verið ágæt saga í barna- tima. Sama saga Það heyrði ég fyrst af þættinum Efst á baugi, að ver- ið var að segja sögu Móló- toffs, og mun það vera í þriðja sinn á þessum vetri, sem sú saga er sögð á þessum vett- vangi, og verður sennilega nokkurskonar framhaldssaga þessa þáttar enn um skeið. Svo var eitthvað bollalagt um hugsanlegt samstarf Rússa og Bandaríkjamanna um geim- ferðir og sjónvarp. Ljóðaþátturinn var helgaður Benedikt Gröndal, og las Lárus Pálsson kvæðin vel og skil- merkilega, svo sem vænta mátti. Laugardagsleikritið var eftir Strindberg og nefndist Bruna- rústin, áhrifamikið verk og næsta óhugnanlega opinskátt um ástand mannskepnunnar innanverðrar, vonzku hennar, fláttskap, þjáningu og kvöl, fen þó vom. þrátt fyrir allt, eins og Sveinn Einarsson komst að orði í forspjalli, en hann hafði þýtt leikinn og stjórnaði flutningi hans. ----- Grein blinda mannsins Skal nú vikið nokkuð að er- indi því er Einar Pálsson flutti á þriðjudagskvöld og áður hefur verið nefnt. Ræðumaður hóf mál sitt með því að biðja hlustendur að fylgjast með sér nokkur ár aftur í tímann og staðnæm- ast hjá ritsmíð einni, er birzt hafði í blaði hérlendu, að því er mér skildist. Ræðumaður gaf i skyn, að áðurnefnd rit- smíð hefði verið fyrir neðan allar hellur, en fór þó ekki nánar út í þá sálma. Ekki nafngreindi hann höfúnd grein- ar þessarar, né heldur blaðið, eða árið sem hún birtist, svo hlustendur hefðu verið litlu nær hvert þeir ættu að leita eða hvar, ef annað hefði ekki -‘komið til. Þess var nefnilega getið, að höfundur áðurnefndrar grein- ar væri blindur maður, og þar • sem ekki er um marga blinda menn að ræða hér á landi, sem fást við þessháttar iðju, gat slík upplýsing orðið hlust- endum nokkur leiðbeining í leit sinni að þessum illa inn- .rætta höfundi. Næst kom svo til álita, hvort blindu fylgdi slík andleg veiklun, að það út af fyrir sig entist höfundi áðurnefndrar ritsmíðar til afbötunar. Að mjög vandlega athuguðu máli komst höfundur að þeirri nið- urstöðu, að svo væri ekki. Blindir menn voru að öðru jöfnu miklu betri en sjáandi. Færði ræðumaður fjölmörg dæmi þeirri skoðun sinni til sönnunar og dró víða föng a£j, og yrði of langt upp að telja. Blindir menn nutu yfirleitt mikillar virðingar hinna sjá- andi og ekki að ófyrirsynju, því þeir höfðu öðlazt þá náð- argjöf með sjónleysinu, að skilja og sjá tilveruna innan frá, og gátu af þeim sökum reynzt hinum sjáandi ómetan- anleg hjálparhella, til að ráða hinar þyngstu og erfiðustu gát- ur tilverunnar. Blindi maður- inn á að reynast hinum sjá- andi bróður, sem ráfar um eyðimörk efnishyggjunnar, sem leiðarhnoða, svo að sál hins sjáandi, sú hin þyrsta hind, megi finna leiðina að lind lífsins, uppsprettu guð- dómsins. Minna mátti það ekki vera. En til þess að svo mætti verða, urðu blindir menn að uppfylla eitt skilyrði. Þeir áttu að láta sjáandi mönnum það eftir að fella sleggjudóma. Þegar við heyrum blindan mann kveða upp sleggjudóma, fallast okkur hendur, sagði Einar. Það sem nú hefur verið rak- ið, kom að vísu ekki allt í einni bunu hjá ræðumanni, heldur í smáskömmtum. Hann endasentist á milli alheims- ins endimarka, í tíma og rúmi, og kom ærið víða við, og sýndi víða allmikinn lærdóm og þekkingu. En hvert sem hann fór lá leið hans aftur til blinda mannsins, og var því líkast| sem sá blindi væri í raun og veru þungamiðja al- heimsins, eða sá öxull, sem allt snerist um. Það er skylt að viðurkenna, að í öllum hugleiðingum Ein- ars Pálssonar um innanvert ástand blindra manna, felst þrátt fyrir allt einn ofurlítill sannleiksneisti. Hugsun þeirra getur ef til vill orðið eitthvað skýrari, vegna þess, að sjón- in truflar ekki starfsemi hug- ans, eins og hjá sjáandi mönn- um. En nákvæmlega sama á- rangri getur Einar Pálsson náð, breiði hann feld yfir höfuð sér, eins og Þorgeir Ljósvetningagoði, og hafi hann ekki feld við höndina má með sama árangri notast við venju- legt Gefjunarteppi. Þvert á móti En að öðru leyti eru bolla- leggingar hans um andlegt á- stand blindra manna nokkurn veginn eins fjarri veru'leikan- um og verða má. Vitanlega eru blindir menn af öllum hugsanlegum manngerðum. En eitt er þó öllum blindum mönmlrfí'* sahneiginlegt. Ekki það, að hugir þeirra beinist inn á við, eins og Einar Páls- son virðist halda, heldur hið gagnstæða. Hver einasti blindur maður á þá ósk heitasta að brjótast út fyrir vítahring myrkursins. í starfi sínu og hugðarefnum gleymir ’hann því að hann sé blindur. Hann vill vera mað- Framhald á 11 síðu. eftir SKÚLA GUÐJÓNSSON fró Liófunnarsföðum NÝl TÍMINN — Fimmtudagur 15. marz 1962 ■■■no m sg’ð. 'ájsí i i liiti iin n.-iZm'Œ

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.