Nýi tíminn - 16.05.1963, Qupperneq 6

Nýi tíminn - 16.05.1963, Qupperneq 6
NÝI TlMINN Skúli Guðjónsson á Ljótunnarstöðum skrifar um útvarpsdagskrána Frá hinuin geysifjölmenna litifundi verkalýðsfélaganna í Reykjavík við Miðbæjarbamaskólann 1. maí. Myndjn var tekin þegar greidd voru atkvæði mcð tillögu þcirri er mótmælti kröftuglega ós\ifni meirils’.uta útvarpsráðs i sambandi við útvarpsdag- skrána 1. maí og lítilsvirðingu hans á heildarsamtökum launþega í landinu. — Ljósm. Þjóðv. AK. ÚTVARPIÐ 1.MAÍ g SIÐA------------------------ Svo herma útvarpsfréttir, að 1. maí síðastliðinn hafi verið liðin fjörutíu ár síðan fyrsi var farið í kröfugöngu hér á landi, að tillilutaij verkalýðs- félaga. Þessa merkisafmælis heíur verið minnzt með nokk- uð undarlegum hætti af ýms- um aðilum. Að því er virðist hefur Full- trúaráð verkalýðsféiaganna minnzt hinnar fyrstu kröfu- göngu með því að efna ekki til kröíugöngu, og verður það út af fyrir sig að teljast mjög frumleg aðferð og líkleg til að verða talin til minnisverðra at- burða í sögu verkalýðshreyf- ingarinnar. Sjálft hefur svo útvarpið minnzt áðumeínds afmælis með því að meina forystumönnum launasamtakanna að ganga að útvarpinu á þessum merkis- degi, og verður það án efa tal- inn minnisverður atburður í sögu útvarpsins. Þannig hefur þessa merkis- atburðar verið minnzt kannski ekki beinlínis á viðeigandi hátt en að minnsta kosti á mjög eftirminnilegan hátt og meir að segja svo eftírminnilegan, að sennilegt má telja, að ýms- ir sem hafa talið sér trú um að markinu væri náð og braut- in brotin til enda vakni við vondan draum og renni grun í að enn sé ekki tímabært að sofna á verðinum og að það sé í raun og veru vel ómaksins vert, að halda vöku sinni enn um sinn. Mörgum varð hverft við 'S'msum mun hafa orðið hverft við er það spurðist að meirihluti útvarpsráðs vafalítið að undirlagi rikisstjórnar, hefði neitað þeim Hannibal Valdi- marssyni og Kristjáni Thorla- ciusi um að flytja ávörp í dag- skrá útvarpsins 1. maí. Sá hátt- ur hefur þó verið á hafður all- mörg undanfarin ár. að forseti Alþýðusambandsins og formað- ur Bandalags starfsmanna rik- is og bæja ættu innhlaup i út- varpið fyrmefndan dag ár hvert. Sá böggull hefði þó fylgt slíku skammrifi, að ráðherra sá sem um verkalýðsmál hef- ur fjallað, fylgdi þeim jafnan. Nú hefur sennilega ekki þótt stætt á öðru en taka ráðherr- ann einnig úr umferð. Má þvi segja, að ríkisstjómin og um- boðsmenn hennar 1 útvarpsráði hafi séð þann kost vænstan að færa sér í nyt lífsspeki hins ill- gjama, sem kaus að láta stinga sér annað augað, svo að hinn, sem skyldi fá helmingi meira, missti bæði sín. Það er að vísu illt til þess að vita þegar svona löguð hrekkjabrögð eru uppi höfð. Á hitt ber þó jafnfromt að líta að hér hefur enginn sá skaði orðið, er ekki fáist bættur og það jafnvel margfaidlega. ef rétt er á haldið. Enginn rriúh að vísú draga það í efa að hefði þeim Hanni- bal og Kristjáni auðnazt að koma í útvarpið og túlka mál- stað og sjónarmið þeirra sam- laka er þeir veittu forstöðu. myndu þeir hafa haldið á sín- um málstað af mikilli prýði og orð þeirra myndu með öðrum orðum hafa haft mikið áróð- ursgildi. Það hafa þeir sem synjuðu þeim um orðið eflaust vitað manna bezt, annars hefðu þeir hleypt þeim inn. Hvert er áróðursgildið? En vitneskjan um það, að valdamenn þjóðarinnar skuli vera svo ofstækisfullir, skamm- sýnir, hræddir og heimskir að þeir þora ekki að gefa póli- tískum andstæðingum sínum orðið í útvarpinu í nokkrar mínútur hefur þó mörgum sinnum meira áróðursgildi. Hefðu fulltrúar ríkisstjórnar- innar í útvarpsráöi verið svo hyggnir að hleypa formönnum launþegasamtakanna inni í út- varpið téðan dag, að maður nú ekki nefni þaö, að launþega- samtökin sjálf hefðu séð um dagskrá kvöldsins, myndum við hafa orðið að viðurkenna, að stjómarvöldin, væru nú þrátt fyrir allt déskoti frjálslynd og sýndu í verki trú sýna á vest- ræna frjálsa hugsun og skoð- anafrelsi. Og það, eitt út af fyrir sig, myndi hafa orðið stjórnarflokkunum mikill á- vinningur í komandi kosninga- baráttu. Mér er jafnvel nær að halda að ýmsir af stuðningsmönnum stjórnarinnar hafi hrokkið við, er þeir fréttu um vinnubrögðin í útvarpsráði í sambandi við 1. maí, því að ekki þarf að efa, að einnig í þeim hópi fyrirfinn- ist einhverjir svo réttlátir, að þeir vilji láta fullnægja rétt- lætinu, að einhverju leyti. Og af því að menn eru nú einu sinni þannig geröir. að þeir muna betur eftir hinu illa. en hinu góða, er ekki alveg ör- uggt að allir verði búnir að gleyma þessu á kjördegi. Fréttaflutnmgur- inn 1. maí En víkjum nú að viðbrðgð- Fimmtudagur 16. maí 1963 um útvarpsins sjálfs i fréttum og dagskrá í sambandi við 1. maí. Allur fréttaflutningur þennan dag og dagana á undan. var með miklum vandræðablæ. að þvi er daginn sjáifan og at- burði hans snerti. Veðrið var svona og svona. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna hafðí úti- fund og seldi merki. Nokkur verkalýðsfélög efndu til kröfu- göngu og útifundar. Og hlust- andanum fannst. einhvern veg- inn að hið síðasta væri hálf- gert aukaatriði. Engar fréttir af þátttöku frá hvorugu fyrir- tækinu. Engar fréttir af þvi hvað ræðumenn höfðu til mál- anna að leggja. Hinsvegar í er- lendu fréttunum mjög ítarlegir útdrættir úr ræðum þjóðleið- toga. Hlustandinn fékk það þvf einhvern veginn inn í vitund sína, að allmjög myndi á skorta að hér væri um frjálsan frétta- flutning að ræða. Samfellda dagfskráin Svo kom samfelld dagskrá í tilefni dagsins. Sagði í upphafi þeirrar dag- skrár, að útvarpið vildi fyrir sitt leyti minnast þessa merk- isdags í sögu verkalýðshreyf- ingarinnar með því að bjóða hlustendum upp á þessa sam- felldu dagskrá. Þurfti í raun og veru töluverð brjóstheilindi til þess að láta slíkt út úr <rír eftir allt sem á undan var gengið. Má þó raunar segja að dagskrá þessi hafi verið í fullu samræmi við það sem á undan var gengið og bar hinni vondu samvizku útvarpsins trúverðugt vitni. Stjómandi dagskrárinnar Ingólfur Kristjánsson, virtist vera fremur leiðinlegur maður og lék hlutverk sitt einhvem veginn utangátta og því líkast sem hann væri af fjöllum kom- inn. Viðtöl þau, er hann átti við göngumennina frá 1923. voru ekki sannfærandi og vantaði mikið á, að hann næði beim árangri, sem unnt hefði verið jafnvel þótt viðmælendur hans virtust flestir, ef ekki allir, fylgja Alþýðuflokknum enn í Framhald á 4. síðu. ! \ ! ! Enn einu sinni skulu þeir leiddir fram til vitnis- burðar. Ásgeir Ásgeirsson, forseti íslands: Á manngildinu byggjum vér allar fram- tíðarvonir og því, hvemig það birtist í bókmennt- um, listum, landsstjórn og atvinnulífi á hverjum tíma. Þeir hafa stundum orðið skammlífari, sem byggðu allt sitt traust á vopnum. Sigurbjörn Einarsson, biskup íslands: Við get- um ekki gert sjálfum okkur og niðjum okkar verri spjöll en þau að gera ísland viljandi að víghreiðri. Við eigum einn bandamann, fslend- ingar, og aðeins einn, sem aldrei bregzt okkur, og það er rélturinn, rétt- urinn að guðs lögum til þessa lands. Einar Ól. Sveinsson, pró- fessor viö Háslcóla íslands: Ég býst varla við, að nokkur muni treysta sér til að tala kinnroðalaust um fjárhagslegan hagnað af því að leigja öðrum þjóðum !',1enzkt land, því það vr með leyfi að segja, sa hagnaðurinn og skækjan hefur af að að selja sig. Stefán Jóh. Stefánsson, ambassador íslands í Danmörku: Við í nefnd- inni og ríkisstjórnin telj- um mikils um vert, að vilji Alþingis íslendinga ÓCLEYMANLEGAR RADDIR komi skýrt og ótvírætt fram um þetta efni, að það sé vilji bæði þings- ins og íslenzku þjóðar- innar, að erlendar her- stöðvar verði ekki á ís- landi. Ólafur Thors, forsœtis- ráöherra íslands: Þama áttu að vera voldugar herstöðvar. Við áttum þarna engu að ráöa. Við áttum ekki svo mikiö sem aö fá vitneskju um, hvað þar gerðist. Þannig báðu Bandaríkin þá um land af okkar landi til þess að gera að landi af sínu landi. Og margir óttuð- ust, að síðan ætti að stjórna okkar gamla landi frá þeirra nýja landi. Gegn þessu reis íslenzka þjóöin. Gunnar Thoroddsen, fjár- málaráöherra íslands: Málaleitunin um her- stöðvar af hálfu Banda- ríkjanna var gersamlega ósamræmanleg sjálfstæði íslands. Og mín skoðun er sú, að til lítils hafi þá verið skilnaðurinn við Dani og stofnun lýðveld- isins, ef skömmu síðar hefði átt að gera slíka skerðingu á sjálfstæði okkar. . . Þær raddir og óskir hér á landi, sem vildu herstöðvar, hafa verið kveðnar niöur í eitt skipti fyrir öll. Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráöherra ís- OKKAR Á MILLI SACT lands: íslendingar eiga aldrei aö leyfa erlendum her dvöl í landinu á friðartímum og aldrei þola þar neinar erlend- ar herstöövar, enda er landfræöileg lega lands- ins þannig, að á slíku er sem betur fer ekki þörf til varnar landinu gegn árás úr þeirri átt, sem ísland mundi fyrst og fremst óttast. Hiö aukna öryggi, sem af því leiddi, mundi og hvergi nærri vega gegn þeirri gífur- legu hættu sem slíkt hefði í för með sér fyrir sjálfstæði og þjóöerni ís- lendinga, tungu þeirra og menningu Siguröur Bjarnason, rit- stjóri Morgunblaösins: Og mitt svar er á reið- um höndum: íslendingar eiga ekki að leigja neinu erlendu ríki hernaðar- bækistöðvar í landi sínu. Það er óþarfi aö spyrja vegna hvers. í fyrsta lagi er sú leið hæpin til ör- yggis. í öðru lagi vilja íslendingar hvorki leigja land sitt né selja. Slíkt getur engin þjóð gert, sem ann sóma sínum og frelsi. Til þess að slíkur gerningur teljist hyggi- legur og annað en hreint pólitískt gjaldþrat, þarf áreiðanlega að leggja annan mælikvaröa á stjórnarathafnir á ís- lahdi en hingað til hefur tíðkazt hér. Nú kynni einhver að spyrja: Hvaða andskot- ans kommúnistakjaftæði er nú þetta? Leyfir Jó- hannes úr Kötlum sér að falsa þannig nöfn og skoðanir æðstu manna þjóðarinnar? O sei sei nei, kæri vin- ur — þetta eru hrein og klár orö hinna háu herra, áöur en þeir fóru að byggja allt sitt traust á vopnum, áöur en þeir af- söluðu sér guðslagarétt- inum til þessa lands, áö- ur en þeir seldu þjóð sína til skæjulifnaðar, áöur en þeir tóku að forsmá vilja þings og þjóðar, áöur en þeir vöndu íslenzku þjóð- ina af að rísa, áður en þeir gerðu skilnaðinn við dani og stofnun lýðveld- isins að skrínaleik, áöur en þeir lokuðu augunum fyrir þeirri gífurlegu hættu sem sumir þeirra leiddu sjálfir yfir sjálf- stæði, þjóðerni, tungu og menningu íslendinga, áö- ur en þeir komust í hreint pólitískt gjaldþrot og innleiddu nýjan mæli- kvarða á stjórnarathafn- ir á íslandi. Nú koma málpípur þessara sömu manna og segja að íslenzk utanrík- ismál séu orðin svo viö- kvæm að þau eigi að vera friöhelg. Hvernig friðhelg? með leyfi að spyrja. Jú — þannig friðhelg að þjóðin láti sig þau engu skipta framar, heldur uni því sæl og sveitt, södd og löt og þreytt, að amerískur her sé hin raunverulega yfirstjóm landsins, að brezkur her sé hin raun- veralega yfirstjórn land- helginnar og að lýðveldið verði þegjandi og hljóða- laust innlimað i fyrir- hugað evrópuveldi heims- kapítalismans undir for- ustu þýzka nýfasismans! Ó þú göfuga viðkvæmni! Ó þú blessaða friðhelgi! Einn ráðherrann hefur nýlega sagt: helzta ráðið til að efla sjálfstæði þjóð- ar er að fóma því. Ann- ar ráðherra hefur nýlega sagt: guð gefi góðu mál- efni sigur Nú er spum- ingin hvort háttvirtir kjósendur ætla að beygja kné sín einu sinni enn fyrir þessum furðulegu kameljónum eða hvort þeir láta nú ásannast aö fullu orð þriðja ráðherr- ans forðum: Gegn pessu reis is- lenzka þjóöin. \ I \ \

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.