Litli Bergþór - 01.03.1988, Síða 13

Litli Bergþór - 01.03.1988, Síða 13
 FRETTIR Góugleði Sú nýbreytni var tekin upp í félagslífi sveitarinnar að húsneftid Aratungu stóð fyrir svokallaðri góugleði þann 20. febrúar síðastliðinn. Þótti mörgum tímabært að létt yrði aðeins á þeirri örtröð sem rikt hefur í kringum þorrablótið margfræga. Þama gafst þeim sem haft hafa horn í síðu fyrirkomulegs þeirrar hátíðar, gott tækifæri til að skemmta sér á „menn- ingarlega" vísu. Nú, svo hafa sumir kvartað undan skemmtanaleysi yfirleitt og þá aðallega fyrir hjónafólk hér í sveit. Sem sagt, góugleði var haldin með pomp og pragt, góðum mat og vel fram bomum, opnum bar og öllu til- heyrandi, aðstandendum til mikils sóma. Eitt vantaði bara, það var fleira fólk tii að skemmta sér. Hvað um það, tilraunin var góð og þær 100 sálir sem mættu, skemmtu sér hið besta og eitt enn, þama var hljómsveit, sem kunni að spila eitthvað við allra hæfi. Mættu fleiri aðilar, sem standa fyrir uppákomum í Ara- tungu, taka það til athugunar. § ^ Frá vinstri: Kristín Laugarási, Elínborg Iðu, Guðrún Laugarási, Perla Reykholti. TVær kátar úr Laugarási, Brynja og Fríður. Tkpað — fundið Mikið ágætu sveitungar! Jæja, nú er lokið hinni mikið svo ágætu góugleði i Ara- tungu og er vel, því að það er álitið að flestir, ef ekki allir hafi skemmt sér vel. Kvenfélagið sá um matargerð ogskreytingu í sal. Við vor- um heldur sárar á sunnudeginum þegar ganga átti frá blómavösum og öðm, og tókum þá eftir að það vantaði þrjá blómavasa sem við keyptum fyrir þessa hátíð og notuðum til þess að skreyta borðin með. Þeir em litlir með grönnum hálsi, merktir með vatnsheldum svörtum tússpenna á botninum með stöfunum K.F.B. ’88, sem þýðir að Kven- félagið á þessa hluti, og þykir okkur miður að hafa þá ekki nógu marga næst þegar við leggjum á veisluborð. Þannig að mikið þætti okkur vænt um ef einhver, einhverra hluta vegna, hefur vasa með þessari lýsingu í fómm sínum, vildi skila honum. Þá væri gaman að sjá þá endurheimta á eld- húsborðinu í Aratungu, einhvem næstu daga. Þangað er auðvelt að lauma hlutum og eins að athuga hvort einhver kannast við tertudiska sem hafa orðið viðskila við sína eigendur. Við veitingakonur þökkum svo kærlega fyrir að hafa fengið að þjóna svona ágætis veislugestum á fýrmefhdum dansleik svo og annað sem við höfum verið beðnar um. Thkk kærlega fyrir. Fjárlögum flett I fjárlögum 1988 em sérstakar fjárveitingar til fjögurra stofnana og verkefna í Biskupstungum. Það er: 1. Skálholtsskóli, almennur rekstur, kr. 6.056 þúsund. Þar frá dragast sértekjur, kr. 390 þúsund. 2. Geysir í Haukadal, almennur rekstur, kr. 860 þúsund. 3. Lagfæringar á ferðamannaaðstöðu við Gullfoss, kr. 200 þúsund. 4. Biskupstungnahreppur, skólabygging, kr. 2.000 þúsund. A.K. Leiðrétting I erindinu um Haukadal, sem birt var í síðasta tölublaði L.-B., var vitnað í Aldamótaljóð. Þar var rangt farið með nafn höfundar, því hann er Hannes Hafstein en ekki Einar Benediktsson. A.K.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.