Litli Bergþór - 01.03.1988, Qupperneq 4
4
=RITSTJÓRNARSPJALL
Við upphaf 9. árgangs
Þegar blað hefur komið út samfellt í 8 ár, þó ekki séu
nema 3 blðð á ári, er líklegt að það sé búið að finna sér
nokkuð fast form og móta ákveðna stefnu í vissum
greinum.
Form og stefna ræðst af ákveðnum þáttum, svo sem rót-
um og viðhorfum fólksins sem að því vinnur. Rætur Litla-
Bergþórs eru að sjálfsögðu hjá Ungmennafélaginu og fólk-
ið sem leggur hönd að útgáfu hans er flest Biskupstungna-
fólk á besta aldri. Nafn blaðsins er tengt gömlu þjóðsög-
irnni um Bergþór í Bláfelli, og leiðir það til þess að oft er
hugað að fortíðinni. Reynt er að halda til haga menningar-
verðmætum m.a. með því að birta frásagnir roskins fólks.
Einnig er oft tínt til eitthvað sem finnst í gömlum ritum og
talið er vekja áhuga lesenda. 'Ifengslin við Ungmennafélag-
ið eru rækt með því að birta ffásagnir af starfi þess, og
áformað er að næsta blað verði helgað 80 ára afmæh félags-
ins, sögu, starfi og framtíð þess.
Blaðið lætur sig einnig miklu varða mannlífið hér í sveit-
inni, velferð fólksins, hveiju er ábótavant og hvað er vel
gert. f þessu skyni er t.d. nýlegur þáttur um atvinnumál
og,, Eins og mér sýnist“, þar sem ætlast er til að einn mað-
ur sé sérstaklega til kvaddur í hveiju blaði til að segja
meiningu sína.
Hér verður ekki að sinni farið mörgum orðum um ffarn-
faramálin. En til að ýta undir má óska þess að draumar um
hitaveitu um alla sveit og hjúkrunarheimih í Laugarási
rætist áður en langt um líður. Þá má einnig þakka starf
leikskólans Álfaborgar, ffamkvæmdir við stækkun Reyk-
holtsskóla og umbætur á umhverfi þar, svo eitthvað sé
nefnt. Sama má segja um áform um íbúðabyggingar, bæði
fyrir aldraða og til kaupleigu.
Að lokum skal svo þakkað hljóðlátt starf sem felst í því
að fara til aldraðs fólks og aðstoða það við þrif bæði á hús-
næði og sjálfu sér eftir því sem það hefur þörf fýrir og ósk-
ar sjálft. Það er gott að vita sig búa í samfélagi, sem aðstoð-
ar þá sem eru hjálpar þurfi.
Amór Karlsson
SET
SET
SET
SET
SET
Vatnsrör
Garðslöngur
Hitaþolin vatnsrör
Dropavökvunarkerfi
Drenrör og frárennslisrör
EYRAVEGI 43-45
P.O. BOX 83
800 SELFOSS ICELAND
SÍMI (TEL.) 99-1399