Litli Bergþór - 01.06.1991, Blaðsíða 6
Hvað segir þú til?
í nýrri ritnefnd L-B kom fram sú hugmynd að
draga saman í stuttan þátt helstu fréttir úr sveitinni.
Að þessu sinni verður greint frá því helsta sem
borið hefur við á fyrri hluta ársins 1991.
Tíðarfar hefur verið mjög gott, snjóléttur vetur,
lítill klaki í jörð og gróður kom snemma. Helstu
frávik frá verðurblíðu felast í nokkrum
óveðurshrinum. Einkum var rokið 3. febrúar
slæmt. Nokkur hús fuku alveg og önnur
skemmdust verulega. Flest voru þau gömul og
lúin. Þáfukujámplötur af allmörgum byggingum,
og eru þær nú víða til óþurftar og leiðinda í
umhverfinu.
Helstu skemmtanir voru þorrablót í umsjá
Skálholtssóknar í byrjun þorra og árshátíð Hesta-
mannafélagsins Loga á góu. Báðar voru þær vel
sóttar og fóru vel fram.
M-hátíð hefur staðið yfir frá 12. apríl, en þá var
kvöldvaka með dagskrá og listsýningu í Ara-
tungu. M-hátíð barnanna var þar líka um
sumarmálin og myndlistarsýning í Reykholtsskóla
um miðjan júní.
Viðburður í samgöngumálum var er Tungu-
fljótsbrú var formlega tekin í notkun 19. janúar
Þegar þetta er ritað eru verktakar úr sveitinni að
undirbyggja kafla á Biskupstungnabraut frá ve-
gamótum við Skálholtsveg og upp á móts við
Spóastaðasmalaskála.
Miklar annir hafa verið í verksmiðju Yleiningar.
Þar er nú unnið á tveimur vöktum og oft eitthvað
um helgar.
Verið er að byggja tvær kaupleiguíbúðir í húsi
sunnan við Bergholt.
Þá er verið að bora eftir heitu vatni rétt við
Reykholtsskóla ogstofnuð hefur verið ný hitaveita
er nefnist Brúin. A hennar vegum er unnið að því
að koma heitu vatni frá Reykholti austur í Tungu-
hverfi og upp að Vatnsleysu.
Sundlaug ásamt setlaugum og búningsaðstöðu
hefur verið byggð í Uthlíð. Mun það einkum
ætlað sumarbústaða- og ferðafólki.
I ársbyrjun hófst útgáfa fréttabréfs hér í sveit, sem
nú hefur hlotið nafnið Tungna-tíðindi. Það kemur
út um hver mánaðamót og flytur tilkynningar um
samkomur, fundi og fleira , sem á döfinni er.
Heilsufar á fólki hefur verið heldur gott það sem
af er árinu. Þó heijaði inflúensufaraldur um tíma
á útmánuðum.
Þjóðhátíð var haldin 17. júní, og sáu hin ýmsu
félög í sveitinni um undirbúning og framkvæmd
hennar.
A.K.
{
Eyravegi 3, Selfossi
Simi 98-21439
)
Raflagnir í nýbyggingar
og viðhald eldri raflagna.
Viðgerðir og viðgerðaþjónusta.
Fljót og góð þjónusta.
Litli - Bergþór 6